Víðförli - 01.03.1947, Qupperneq 17

Víðförli - 01.03.1947, Qupperneq 17
TRU 00 VERIv 15 Svo fast er að orði kveðið — af manninum, sem var „á móti góðverkum“. Trúin er ónýt án verkanna, „dauð í sjálfri sér, vanti hana verkin“, eins og postulinn sagði forðum. En hitt var ekki síður sannfæring Lúthers, að verkin væru ónýt og’ dauð án trúar. Dauð verk eru engu betri eða hjálpsamlegri en dauð játning. Hvað ber til? Hér er kjarnaatriði í trúarskilningi Lúthers. Frumsynd mannsins, sú, sem öll synd sprettur af, er sjálfs- elskan, eiginhyggjan, sérg’irnin. Allt hverfist um sjálfan hann, í stað þess að Guð, skapari hans og líf, ætti að vera mið og möndull hjarta hans og hugar. Þetta mótar líka hina „náttúr- legu" siðgæðisafstöðu mannsins. Og þetta mótar, að skoðun Lúthers, siðfræði páfakirkjunnar. Trúarlífið, guðræknin, breytn- in, — þetta er ekkert annað en dulbúin sjálfselska og eigingirni. Menn leita ekki Guðs, hlýða ekki eða þjóna Guði hans vegna, heldur sjálfs sín vegna. Menn gera e'kki það, sem gott er, vegna þess að það er gott, heldur vegna þess, að það hefur gott í för með sér. Menn snúa sér ekki frá villu eða illsku fyrir sakir sannleikans eða hins góða, heldur vegna þess, að þeir hyggjast að græða á því, ávinna sér himneskar hagsbætur. „Jafnvel í himn- inum leita þeir síns eigin og eigin ávinnings“, segir Lúther. Þeg- ar maður breytir vel í ábata skyni, til þess að komast hjá hegningu eða vinna til launa, þá er breytnin aðeins sýningur, eigingjarn útreikningur. Jesús líkti slíkum mönnum við kalkaðar grafir, sem að utan líta fagurlega út, en eru að innan fullar af dauðra manna beinum og hvers konar óhreinindum (Mtt. 23, 27). Trúin er ný afstaða til Guðs. llétt grundvallarafstaða. Augun opnast. Mið lífsins verður Guð, hann yfirskyggir eiginhyggjuna, vitund og vilji hætta hinu sjúka hrmgsóli um dauðan punkt sjálfsins. Þá fyrst hattar fyrir innri skilyrðum þeirrar breytni, sem geti talizt góð í raun og veru. Þeir, sem lifa að lögum þeirra skilyrða, „þjóna Guði“, segir Lúther, „aðeins vegna hans og ekki vegna himinsins eða neinna stundlegra gæða. Enda þótt þeir vissu, að enginn himinn væri til og ekkert helvíti og engin
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.