Víðförli - 01.03.1947, Síða 13

Víðförli - 01.03.1947, Síða 13
TRU OG VERK 11 hvað sá eigi að forðast og hvað að ástunda. sem óttast og elskar Guð, þ. e. trúir. Þessi einfalda, innblásna túlkun fyrir börn á lögmáli Guðs, þar sem kærleiksboðorð Krists er ævinlega í baksýn, er næg til úrskurðar um það, hvort breytnin verður út undan hjá Lúther. Söm verður niðurstaðan af lestri annarra rita hans. Úr prédikun- um hans t. d. mætti tína til útlistanir og ummæli eins lengi og vera vill, sem sýna, að hann prédikar skyldur kristins manns svo sem fáir hafa framar gert, prédikar jöfnum höndurn trú og breytni, hvort tveggja er eitt og hið sama frá sjónarmiði hans og verður ekki aðskilið. Enda hefði hann verið lakari lærisveinn Páls postula en hann var, ef þessu væri á hinn veginn farið. H ér skulu tekin fáein dæmi úr prédikunum Lúthers, valin af handahófi, til vísbendingar um það, hvernig hann lítur á samband trúar og verka. „í guðspjöllunum er tvennt, sem oss ber að ilniga og muna: í fyrsta lagi verk Krists, sem oss eru gefin að gjöf og til eignar. í öðru lagi þessi sömu verk, sem oss eru gefin til fordæmis og fyrirmyndar, sem vér eigum að fylgja og líkja eftir“. „Sáluhjálp þín sprettur ekki af því, að þú trúir, að Ki'istur sé Kristur fyrir þá, sem guðræknir eru, heldur að þú trúir. að hann sé Ivristur fyrir þig og að hann sé þinn. Þá fylgir kær- leikurinn og góðverkin á eftir án þvingunar. En fylgi þetta ekki eftir, þá er vissulega ekki um neina trú að ræða“. „Vér tökurn á móti Kristi ekki aðeins sem gjöf í trúnni, held- ur Iíka sem fordæmi í kærleikanum til náungans, sem vér eig- um að gera gott, eins og Kristur gerir oss gott. Trúin færir þér og gefur Krist og öll hans gæði til eignar, kærleikurinn gefur þig náunganum með öllum gæðum þínum. Þetta tvennt felur í sér allt, sem kristilegu lífi heyrir“. (1. sd. í aðv.) „Vér eigum að prísa trúna og iðka kærleikann og draga þessa tvo lærdóma af guðspjallinu: að trúa og að elska. Trúin tekur á móti góðverkum Krists, kærleikurinn gerir góðverk á ná- unganum. Ilið kristilega líf er fólgið í trú á Guð og velgerðum og kærleika við nauðlíðandi náunga“.

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.