Bændablaðið - 27.06.2024, Blaðsíða 56

Bændablaðið - 27.06.2024, Blaðsíða 56
56 Líf & starf Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2024 KROSSGÁTA Lausn á krossgátu í síðasta blaðiRÁNDÝR LITLAUS STRÍÐNI LÆSA HÖGG ÁSTAND BLANDA GEÐI VIÐ SKIPAST GREINAR- MUNUR TIL BAKA SKÁN FLETTA FITU- LÍTILL LEYFI ELDS- NEYTI TRAMPA AF- RAKSTUR HLYNNA AÐ TVEIR EINS GÆLUNAFN URMULL HAGURBETRUN ÆR SNÍKJUR NÓTA VÍÐUR TÍMABIL Í RÖÐ NÁTTA MASSI MULDUR SÆGUR MEGNAÐI ÞEYTAST FJAR- STÆÐA KATTAR- DÝR TROSSA EINFALT PLAN MÆLI- EINING TVEIR EINS MANNA- LÆTI POKA SKADDA PRÝÐA TJARA KVEIN- STAFIR EINKENNI ÚR HÓFI TÓNLIST MÁLHELTI LOFT- SIGLING SALTA KALLORÐ MERKIRÖND MEITLA TVEIR EINS ÖFUG RÖÐ Í RÖÐ ÆTTAR- SETUR SKAMMIR SÍÐDEIGI ORKA GLÓÐAR EILÍFAN H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S 222 ÁKEFÐ ANDLIT O REIST B ÞARFNAST KLEIF Þ BÆKLINGUR H FJÁLG- LEGUR VÆTA Á F L E Y G U R ÞUS EV S S I AÐHEFST G E R I R FORÐA- GJÁLFUR J A GÆFA GLEÐI G I F T A Ó SNYFSI ÁLÚT T U T L A MATJURT U VÍSUHLUTI HRÆDD KULDAÞEL B A N G I N HROTTI TVEIR EINS RITRÖÐ S S UPP- TALNINGSLÉTTA LKUSK VANDRÆÐI UNNA S L S K A BRÁÐRÆÐI HNAPPUR A N ÞÍÐA A F Í S A KYNNGIE A T A S T SÓLUNDA E Y Ð A KRAP PIRRAÐAR E L GBÖÐLAST G E L L A SKYLDIR Y GILDRA PÁSA S N A R A AKVERK- SIGI F F FERMA YFIRHÖFN ÚT K Á P A TIPL LEIÐBEINA T R Í T LTVEIR EINS Æ TVÍNÓNA EMJAR H I K A SKORDÝR LAUS F L U G A MJÖG D R Æ L N I GRÓÐUR- RÍKI ÓHLJÓÐI F L Ó R A RYK ÍLÁTI A RBRÍARÍ TRUFLUN I P A N FLÓNSKA Ó R Á Ð VAFRA TVÍHLJÓÐI R Á F AF N G I R Ð A A N FLATBAKA N P I Í R T TÓMUR S A A U MEIÐSLI Ð M U A R RGNAUÐA MAGRIR H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S 221 www.bbl.is Nú fara jafnvel eldavélafælnustu karlpungar landsins að taka sér stöðu við grillið. Pullur, ham- borgarar, svínalund í legi, svo ekki sé talað um ofurkryddaðar lærisneiðar – munu rata yfir gas- loga eða rjúkandi heita kolamola. En stundum, kannski einu sinni yfir hið ótrúlega stutta sumar okkar, dregst grillarinn inn í þyngdarafl stórsteikurinnar. Þá er jafngott og annað að velja Tomahawk-steik. Tomahawk-steik, sem hægt væri að kalla indíánaöxi á okkar ylhýra ef það telst pólitískt rétt, fær nafnið sitt frá útlitinu. Þetta er sum sé nautarifjarauga með áföstu rifbeini. Lítur svolítið út eins og fyrrgreint frumbyggjavopn. Rifið – beinið – hefur svo til engan tilgang annan en að það er gríðarlega töff að grilla steik með risastóru áföstu beini. Líka fallegt á diski reyndar. Kjötbragð er gott Indíánaaxar-steik er stór kjötbiti og eins og venjulegt rifjarauga eða ribeye er talsvert um fitu og tengivef í kjötbitanum. Það þarf því að hantera hann þannig að fitan nái aðeins að bráðna og tengivefurinn trosni aðeins. Hvort tveggja næst með því að elda stykkið á frekar lágum hita í svolítinn tíma. 40 mínútur – klukkutími ætti að duga við hita