Bændablaðið - 27.06.2024, Page 38

Bændablaðið - 27.06.2024, Page 38
38 Á faglegum nótum Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2024 Alls eru fyrirtæki og samtök frá 55 löndum aðilar að ICAR nú og fer stöðugt fjölgandi. B led e r fallegur 8 þús. manna bær við Bled-vatnið í Efri-Karníólu í Slóveníu. Bærinn liggur um 50 km norðvestan höfuðborgarinnar, Ljubljana, við rætur Júlínönsku- alpanna. Aðalatvinnuvegurinn er ferðaþjónusta en á seinni hluta 19. aldar reisti svissneski náttúrulæknirinn Arnold Rikli heilsuhæli við Bled-vatn sem lagði að mörgu leyti grunn að ferðaþjónustu dagsins í dag. Núna eru nokkur stór og glæsileg hótel í bænum og afþreyingarmöguleikar miklir, eins og golf, hjólreiðar, fjallgöngur, siglingar o.fl. Triglav- þjóðgarðurinn er í nágrenni bæjarins en hann dregur nafn sitt af hæsta tindi Slóveníu og Júlíönsku-alpanna, Triglav (2.864 m). Triglav mætti þýða á íslensku sem Þríhöfði eða Þríhyrningur en triglav þýðir þríhöfða. Ráðstefnur ICAR eru mjög oft í samvinnu og samstarfi við aðalfund Interbull og svo var einnig nú. Undirritaður sótti ráðstefnuna fyrir hönd RML en að venju var um fjölda erinda um hin ýmsu málefni nautgriparæktarinnar að ræða. Efnistök sem voru fyrirferðarmikil að þessu sinni snúa að aukinni notkun holdasæðis á mjólkurkýr samhliða aukinni notkun á kyngreindu sæði, loftslagsmálum og sjálfbærni auk þess sem gagnasamskipti og gagnamagn voru einnig til umræðu. Hér á eftir og á næstunni ætla ég að reyna að gera nokkra grein fyrir þeim erindum sem ég átti þess kost að hlýða á en auðvitað er ómögulegt að fylgjast með öllu þegar um samhliða málstofur er að ræða. Í þessari fyrstu frásögn beini ég sjónum að sameiginlegum fundi Interbull og ICAR fyrsta daginn sem hafði yfirskriftina nýir eiginleikar. Rauði þráðurinn þar sneri að ræktun skilvirkari og úthaldsbetri kúa þar sem kastljósinu var beint að þunga kúnna, áti og metanlosun. Erindi voru m.a. frá Bretlandi þar sem menn hafa verið að skoða notkun sláturupplýsinga til þess að rækta kýr með betri fóðurnýtingu, þ.e. framleiða fleiri kg mjólkur á hvert kg fóðurs. Ástæðan er einkum sú að erfitt er að nálgast gögn um lífþunga kúa í þeim mæli að hægt sé að nota í ræktunarstarfinu. Notaðar voru upplýsingar um fallþunga, holdfyllingar- og fituflokkun. Í ljós kom að arfgengi fyrir fallþunga var 0,79, sem er ótrúlega hátt, en þess ber að geta að í gagnasafninu voru bæði mjólkur- og holdakýr. Arfgengi á holdfyllingarflokkun var 0,32 og á fituflokkun 0,36. Meðalkjötprósenta í gagnasafninu var 52% og áhrif kjötmats, daga frá burði og aldurs voru nokkur á kjötprósentuna. Breytileiki í þunga jókst eftir því sem lengra leið frá burði. Samband lífþunga og fallþunga reyndist vera; lífþungi = 286 + 1,1 * fallþungi. Höfundar sögðu nauðsynlegt að hreinsa gögnin vel, setja t.d. mörk á daga frá burði við 400 daga og fram kom að tilfinnanlega vantar ástæðu förgunar til þess að geta hreinsað út sjúkar kýr sem skekkja gögnin vegna óeðlilega lítils fallþunga. Danir, Finnar og Svíar kynntu verkefni á vegum norræna kynbóta- matsins (NAV) sem gengur út á erfðamat fyrir efnaskiptaþunga. Efnaskiptaþungi er fall af lífþunga og er sambandið nálægt því að vera; efnaskiptaþungi = lífþungi 0,75. Eins og margoft hefur komið fram er neikvætt samband milli lífþunga og ýmissa framleiðslueiginleika sem endurspeglast kannski best í því að stórar kýr þurfa meira magn fóðurs til viðhalds en minni kýr án þess að mjólka meira. NAV stendur frammi fyrir þeim vanda að upplýsingar um lífþunga er takmarkaðar og fara minnkandi en hins