Goðasteinn - 01.09.2005, Blaðsíða 147
Goðasteinn 2005
Látnir 2004
búskapinn dafna. Hann var drífandi og ákveðinn, stundum nokkuð óvæginn við
sjálfan sig og varð þá beinskeyttur í fasi á köflum. Bak við yfirborðið sló hjarta af
gulli. Hann mátti ekki af neinu aumu heyra og var manna fyrstur til að reiða af
hendi sinn skerf til þeirra sem halloka stóðu. Hann var snöggur að rétta hjálpar-
hönd og var sanngjarn og bljúgur gagnvart öllu sínu samferðafólki, öðlingur í
öllum mannlegum samskiptum.
Áhugamál átti Bjarni ýmis. Hann var gæddur djúpri og sterkri söngrödd, sem
hann fór vel með. Hafði yndi af söng og tónlist, einnig mikinn áhuga á þjóð-
málum og sögu lands og þjóðar. Hann var mjög athugull og stálminnugur og hafði
sínar skoðanir á ýmsu sem athyglina vakti. Skoðanirnar voru jafnan hreinar og
ákveðnar og tjáðar með innlifun.
Bjami var maður spengilegur og léttur í spori.
Pund sitt ávaxtaði Bjarni vel. Hann var nægjusamur og hógvær varðandi eigin
þarfir og vildi helst láta fjölskylduna njóta ávaxta erfiðis síns. Frændrækni var
honum í blóð borin og hann fylgdist grannt med systkinum sínum. Það var mikið
áfall þegar bróðirinn Jón lést í árslok 2003 og má segja að skammt hafi verið á
milli þeirra bræðra, enda þeir ákaflega samrýmdir, þó um margt væru þeir ólflcir.
Systurnar tvær sem á lífi eru eru Guðríður Bjarnheiður á Skúmsstöðum og Sig-
ríður í Reykjavflk. Einnig uppeldissystirin Kristín Sigurðardóttir í Reykjavflc.
Dóttirin Halla hefur nú tekið við búrekstrinum ásamt sambýlismanni sínum,
Niklasi Hyström. Barnabörnin eru 4: Ársæll, Sigríður Linda, Bjarni Kristófer og
Jóhanna Sóldís.
Bjami gekk ekki heill til skógar seinust mánuðina sem hann lifði. Hann gerði
lítið úr sjúkdómi sínum og mætti örlögunum með æðruleysi og stillingu. Hann
andaðist á sjúkrahúsi í Reykjavflc þann 29. mars 2004 og fór útförin fram þann 3.
apríl. Húskveðja var á heimilinu í Bakkakoti að hefðbundnum sið, síðan var ekið
til Akureyjarkirkju í Vestur-Landeyjum. Þar fór útförin fram og var jarðsett í
Akureyjarkirkj ugarði.
Sr. Skírnir Gardarsson
Einar Sveinbjarnarson, Ysta-Skála,
Vestur-Eyjafjöllum
Einar fæddist að Ysta-Skála 11. nóvember 1928
foreldrum sínum, hjónunum Sveinbirni Jónssyni frá
Ásólfsskála og Sigríði Önnu Einarsdóttur frá Varma-
hlíð, og var hann yngstur í 12 systkina hópi en nú eru
þrjú þeirra eftirlifandi: Ásta, Garðar og Svava.
Heimilin þrjú á Ysta-Skála voru nær eins og heilt
-145-