Bændablaðið - 27.06.2024, Blaðsíða 38
38 Á faglegum nótum Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2024
Alls eru
fyrirtæki og
samtök frá 55
löndum aðilar að
ICAR nú og fer
stöðugt fjölgandi.
B led e r
fallegur 8 þús.
manna bær við
Bled-vatnið í
Efri-Karníólu í
Slóveníu. Bærinn liggur um 50
km norðvestan höfuðborgarinnar,
Ljubljana, við rætur Júlínönsku-
alpanna. Aðalatvinnuvegurinn
er ferðaþjónusta en á seinni
hluta 19. aldar reisti svissneski
náttúrulæknirinn Arnold Rikli
heilsuhæli við Bled-vatn sem
lagði að mörgu leyti grunn að
ferðaþjónustu dagsins í dag. Núna
eru nokkur stór og glæsileg hótel í
bænum og afþreyingarmöguleikar
miklir, eins og golf, hjólreiðar,
fjallgöngur, siglingar o.fl. Triglav-
þjóðgarðurinn er í nágrenni
bæjarins en hann dregur nafn
sitt af hæsta tindi Slóveníu og
Júlíönsku-alpanna, Triglav (2.864
m). Triglav mætti þýða á íslensku
sem Þríhöfði eða Þríhyrningur en
triglav þýðir þríhöfða.
Ráðstefnur ICAR eru mjög
oft í samvinnu og samstarfi við
aðalfund Interbull og svo var einnig
nú. Undirritaður sótti ráðstefnuna
fyrir hönd RML en að venju var um
fjölda erinda um hin ýmsu málefni
nautgriparæktarinnar að ræða.
Efnistök sem voru fyrirferðarmikil
að þessu sinni snúa að aukinni
notkun holdasæðis á mjólkurkýr
samhliða aukinni notkun á
kyngreindu sæði, loftslagsmálum
og sjálfbærni auk þess sem
gagnasamskipti og gagnamagn voru
einnig til umræðu. Hér á eftir og á
næstunni ætla ég að reyna að gera
nokkra grein fyrir þeim erindum
sem ég átti þess kost að hlýða á en
auðvitað er ómögulegt að fylgjast
með öllu þegar um samhliða
málstofur er að ræða. Í þessari
fyrstu frásögn beini ég sjónum
að sameiginlegum fundi Interbull
og ICAR fyrsta daginn sem hafði
yfirskriftina nýir eiginleikar.
Rauði þráðurinn þar sneri að
ræktun skilvirkari og úthaldsbetri
kúa þar sem kastljósinu var beint
að þunga kúnna, áti og metanlosun.
Erindi voru m.a. frá Bretlandi þar
sem menn hafa verið að skoða
notkun sláturupplýsinga til þess að
rækta kýr með betri fóðurnýtingu,
þ.e. framleiða fleiri kg mjólkur á
hvert kg fóðurs. Ástæðan er einkum
sú að erfitt er að nálgast gögn um
lífþunga kúa í þeim mæli að hægt sé
að nota í ræktunarstarfinu. Notaðar
voru upplýsingar um fallþunga,
holdfyllingar- og fituflokkun. Í
ljós kom að arfgengi fyrir fallþunga
var 0,79, sem er ótrúlega hátt, en
þess ber að geta að í gagnasafninu
voru bæði mjólkur- og holdakýr.
Arfgengi á holdfyllingarflokkun
var 0,32 og á fituflokkun 0,36.
Meðalkjötprósenta í gagnasafninu
var 52% og áhrif kjötmats, daga
frá burði og aldurs voru nokkur á
kjötprósentuna.
Breytileiki í þunga jókst eftir því
sem lengra leið frá burði. Samband
lífþunga og fallþunga reyndist vera;
lífþungi = 286 + 1,1 * fallþungi.
Höfundar sögðu nauðsynlegt að
hreinsa gögnin vel, setja t.d. mörk á
daga frá burði við 400 daga og fram
kom að tilfinnanlega vantar ástæðu
förgunar til þess að geta hreinsað
út sjúkar kýr sem skekkja gögnin
vegna óeðlilega lítils fallþunga.
Danir, Finnar og Svíar kynntu
verkefni á vegum norræna kynbóta-
matsins (NAV) sem gengur út á
erfðamat fyrir efnaskiptaþunga.
Efnaskiptaþungi er fall af lífþunga
og er sambandið nálægt því að vera;
efnaskiptaþungi = lífþungi 0,75.
