Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2023, Blaðsíða 237
Það hefði verið áhugavert að sjá höfund nýta fyrri vinnu fræðimanna til að
byggja á og að setja fram hnitmiðaðri rannsókn á örnefnum og öðrum hugsanleg-
um ummerkjum um keltneskt fólk hér á landi. Þess í stað flakkar hann á milli
svæða, landa og tímabila án þess að tengja eitt við annað á sannfærandi hátt. Hann
nefnir Boudiccu (Bódíseu) (bls. 54) og drúíða jafnt og skrif Júlíusar Sesars og
annarra klassískra rithöfunda sem skrifuðu um fornsögu Kelta (bls. 11 og 77).
Slíkt efni er vitaskuld alls óviðkomandi landnámi Íslands. Það þarf ekki heldur að
fara í grafgötur með það að tungumál þeirra var ákaflega frábrugðið þeirri gelísku
sem töluð var á landnámstímabilinu.
Það má nefna í framhjáhlaupi að Þorvaldur reynir að tengja Írland við áletrun
á klukku sem var í eigu langömmu systur Jóns Steingrímssonar eldklerks (1728–
91) (Eldmessa). Á klukkunni var latnesk áletrun Vox mea est bamba, possum depell-
ere Satan ‘Nafn mitt er Bamba, ég get rekið Satan út’ (bls. 21). Höfundur heldur
því fram að nafnið Bamba sé vísun til forns nafns á Írlandi en yfirsést að það er
Banba en ekki Bamba. Þar fyrir utan er tæplega unnt að ímynda sér að einstak-
lingur á seinni hluta 18. aldar hafi verið að ákalla Írland til þess að reka Satan út.
Líklegast er að bamba sé hljóðlíking og merki einfaldlega ‘bjölluhljómur’.
Í bók þeirri sem hér hefur verið fjallað um er boðið upp á framhald af goð -
sagnakenndri upprunasögu landnámstíma Íslands frekar en fræðilega um ræðu.
Margir — og þar á meðal fræðimenn — hafa lengi óskað eftir að finna frekari
sannanir fyrir þeirri tilgátu að írskumælandi fólk hafi verið fjölmennara á Íslandi
en venjulega er talið. Þessi bók uppfyllir ekki þá ósk. Á tímum falsfrétta og
rangra upplýsinga er þetta bók sem allir sómakærir fræðimenn munu vísast leiða
hjá sér. Hinn almenni lesandi ætti líka að forðast þessa bók þar sem hún er vægast
sagt byggð á mjög ótraustum grunni. Því miður var sú vinna sem lögð var í útgáf-
una ekki fyrirhafnarinnar virði.
heimildir
Agnar Helgason, Sigrún Sigurðardóttir, Jeffrey R. Gulcher, Ryk Ward og Kári Stefánsson.
2000. mtDNA and the origin of the Icelanders: deciphering signals of recent popula-
tion history. American Journal of Human Genetics 66, bls. 999–1016. <https://doi.org/
10.1086/302816>.
Callaway, Ewen. 2012. Iceman’s DNA reveals health risks and relations. Nature. <https://
doi.org/10.1038/nature.2012.10130>.
Eldmessa. <http://www.eldmessa.is/eldmessa/23/>. [Sótt 16/4/2023.]
Félag starfsfólks bókaverslana. <https://www.wikiwand.com/is/Bókmenntaverðlaun_starfs
fólks_bókaverslana>. [Sótt 10/4/2023.]
Forlagið. <https://www.forlagid.is/metsolulistinn/>. [Sótt 10/4/2023.]
Helgi Guðmundsson. 1997. Um haf innan: vestrænir menn og íslenzk menning á miðöldum.
Háskólaútgáfan, Reykjavík.
Keller, Andreas, Angela Graefen, Markus Ball, Mark Matzas, Valesca Boisguerin, Frank
Maixner, Petra Leidinger, Christina Backes, Rabab Khairat, Michael Forster, Björn
Stade, Andre Franke, Jens Mayer, Jessica Spangler, Stephen McLaughlin, Minita
Ritdómar 237