vegar er aðgengi að gögnum um fallþunga gott. Fram kom að fylgni fall- og efnaskiptaþunga er há, eða 0,77- 0,85 eftir kúakynjum. Arfgengi fallþunga reyndist vera 0,56 hjá Holstein og rauðum kúm en 0,37 hjá Jersey-kúm. Meginniðurstaðan var sú að notkun sláturgagna við erfðamat fyrir fóðurnýtingu eykur öryggi matsins og minnkar skekkju þannig að erfðamat fyrir þennan eiginleika er betra en áður. Þetta er áreiðanlega eitthvað sem við getum dregið ákveðinn lærdóm af við þróun erfðamats fyrir fóðurnýtingu íslenskra kúa. Karoline Bakke hjá Geno í Noregi kynnti erfðafræðilegt samband þurrefnisáts, lífþunga og framleiðslu iðrametans í norskum mjólkurkúm (NRF). Í rannsókninni var þurrefnisát og lífþungi borið saman við metanlosun kúnna með það að markmiði að bæta fóðurnýtingu og minnka metanlosun. Gögnum var safnað á 25 búum í Noregi á síðustu fjórum árum, alls 452 þús. mælingar á ríflega 2 þús. kúm. Helstu niðurstöður voru að meðalosun metans var 418 g/ dag, meðallífþungi var 607 kg og meðalát 20,4 kg þurrefnis/ dag. Arfgengi fyrir losun metans reyndist vera 0,39, 0,57 fyrir lífþunga og 0,29 fyrir þurrefnisát. Arfgengi fyrir þurrefnisát mældist hærra þegar keyrt var tvíbreytulíkan með losun metans sem þýðir að mælingar á metanlosun geta komið að gagni við kynbætur fyrir betri fóðurnýtingu. Karoline tók fram að rannsókninni væri ekki lokið og t.d. þyrfti að taka tillit til nythæðar þar sem aukinni nyt fylgdi meiri losun vegna aukinnar fóðurumsetningar. Meginniðurstaðan var þó í takt við aðrar rannsóknir, þyngri kýr -> meira át -> meiri losun. Frá Háskólanum í Wageningen og CRV í Hollandi kom athyglisvert erindi þar sem markmiðið var að skoða hvort kynbæta mætti hraustar kýr fyrir enn meiri hreysti. Skoðuð var seigla (resilience) kúnna sem skýra má þannig að aukin seigla þýði að kýrnar jafna sig hraðar eftir áföll eins og t.d. júgurbólgu. Í rannsókninni var seigla metin sem munur milli væntrar dagsframleiðslu mjólkur og raunverulegrar. Þannig er munurinn lítill hjá kúm með mikla seiglu en Frá ráðstefnu ICAR í Bled í Slóveníu –1. hluti Guðmundur Jóhannesson. Árleg ráðstefna og aðalfundur ICAR (International Committee for Animal Recording) voru haldin í Bled í Slóveníu dagana 19.-24. maí sl. Þessi samtök eru á heimsvísu og láta sig varða allt sem við kemur skýrsluhaldi og skráningum búfjár og má þar nefna staðla fyrir skýrsluhald og rafræn samskipti, arfgreiningar, efnamælingar á mjólk, sæðisgæði og svo mætti áfram telja. Bled er fallegur átta þúsund manna bær við Bled-vatnið í Efri-Karníólu í Slóveníu, en bærinn liggur um 50 km norðvestan höfuðborgarinnar, Ljubljana, við rætur Júlínönsku-alpanna. Mynd / Aðsend honda@byko.is | 821-4034 HONDA GARÐVERKFÆRI FÁST Í BYKO FAGVERSLUN SELHELLU 1 Sölutengiliður Gunnar Ólason AUGLÝSING UM SKIPULAG Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar Sveitarfélagið Borgarbyggð auglýsir eftirfarandi skipulagsáætlun sem samþykkt hefur verið til auglýsingar. Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð. Sigmundarstaðir – Mælimastur á Grjóthálsi (L134748) – Nýtt deiliskipulag Ofangreind skipulagsáætlun eru kynnt í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is) mál nr. 245/2024 og aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar undir skipulagsauglýsingar. Tillagan er í kynningu frá 20.06 til og með 08.08. Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á gera athugasemd við tillögur á kynningartíma í gegnum skipulagsgáttina. Ef óskað er nánari kynningu á málum þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.