Eins og margoft hefur komið fram er
neikvætt samband milli lífþunga og
ýmissa framleiðslueiginleika sem
endurspeglast kannski best í því að
stórar kýr þurfa meira magn fóðurs
til viðhalds en minni kýr án þess að
mjólka meira. NAV stendur frammi
fyrir þeim vanda að upplýsingar
um lífþunga er takmarkaðar og
fara minnkandi en hins vegar er
aðgengi að gögnum um fallþunga
gott. Fram kom að fylgni fall- og
efnaskiptaþunga er há, eða 0,77-
0,85 eftir kúakynjum. Arfgengi
fallþunga reyndist vera 0,56 hjá
Holstein og rauðum kúm en 0,37
hjá Jersey-kúm. Meginniðurstaðan
var sú að notkun sláturgagna við
erfðamat fyrir fóðurnýtingu eykur
öryggi matsins og minnkar skekkju
þannig að erfðamat fyrir þennan
eiginleika er betra en áður. Þetta er
áreiðanlega eitthvað sem við getum
dregið ákveðinn lærdóm af við
þróun erfðamats fyrir fóðurnýtingu
íslenskra kúa.
Karoline Bakke hjá Geno í
Noregi kynnti erfðafræðilegt
samband þurrefnisáts, lífþunga
og framleiðslu iðrametans í
norskum mjólkurkúm (NRF).
Í rannsókninni var þurrefnisát
og lífþungi borið saman við
metanlosun kúnna með það að
markmiði að bæta fóðurnýtingu
og minnka metanlosun. Gögnum
var safnað á 25 búum í Noregi
á síðustu fjórum árum, alls 452
þús. mælingar á ríflega 2 þús.
kúm. Helstu niðurstöður voru
að meðalosun metans var 418 g/
dag, meðallífþungi var 607 kg
og meðalát 20,4 kg þurrefnis/
dag. Arfgengi fyrir losun metans
reyndist vera 0,39, 0,57 fyrir
lífþunga og 0,29 fyrir þurrefnisát.
Arfgengi fyrir þurrefnisát mældist
hærra þegar keyrt var tvíbreytulíkan
með losun metans sem þýðir að
mælingar á metanlosun geta komið
að gagni við kynbætur fyrir betri
fóðurnýtingu. Karoline tók fram að
rannsókninni væri ekki lokið og t.d.
þyrfti að taka tillit til nythæðar þar
sem aukinni nyt fylgdi meiri losun
vegna aukinnar fóðurumsetningar.
Meginniðurstaðan var þó í takt við
aðrar rannsóknir, þyngri kýr ->
meira át -> meiri losun.
Frá Háskólanum í Wageningen
og CRV í Hollandi kom athyglisvert
erindi þar sem markmiðið var að
skoða hvort kynbæta mætti hraustar
kýr fyrir enn meiri hreysti. Skoðuð
var seigla (resilience) kúnna sem
skýra má þannig að aukin seigla
þýði að kýrnar jafna sig hraðar eftir
áföll eins og t.d. júgurbólgu.
Í rannsókninni var seigla
metin sem munur milli væntrar
dagsframleiðslu mjólkur og
raunverulegrar. Þannig er munurinn
lítill hjá kúm með mikla seiglu en
Frá ráðstefnu ICAR í Bled í Slóveníu
–1. hluti
Guðmundur
Jóhannesson.
Árleg ráðstefna og aðalfundur ICAR (International Committee for
Animal Recording) voru haldin í Bled í Slóveníu dagana 19.-24. maí
sl. Þessi samtök eru á heimsvísu og láta sig varða allt sem við kemur
skýrsluhaldi og skráningum búfjár og má þar nefna staðla fyrir
skýrsluhald og rafræn samskipti, arfgreiningar, efnamælingar á mjólk,
sæðisgæði og svo mætti áfram telja.
Bled er fallegur átta þúsund manna bær við Bled-vatnið í Efri-Karníólu í Slóveníu, en bærinn liggur um 50 km
norðvestan höfuðborgarinnar, Ljubljana, við rætur Júlínönsku-alpanna. Mynd / Aðsend
honda@byko.is | 821-4034
HONDA
GARÐVERKFÆRI
FÁST Í BYKO
FAGVERSLUN
SELHELLU 1
Sölutengiliður
Gunnar Ólason
AUGLÝSING UM SKIPULAG
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
Sveitarfélagið Borgarbyggð auglýsir eftirfarandi
skipulagsáætlun sem samþykkt hefur verið til auglýsingar.
Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð.
Sigmundarstaðir – Mælimastur á Grjóthálsi
(L134748) – Nýtt deiliskipulag
Ofangreind skipulagsáætlun eru kynnt í skipulagsgátt
Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is)
mál nr. 245/2024 og aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar
undir skipulagsauglýsingar.
Tillagan er í kynningu frá 20.06 til og með 08.08.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að
gæta er gefinn kostur á gera athugasemd við tillögur á
kynningartíma í gegnum skipulagsgáttina.
Ef óskað er nánari kynningu á málum þarf að panta tíma hjá
skipulagsfulltrúa.