Bændablaðið - 27.06.2024, Qupperneq 51

Bændablaðið - 27.06.2024, Qupperneq 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2024 Skoðun Stórhöfða 21, 110 Reykjavík | 545 5500 | flis@flis.is | flisabudin.is Reykjabúið ehf, 271 Mosfellsbæ Nánari upplýsingar veitir Jón Magnús, reykjabuid@kalkunn.is √ Reykjabúið ehf auglýsir eftir eftir starfsmanni í almenn störf á fuglabúi. √ Vinna við eldi á fuglum og hvað eina sem til fellur. √ Fullt starf. √ Æskilegt að viðkomandi hafi einhverja reynslu í skepnuhirðingu. √ Bílpróf. Atvinna í boði Reykjabúið ehf / Mosfellsbæ Dýravelferð og hugmyndafræði einnar heilsu: ábyrgð okkar allra Velferð dýra er ófrávíkjanleg krafa siðmenntaðs samfélags, hvort sem um ræðir gæludýr eða búfénað. Við berum ábyrgð á því að dýrunum líði vel, þau búi við góðar aðstæður og fái að njóta lífsins. Bændur landsins, sá trausti hópur sem vinnur af heilindum og elju, vita að velferð dýra er grundvallaratriði í öllu dýrahaldi. Á Íslandi er staða búfjár almennt góð. Kindur ganga frjálsar stóran hluta ársins og kýr fá að njóta útiveru á sumrin. Undir berum himni sýna skepnurnar sitt eðlilega atferli sem eykur lífsgæði þeirra til muna. Þetta er eitthvað sem við eigum að varðveita. Öll dýr eiga rétt á að lifa lífi sem er laust við hungur, þjáningar og sjúkdóma. Um þetta er skýrt kveðið í lögum um dýravelferð. Endurskoðun stefnu og lagaumhverfis Eftirlit með því að farið sé eftir lögum um dýravelferð verður að vera virkt og markvisst. Þegar upp koma vafaatriði verður velferð dýranna alltaf að hafa forgang. Öll málsmeðferð þarf að vera vönduð og ef dýr búa við slæmar aðstæður eiga þau ætíð að njóta vafans. Á síðustu árum hefur komið fram að þörf sé á endurskoðun á ákveðnum þáttum laga um velferð dýra. Ég hef því sett af stað vinnu í því augnamiði að styrkja stjórnsýslu á sviði dýravelferðar og dýraheilbrigðis og móta heildstæða stefnu fyrir málaflokkinn. Markmiðið er að skapa starfsumhverfi sem tryggir yfirsýn yfir heilbrigði og velferð dýra á sama tíma og við gerum enn betur í eftirliti og aðgerðum sem tryggja ábyrgt dýrahald. Hugmyndafræði Einnar heilsu Í nýlegri matvælastefnu er lögð áhersla á að öll framleiðsla miði að heilbrigðu umhverfi, heilbrigði dýra og heilsu fólks. Til að ná þessum markmiðum þarf heildstæða stefnumótun um velferð dýra þar sem horft er til hugmyndafræði „Einnar heilsu“ (e. One Health), þar sem heilsa manna, dýra og umhverfis mynda eina heild. Með því að nálgast þessi mál á heildstæðan hátt getum við stuðlað að bættri heilsu fyrir okkur öll. Í haust mun ég leggja fram þingmál þessu tengdu. Samtakamáttur, nýsköpun og breytingar Það er því bæði eftirsóknarvert og æskilegt að gera betur í þessum efnum hér á landi. Slíkum umbótum er raunhæft að ná fram án þess að knésetja íslenskan landbúnað enda þarf ekki endilega mikið til þess að búskapurinn verði enn heilnæmari og í anda “einnar heilsu”. Þegar við tryggjum dýrunum betri aðstæður stuðlum við ekki aðeins að betri líðan þeirra heldur einnig að bættri heilsu okkar sjálfra og umhverfisins. Það er því brýnt að við setjum fram markvissa og skýra stefnu sem tekur mið af því að tryggja heilnæmt umhverfi, heilbrigði dýra og betri heilsu fólks. Með slíkri stefnumótun og samstilltu átaki getum við skapað samfélag þar sem velferð dýra og heilsa okkar allra er í forgrunni. Vanmetum ekki þann kraft sem býr í samhentum aðgerðum og sameiginlegu átaki. Höfundur er matvælaráðherra. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir. Mynd / ál
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.