Bændablaðið - 27.06.2024, Blaðsíða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2024 Fréttir
Niðurföll
SJÁ NÁNAR
Á LOFT.IS
fyrir bílaplanið, fyrir utan bílskúrinn eða í skemmuna
Þolir allt að 1,5 tonn
CLASS A15
Fótgangandi og
hjólreiðaumferð
CLASS B125
Einkabílastæði eða
minni bílaumferð
CLASS C250
Meiri bílaumferð
CLASS E600
Ætlað mikilli umferð,
t.d. hafnarsvæði
CLASS D400
Hraðbrautir, bílastæði
og öll ökutæki
FYRIR ALLAR AÐSTÆÐUR
Þolir allt að 12,5 tonn Þolir allt að 25 tonn Þolir allt að 40 tonn Þolir allt að 60 tonn
Sterkt,
létt, og
frostþolin
loft.is
Hjallabrekka 1 - Dalbrekkumegin 200 Kópavogur S: 564 3000
GIRÐINGAREFNI
Túngirðinganet I Gaddavír I Vírlykkjur
Girðingastaurar I Rafgirðingarefni
GIRÐINGAREFNI
OG HLIÐGRINDUR
Sjá verðlista
Margar stærðir í boði á flottu verði!
HLIÐGRINDUR MEÐ OG ÁN NETS
Athugið! BRETTATILBOÐá staurum!
Hleðslutæki
Vatnshitari
Hljóðeinangrun / veðurhlíf
GCCP mælaborð
Eldsneytistankur
Sjálfvirk
CAT RAM fjargæsla / fjarstart
Stuttur afgreiðslutími
CAT GC neyðarrafstöðvar
REYKJAVÍK HAFNARFJÖRÐUR AKUREYRI 590 5100
33 kVA - 1500 kVA
Hannaðar til að draga úr kostnaði og hámarka afköst
CAT GC neyðarrafstöðvar skila hinum þekktu afköstum CAT á
meðan þær draga úr uppsetningar-, flutnings- og rekstrarkostnaði.
Þær tryggja hagkvæmni og skilvirkni fyrir þig og þinn rekstur.
Hafðu samband við Sigurð Vilhjálmsson, sölustjóra, í
590 5126 eða sv@klettur.is, fyrir nánari upplýsingar.
Í apríl og maí í ár var úrskurðað
um ellefu íþyngjandi stjórnvalds-
ákvarðanir á sviði eftirlits með
dýravelferð og matvælaframleiðslu,
níu í apríl og tvær í maí.
Á Vesturlandi var kúabú svipt
mjólkursöluleyfi. Aðstæður í
mjólkurhúsi þóttu ekki uppfylla
kröfur laga og reglugerða og því var
búið svipt leyfi til mjólkurframleiðslu.
Settar voru kröfur á sauðfjárbú á
Vesturlandi og bændum á viðkomandi
búi gert að fækka fé sínu verulega
frá og með hausti 2024 vegna skorts
á getu. Jafnframt var gert skylt að
tryggja aðstoðarmann við sauðburð
vorið 2024.
Sviptur heimild til dýrahalds
Matvælastofnun (MAST) lagði
dagsektir á kúabónda á Norðvestur-
landi til að knýja á um úrbætur í
dýravelferð.
MAST kærði alvarlega vanrækslu á
nautgripum á býli á Norðvesturlandi til
lögreglu. Við eftirlit sem framkvæmt
var með aðstoð lögreglu fundust
29 dauðir nautgripir í gripahúsi.
Í kjölfarið aflífuðu starfsmenn
stofnunarinnar 21 grip til viðbótar á
staðnum sökum slæms ástands, allt
gripi sem voru hýstir í húsinu. Aðrir
nautgripir, sem hafði verið haldið úti
við, voru hýstir yfir nóttina, en síðan
voru þeir færðir til slátrunar daginn
eftir. Hræjum og skrokkum hefur
skv. upplýsingum MAST þegar verið
fargað á viðurkenndum urðunarstað.
Matvælastofnun svipti umráða-
manninn heimild til dýrahalds
tímabundið, eða þar til dómur fellur
í málinu. Í kæru til lögreglu gerir
stofnunin þá kröfu að umráðamaður
verði með dómi sviptur heimild til
að hafa búfé í umsjá sinni, versla
með þau eða sýsla með þau með
öðrum hætti. Málið er nú til frekari
rannsóknar hjá lögreglunni á
Norðurlandi vestra.
Kind, hross og slasaðir fuglar
Á Norðurlandi sektaði MAST
bónda vegna vanrækslu á kind. Í
kjölfar eftirlits sumarið 2023 fékk
viðkomandi bóndi stuttan frest til
að láta dýralækni líta á kind sem var
hölt jafnt á framfótum sem afturfótum
eða aflífa kindina ella. Bóndinn brást
ekki við fyrr en seint og um síðir.
Stjórnvaldssekt var lögð á hann að
upphæð 300.000 kr.
Á Suðurlandi gerði MAST kröfu
um að þrjú gömul hross á Suðurlandi
yrðu felld. Við eftirlit kom í ljós
óviðunandi ástand á hrossunum og
var eigandanum gert að fella þau.
Þá var sláturhús á Suðvesturlandi
sektað fyrir brot á velferð holda-
kjúklinga við slátrun. Starfsmenn
sláturhússins höfðu hengt sýnilega
slasaða fugla upp á sláturlínu en
samkvæmt reglugerð ber að aflífa
slíka fugla strax. Stjórnvaldssekt nam
150.000 kr.
Vægasta úrræði beitt
Meðalhófsregla stjórnsýslulaga
segir svo til um að þegar íþyngjandi
stjórnvaldsákvörðun er tekin skuli
beita vægasta úrræði sem völ er á og
er nægjanlegt til að ná því markmiði
sem er að stefnt (12. gr.).
/sá
MAST:
Íþyngjandi stjórnvalds-
ákvarðanir og sektir
– Ellefu mál í apríl og maí
Vel haldnar kindur í grösugum haga.
Mynd / GWT