Bændablaðið - 27.06.2024, Blaðsíða 52
52 Líf & starf Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2024
Eitt þeirra mætu kvenfélaga sem hér
á landi sitja er Kvenfélag Hringsins
sem hefur unnið óslitið að líknar- og
mannúðarmálum í áratugi.
Á sama tíma og hornsteinn
Landspítalans var lagður þann 19.
júní árið 1926 lagði Kvenfélagið
Hringurinn lokahönd á byggingu
Hressingarhælis Hringsins. Um ræddi
myndarlegt hús sem stóð á landi mitt
á milli Reykjavíkur og heilsuhælis
Vífilsstaða og samkvæmt grein 6.
tbl. íslenska kvennatímaritsins 19.
júní áætluðu félagskonur kvenfélags
Hringsins að þegar jörðin Kópavogur
losnaði úr ábúð hæfu þær þar búskap
Hressingarhælinu til handa. Gekk það
eftir og við tóku þó nokkrar úrbætur.
Túnið sléttað og ræktað upp, gripahús
reist og þar innan hýstar átta kýr, tveir
hestar og eitt hundrað hænsfuglar, en
búskapurinn var rekinn í 17 ár með
allnokkrum hagnaði.
Vegferð til aðstoðar bágstöddum
Fram að þessu höfðu þessar
myndarkonur unnið ötullega að söfnun
fjár til aðhlynningar berklaveiku fólki
en með dugnaði hafði þeim tekist að
láta byggja vandað hressingarhæli fyrir
sextíu sjúklinga. Var sú ákvörðun tekin
er í ljós kom, árið 1921, að ríkið tæki
við legukostnaði berklasjúklinga, en
brýn þörf var hins vegar á húsnæði
fyrir þá sjúklinga sem væru á batavegi
en ekki vinnuhæfir enn um sinn.
Þótti elja kvennanna framúrskarandi.
„Hringurinn hefir á liðnum árum lagt
fram mikið fé til hjálpar berklaveiku
fólki. En nú verður starf hans enn
meira, er hann sameinar það alt á
einum stað. Það er meira en lítill
dugnaður, sem Hringkonur hafa sýnt
í því að koma hælinu upp, og þeim er
trúandi til að gera hælið skemtilegt
og vistlegt heimili handa þeim, er
þar dvelja meðan þeir eru að ná fullri
heilsu“, segir í blaðagrein þessa tíma.
Á vefsíðu Kvenfélags Hringsins
kemur fram að fröken Kristín
Vídalín Jacobson, sem þarna stýrði
kvenfélaginu af myndugleik, hefði á
námsárum sínum í Kaupmannahöfn
legið sárþjáð í veikindum í um
hálft ár. Hét hún því að ef hún yrði
heilsuhraust á ný „... skyldi hún gera
það sem í hennar valdi stæði til að
bæta hag þeirra sem þyrftu að stríða
við veikindi og efnaleysi.“ - Kristín
sjálf kom af efnuðu fólki og naut þess
í veikindum sínum, en sá að þeir sem
minna máttu sín þyrftu aðstoðar við.
Þetta heit efndi hún og boðaði til
stofnfundar Hringsins þann 26. janúar
1904 í húsnæði Hússtjórnarskólans á
efri hæð í húsi Iðnaðarmannafélagsins
(Iðnó) við Tjörnina í Reykjavík.
Til liðs við Kristínu gengu alls 45
konur og hóf félagið vegferð sína til
aðstoðar bágstöddum. Var lögð áhersla
á ýmiss konar líknarstarfsemi, greitt
var undir legukostnað berklasjúklinga
og fengu bágstaddar sængurkonur
bæði mjólkurgjafir sem og barnaföt.
Fjármögnunin fór fram á þann hátt að
kvenfélagskonur héldu leiksýningar
sem þótti hin besta skemmtun, og líkt
og enn í dag, stóðu fyrir happdrætti,
mörkuðum og kaffisölu, svo eitthvað sé
nefnt, auk peningagjafa utan frá.
Stofnun Barnaspítalans
Árið 1940 greindi frétt Morgunblaðsins
frá því að nýverið hefði Kvenfélagið
Hringurinn gefið ríkissjóði hælið, að
ósk þess síðarnefnda – og fylgdu því
allir innanstokksmunir. Var hælið nýtt
sem holdsveikispítali og hæli vanvita
samkvæmt fréttum Morgunblaðs
áttunda áratugarins, en búið Kópavog
rak Hringurinn áfram þar til vorið 1948
þegar ríkið keypti það.
Þáttaskil urðu um þetta leyti í
starfsemi félagsins sem nú gerði það
að markmiði sínu að safna fjármunum
svo hægt væri að reisa barnaspítala.
Ákveðið var þó að halda enn hluta
fjármagns sem til safnaðist og veita í
þágu berklaveikra, en ríkust var þörfin
á spítala barnanna.
Seigla og kapp einkenndi næstu
ár þessara mætu kvenna sem hófu
þegar í stað viðræður við landlækni
og heilbrigðismálaráðherra um
möguleika á stofnun barnaspítala.
