Bændablaðið - 27.06.2024, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2024 Skoðun
GLI ehf • gli.is • s. 899-4870
Lagnamyndavélar frá Vivax Metrotech
Vcam Drain er nýjasta vélin
18mm HD myndavél 20m barki
Frábær í 40mm rör,skiptanlegar myndavélar,
þolir 50°c og 11bar þrýsting
Verð kr. 588.000 +vsk.
LÍFRÆN SKOLP
HREINSISTÖÐ
• Hátt hreinsunarstig
• Lyktarlaus
• Einföld uppsetning
• Ekki þörf á siturlögnum
• Möguleiki á fjartengingu við upplýsingakerfi
vatnsvirkinn@vatnsvirkinn.is - Sími 510 1400 - www.vatnsvirkinn.is
• Stöðin kemur samsett og tilbúin til uppsetningar
Sunnudaginn 23. júní var árleg
Jónsmessuganga Félags skógar-
bænda á Suðurlandi. Að þessu sinni
var gengið um skóginn í Haukadal,
fallegan og fjölbreyttan skóg sem
byrjað var að planta í laust fyrir
miðja síðustu öld.
Það var danskur maður, Kristian
Kirk, sem hafði keypt jörðina og gaf
hana Skógrækt ríkisins árið 1940.
Haukadalsskógur er einn stærsti
þjóðskógur á Suðurlandi og þar
er aðstaða til útivistar mjög góð.
Mikið er af góðum göngustígum
í fallegum skóginum og á þremur
stöðum er grillaðstaða með borðum
og bekkjum auk snyrtiaðstöðu.
Böðvar Guðmundsson, sem
um langt árabil var skógarvörður í
Haukadal, leiddi gönguna og fræddi
göngufólk um sögu staðarins og
gróður og var sérlega gaman og
fróðlegt að hlusta á hann segja frá.
Fór hann í stuttu máli yfir sögu
Haukadals frá því stuttu eftir landnám
til vorra daga. Síðan sagði hann frá
gróðursetningum í skóginum og
frumkvöðlum skógræktar á svæðinu.
Böðvar er sjálfsagt sá maður sem
þekkir sögu skógræktar í Haukadal
best og var því sérstaklega gaman
að fá hann til liðs og taka að sér að
leiða gönguna.
Víða hefur verið komið upp
minnisvörðum um frumkvöðlana
og þá sem ruddu braut skógræktar
í Haukadal og gaman að kynnast
þeirri sögu. Meðal annars er stytta af
Kristian Kirk við innkomu í skóginn
og einnig er að finna minningarsúlur
sem Guðjón Kristinsson listamaður
hefur skorið meistaralega út í tré.
Að lokinni göngu var boðið upp
á ketilkaffi og volgar kleinur að
skógarmanna sið og fólk spjallaði og
naut samveru í fallegum skógarlundi.
Höfundur er Björn B. Jónsson,
formaður Skógarbænda á Suðurlandi.
Jónsmessuganga
í Haukadalsskógi
Minningarsúla í Haukadalsskógi eftir
Guðjón Kristinsson.
Göngugarparnir í Jónsmessugöngunni. Myndir / Jóhanna Róbertsdóttir
Sigurður Jónsson og Björn B. Jónsson.