á bilinu 130–160 gráður. Fyrst þarf að þerra allan vökva af steikinni og salta vel. Salta meira en minna. Þetta er vonandi stórt kjötstykki. Láta kjötið ná sirka stofuhita áður en það fer á grillið. Tekur sirka klukkutíma. Akkúrat nægur tími fyrir saltið að komast aðeins undir yfirborðið. Þetta er dýr steik og því mjög ákjósanlegt að hafa mikið kjöt- bragð af steikinni þannig að salt og pipar er eina kryddið sem þarf en auðvitað smekksmál og undir grillaranum komið hvað fer á steikina. En piparinn og mögulega fleiri kryddtegundir fara ekki á fyrr en undir lokin. Grillblendingur Án þess að hafa gert á því vísindalega talningu get ég mér til að flestir grillarar landsins brúki gasgrill hvunndags. Það er ljómandi fínt, sér í lagi þegar verið er að grilla lítil stykki beint yfir eldinum. En þegar verið er að grilla stærri steikur við óbeinan eld þarf að gera eitthvað til að skapa smá reyk í gasgrillinu. Það er hægt á margan hátt; það eru til box fyrir spæni og hægt að brúka harðviðarkubba. En þar sem ekki er ætlunin að reykja kjötið í langan tíma er einfaldlega hægt að hita nokkur kol og setja í stóran álbakka. Stilla grillið fyrir óbeinan hita, þannig að kjötbitinn sé þeim megin sem enginn er eldurinn og setja svo heit, reykjandi kolin eldmegin á grillið. Passa að kolin séu heit og hafa því áhrif á hitann í grillinu. Elda með lokið á og passa að hitinn fari ekki mikið yfir 150 gráður. Lokahnykkurinn Gott að snúa steikinni einu sinni í hægelduninni. Tekur þykkan kjöbita sirka 45 mínútur að ná 50 gráðum í kjarnhita við svona miðlungs hita. Best að giska samt ekkert á hitastigið á stórsteikum og brúka hitamæli. Þegar steikin nær réttum hita í koluðum reyknum er komið að því að grilla. Það er, elda beint yfir eldinum. Gott að smyrja örlítið af hlutlausri olíu á steikina og pipra vel með nýmuldum pipar. Steikin tekur lengi við og því gott að nota meiri pipar en minni. Hita grillið í botn og elda stykkið þannig að á því myndist falleg skorpa. Passa samt að ekkert brenni. Því gott að snúa oft og muna að flippa ekki bara heldur snúa steikinni þannig að grillrendurnar snerti sem mest af steikinni. Þegar skorpan er orðin þroskuð og steikin komin í æskilegan kjarnhita, 55–60 gráður eða svo, þarf að hvíla hana vel. Að minnsta kosti í korter. Gott að strá góðu salti yfir steikina og jafnvel smjörklípu. Skera svo niður í strimla. Bera fram með einföldu meðlæti og tæknilega þarf enga sósu, þetta er djúsí stöff. Stór Tomahawk steik er nægur matur fyrir þrjá til fjóra matmagra – eða einn stóran strák. Matarkrókurinn: Stórkarlasteik Haraldur Jónasson haradlur@gmail.com Grilluð indíánaaxar-steik með grilluðum kartöflum, grilluðum maís og grilluðu spergilkáli. Myndir / Hari Steik og kol á gasgrilli. Tomahawk-steik á grilli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.