Lítið varð úr þeim viðræðum að sinni,
en nokkrum árum síðar, árið 1951,
tóku kvenfélagskonur upp þráðinn
og buðust til að leggja fram þann sjóð
er þeim hafði safnast, svokallaðan
Barnaspítalasjóð, í fyrirhugaða stækkun
Landspítalans – með þágu barna fyrir
augum. Varð svo úr að fyrst um sinn
voru Barnaspítala ráðstafaðar tvær
deildir og gaf Kvenfélagið Hringurinn
einnig allan útbúnað sem til þurfti þar
innan, til viðbótar við þær 7 milljónir
sem áður höfðu veist spítalanum.
Barnaspítali Hringsins var svo
tekinn í notkun sem sér álma árið 1965
og hefur kvenfélagið keypt þangað
allan búnað síðan, auk þess að taka
að sér að leggja til innanstokksmuni
og allan annan nauðsynlegan búnað
þegar geðdeild barna og unglinga
opnaði fimm árum síðar sem
göngudeild á Dalbraut. Kvenfélagið
hefur einnig veitt fjármunum sínum
til samfélags Sólheima í Grímsnesi,
skóla blindra og sjónskertra,
til Reykjadals, á gjörgæslu- og
nýburadeildir Landspítalans, til
Krabbameinsfélagsins, til náms-
styrkja hjúkrunarfólks og áfram mætti
lengi telja.
Árið 2002 færðu Hringskonur
Barnaspítalanum 200 milljónir króna
til kaupa á búnaði og byggingar nýs
húsnæðis sem vígt var ári síðar, á 99
ára afmæli kvenfélagsins við hátíðlega
athöfn. Öll starfsemin, bráðamóttaka
barna, barnadeildir í Fossvogi og
á Landspítalanum, vökudeildin,
göngudeild, dagdeild og önnur
starfsemi voru loks flutt í nýja húsið
þann 3. apríl 2003.
Í dag eru í Kvenfélagi Hringsins
vel á fjórða hundrað konur sem standa
keikar við fjáröflun enda verkefnin
ærin og starfið ósérhlíft á hæsta máta.
Nýjar fjáraflanir Hringsins
Aðspurð segir Anna Björk Eðvarðs-
dóttir, núverandi formaður Hringsins,
fjáraflanir þeirra Hringskvenna í
nokkuð föstum skorðum og oftar en
ekki tengdar jólunum, eins og margir
vita. Þar megi telja jólabasarinn,
jólakaffið og happdrættið í Hörpu sem
fer fram árlega, en einnig selji þær
jólakort, sem er mismunandi ár hvert.
„Svo má ekki gleyma Veitinga-
stofunni í anddyri Barnaspítala
Hringsins, sem við rekum,“ segir
Anna Björk brosandi. „Við erum
annars alltaf að leita nýrra tækifæra
til að safna í Barnaspítalasjóð. T.d.
hannaði Hildur Hafstein afar fallegt
hálsmen fyrir okkur, bæði úr gulli og
silfri, sem hefur slegið í gegn og einnig
létum við hanna jólanælu, sem er alltaf
vinsæl.
Hún bætir við að þær verði með
sölubás á Landsmóti hestamanna, nú
í annað skiptið. Selji þar handverk
Hringskvenna, aðallega úr íslenskum
lopa – peysur, sokka og þess háttar.
„Okkur var svo vel tekið á Hellu árið
2022 að það var engin spurning að vera
með aftur í ár og við erum mjög spenntar
að hitta Landsmótsgesti nú í júlí. Síðan
þegar líður á sumarið, einbeitum við
okkur að Reykjavíkurmaraþoninu, en
við höfum átt marga góða hlaupara,
sem hafa safnað frábærlega vel í
Barnaspítalasjóð,“ segir Anna og bætir
við að þær séu afar þakklátar fyrir
velvilja almennings í garð starfsins
og hvað þeim er alls staðar vel tekið.
Kvenfélagið Hringurinn:
Dugur og elja ofar öllu
Sigrún Pétursdóttir
sigrunpeturs@bondi.is
Stofnandi Kvenfélags Hringsins, fröken Kristín Vídalín Jacobson t.v. og
núverandi formaður, Anna Björk Eðvarðsdóttir.
Þær eru myndarlegar Hringskonur, en þær verða m.a. með sölubás á
Landsmóti hestamanna nú í júlí. Myndir / Aðsendar og timarit.is
Allur ágóði við sölu hálsmens
eftir skartgripahönnuðinn Hildi
Hafstein rennur óskiptur í Barna-
spítalasjóð Hringsins. Það fæst
m.a. í Epal og á vefsíðu Hringsins.
Hér má sjá brot af því sem fæst á jólabasar Hringsins á hverju ári.
Ísland
vill sjá þig
Eigum gott úrval jeppa
fyrir ævintýri sumarsins
Benni
Notaðir bílar
Notaðir bílar
Meira úrval á
notadir.benni.is
Bílabúð Benna
Krókhálsi 9
Reykjavík
590 2035