Bændablaðið - 27.06.2024, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2024 Skoðun
Stórhöfða 21, 110 Reykjavík | 545 5500 | flis@flis.is | flisabudin.is
Reykjabúið ehf, 271 Mosfellsbæ
Nánari upplýsingar veitir Jón Magnús,
reykjabuid@kalkunn.is
√ Reykjabúið ehf auglýsir eftir eftir starfsmanni
í almenn störf á fuglabúi.
√ Vinna við eldi á fuglum og hvað eina sem til fellur.
√ Fullt starf.
√ Æskilegt að viðkomandi hafi einhverja
reynslu í skepnuhirðingu.
√ Bílpróf.
Atvinna í boði
Reykjabúið ehf / Mosfellsbæ
Dýravelferð og hugmyndafræði
einnar heilsu: ábyrgð okkar allra
Velferð dýra er ófrávíkjanleg
krafa siðmenntaðs samfélags,
hvort sem um ræðir gæludýr eða
búfénað. Við berum ábyrgð á því
að dýrunum líði vel, þau búi við
góðar aðstæður og fái að njóta
lífsins. Bændur landsins, sá trausti
hópur sem vinnur af heilindum
og elju, vita að velferð dýra er
grundvallaratriði í öllu dýrahaldi.
Á Íslandi er staða búfjár almennt
góð. Kindur ganga frjálsar stóran
hluta ársins og kýr fá að njóta útiveru
á sumrin. Undir berum himni sýna
skepnurnar sitt eðlilega atferli sem
eykur lífsgæði þeirra til muna.
Þetta er eitthvað sem við eigum að
varðveita. Öll dýr eiga rétt á að lifa
lífi sem er laust við hungur, þjáningar
og sjúkdóma. Um þetta er skýrt
kveðið í lögum um dýravelferð.
Endurskoðun stefnu
og lagaumhverfis
Eftirlit með því að farið sé eftir
lögum um dýravelferð verður að
vera virkt og markvisst. Þegar upp
koma vafaatriði verður velferð
dýranna alltaf að hafa forgang. Öll
málsmeðferð þarf að vera vönduð og
ef dýr búa við slæmar aðstæður eiga
þau ætíð að njóta vafans.
Á síðustu árum hefur komið fram
að þörf sé á endurskoðun á ákveðnum
þáttum laga um velferð dýra. Ég hef
því sett af stað vinnu í því augnamiði
að styrkja stjórnsýslu á sviði
dýravelferðar og dýraheilbrigðis
og móta heildstæða stefnu fyrir
málaflokkinn. Markmiðið er að
skapa starfsumhverfi sem tryggir
yfirsýn yfir heilbrigði og velferð
dýra á sama tíma og við gerum enn
betur í eftirliti og aðgerðum sem
tryggja ábyrgt dýrahald.
Hugmyndafræði Einnar heilsu
Í nýlegri matvælastefnu er lögð
áhersla á að öll framleiðsla miði
að heilbrigðu umhverfi, heilbrigði
dýra og heilsu fólks. Til að ná
þessum markmiðum þarf heildstæða
stefnumótun um velferð dýra þar sem
horft er til hugmyndafræði „Einnar
heilsu“ (e. One Health), þar sem heilsa
manna, dýra og umhverfis mynda eina
heild. Með því að nálgast þessi mál
á heildstæðan hátt getum við stuðlað
að bættri heilsu fyrir okkur öll. Í haust
mun ég leggja fram þingmál þessu
tengdu.
Samtakamáttur, nýsköpun
og breytingar
Það er því bæði eftirsóknarvert og
æskilegt að gera betur í þessum
efnum hér á landi. Slíkum umbótum
er raunhæft að ná fram án þess að
knésetja íslenskan landbúnað enda
þarf ekki endilega mikið til þess að
búskapurinn verði enn heilnæmari
og í anda “einnar heilsu”.
Þegar við tryggjum dýrunum
betri aðstæður stuðlum við ekki
aðeins að betri líðan þeirra heldur
einnig að bættri heilsu okkar sjálfra
og umhverfisins. Það er því brýnt
að við setjum fram markvissa og
skýra stefnu sem tekur mið af því
að tryggja heilnæmt umhverfi,
heilbrigði dýra og betri heilsu
fólks. Með slíkri stefnumótun og
samstilltu átaki getum við skapað
samfélag þar sem velferð dýra og
heilsa okkar allra er í forgrunni.
Vanmetum ekki þann kraft sem
býr í samhentum aðgerðum og
sameiginlegu átaki.
Höfundur er matvælaráðherra.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir. Mynd / ál