Víðförli - 01.03.1947, Page 3

Víðförli - 01.03.1947, Page 3
VIÐFORLI TÍMARIT UM GUÐFRÆÐI OG IvIRKJUMÁL RITSTJÓRI SIGURBJÖRN EINARSSON 1. árg. - jan.—marz 19^7 - 1. hefti r------------------------------------------------------------------------^ Víðförli óskar öllum, sem á vegi hans verða, friðar og heilla. Fvrir tíu öldum langdrægt bar það til, að íslenzkur víkingur tók ,,trú rétta", gekk Kristi konungi á hönd. Þorvaldur hét hann, kallaður hinn víðförli. Hann tókst á hendur ,,að prédika Guðs erindi" fyrir þjóð sinni svo sem segir í scgu hcns. Þetta góða erindi vill Víðförli sá, sem hér er á veg kominn, styðja og flytja. Hann vill rækja minningu þeirra, sem dýpst hafa höndlazt af því og af mestri hollustu farið með ,,dóm inn dýra" í landi Þor- valdar frá Giljá. Þorvaldur kvaddi forðum með sér saxneskan biskup góðan og reyndist hann betrungur Islendingsins. Öldum síðar var sá maður uppi í landi Friðreks biskups, Marteinn Lúther, er að voru áliti hefur betur flutt Guðs erindi en aðrir, síðan á dögum frumkristni. Islenzk kristni kennir sig við hann, játar með því, að hans skilningi vilji hún einkum hlíta um það, hvað sé trú rétt. Víðförli vill því leggja áherzlu á að kynna tímabær lúthersk sjónar- mið. Hann mun gera sér far um að skýra frá umræðum og viðhorfum guðfræðivísinda samtímans, kynna merk ritverk erlendra guðfræðinga og geta þess, sem tíðindum sætir í kirkju- og trúarlífi annarra þjóða. Hann mun og taka til umræðu trúarleg og kirkjuleg dagskrármál innlend. Víðförli verður ekki tíður gestur að sinni, væntanlegur tvisvar á missiri hverju. En hann vonar að hafa nokkuð gott meðferðis hverju sinni. Góðir menn, innlendir og erlendir, hafa heitið honum fulltingi til þess. Víðförli vonar að geta hjálpað einhverjum til þess að hugsa sér til gagnsmuna um hin brýnustu málefni. Þakklátur mun hann verða fyrir allar röksamlegar umræður um málflutning sinn og þiggja rökstudda gagnrýni með þökkum. Veri GuS í verki hans. RITSTIÓRINN

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.