Goðasteinn - 01.09.2005, Blaðsíða 118
Kirkjustarf 2004
Goðasteinn 2005
Fellsmúlaprestakall
/
Skarðs-, Marteinstungu-, Haga-, Arbæjar- og Kálfholtssóknir
í Fellsmúlaprestakalli voru sóknarböm 546 samkvæmt þjóðskrá. í Skarðssókn 106,
Hagasókn 49, Marteinstungusókn 87, Árbæjarsókn 162 og Kálfholtssókn 134.
Allt kirkju- og safnaðarstarf í prestakallinu hefur verið á líkum nótum og undanfarin
ár. Barnastarfið í prestakallinu gengur vel og er unnið í samstarfi sóknarprests og skól-
anna. Kemur sóknarprestur vikulega í Laugalandsskóla til nemenda 1.-3. bekkjar sem og
leikskólann yfir vetrartímann og hefur þetta fyrirkomulag gefið góða raun. í þessum
samverum er mikið sungið og bömin frædd um innihald kristinnar trúar og spjallað um
eitt og annað sem litlar sálir eru að velta fyrir sér en stundunum lýkur síðan með bæn.
Auk þess eru barnastundir í guðsþjónustum þegar tök eru á því.
Fermingarfræðsla vetrarins hófst með Skógamótinu um miðjan september, þegar öll
fermingarbörn sýslunnar deildu geði á fermingarbarnamóti í einn dag í Skálholti á vegum
æskulýðsnefndar prófastsdæmisins. f byrjun októbermánaðar hefjast síðan vikulegir
fræðslutímar að afloknum skóladegi á mánudögum, þar sem farið er yfir bókina Líf með
Jesú, auk annars ítarefnis. Síðan, þegar sól hefur tekið að hækka á lofti, hafa Fellsmúla-
og Oddaklerkar síðustu árin slegið sig saman og drifið sig í menningarreisu með ferming-
arhópana sína til Reykjavíkur og eytt þar einum degi í menningarlegum þankagangi. í
þessum ferðum hefur Álþingi íslendinga verið heimsótt og við notið höfðinglegrar mót-
töku þingmanna okkar úr Rangárþingi, Dómkirkjan skoðuð, rölt um Háskólasvæðið,
farið í bíó og hungrið síðan satt á flatbökustað áður en haldið er heim á leið á nýjan leik.
Kirkjukórar eru vel starfandi í prestakallinu og sem fyrr eru félagar þeirra, organ-
istarnir og sóknarnefndarfólkið þeir sem leggja til krafta sína úti á akrinum og verður öllu
því góða fólki seint fullþakkað þeirra fórnfúsa starf. Skarðskirkjukórinn starfar undir
leiðsögn Inga Heiðmars Jónssonar, Eyrún Jónasdóttir heldur um kórstjórataumana í
Kálfholtskirkjukórnum og Hannes Birgir Hannesson stjómar Árbæjarkirkjukórnum sem
og Marteinstungu- og Hagakirkjukórnum, auk þess sem þau eru organistar áðumefndra
kirkna.
Sóknarpresturinn sr. Halldóra J. Þorvarðardóttir fékk námsleyfi frá 1. september sl. til 31.
maí 2005 og nýtir leyfi sitt til að stunda nám við Lundarháskóla í Svíþjóð. Sr. Skírnir Garðar-
son leysir hana af sem sóknarprest í Fellsmúlaprestakalli þann tíma sem hún er fjarverandi og
sr. Halldór Gunnarsson sóknarprestur í Holti sinnir prófastsstörfum þann sama tíma.
I sóknarnefnd Marteinstungusóknar sitja Vilborg Gísladóttir formaður, Fosshólum,
Jóna Valdimarsdóttir, Raftholti og Ólafur Helgason, Pulu.
I sóknarnefnd Hagasóknar sitja Þórdís Ingólfsdóttir formaður, Kambi, Guðrún
Kjartansdóttir, Stúfholti og Guðni Guðmundsson, Þverlæk
I sóknarnefnd Skarðssóknar sitja Elínborg Sváfnisdóttir formaður, Hjallanesi, Margrét
Gísladóttir, Vindási og Sigríður Th. Sæmundsdóttir, Skarði.
í sóknarnefnd Árbæjarkirkju sitja Þórunn Ragnarsdóttir formaður, Rauðalæk, Jóna
Sveinsdóttir Meiri-Tungu og Valtýr Valtýsson Meiri-Tungu.
í sóknarnefnd Kálfholtskirkju sitja Jónas Jónsson, formaður, Kálfholti, Sveinn
Tyrfingsson Lækjartúni II og Jón Þorsteinsson Syðri-Hömrum II.
Halldóra J. Þorvarðardóttir, sóknarprestur
-116-