Víðförli - 01.03.1947, Síða 23
SKALHOLT
21
í Skálholti er óhæf til notkunar. Veit ég ekki, hvað hlífir, að
hún skuli ekki vera fokin og' þeir fáu gripir, sem enn eru óteknir
frá henni, þar með eyðilagðir. Land staðarins er nytjað, þar er
búið stóru myndarbúi og landsetinn á enga sök á ófremd staðar-
ins. En hinsvegar hlýtur hver framkvæmd hans heima þar að
stofna einhverjum menjum í hættu. Ennþá sést Staupasteinn,
Biskupatraðir, Þorláksbúð, Þorlákssæti, Jóns Gerrekssonar
kapella, Iragerði og eitthvað fleira. Nokkrir legsteinar eru undir
kirkjugólfinu. I kirkjugarðinum ber mest á steinsteypuferlíki
einu með fáránlegum áletrunum, sem sett var þar fyrir nokkrum
árum í óráði, held ég hljóti að vera, væntanlega í algjöru leyfis-
leysi og áreiðanlega í fullkominni óþökk allra, sem hafa heil-
brigðar tilfinningar til Skálholts. Leifar Skólavörðunnar fornu
eru fyrir ofan tún. Hún hefur verið myndarlega hlaðin úr stór-
um steinum, en fyrir nokkrum áratugum var hún rifin nærri til
grunna og grjótið úr henni notað í hlöðubyggingu. Svona fer
eitt af öðru — niðurrif og níðsla eða ábyrgðarlausar tiltektir, ef
ekki eru skorður við reistar.
Hvað á að gera? Tillögur hafa komið fram um það, á hvern
hátt skuli hressa við Skálholtsstað, og eru fæstar mikillar at-
hygli verðar, svo sem hiriar þrálátu bændaskóla-tillögur, þótt
það mál hafi nú fengið óverðskuldaðan byr. Má að vísu þakka
það, að bændaskóla þessum hefur verið ákveðinn staður í tals-
verðri fjarlægð frá sjálfu setrinu — annað hefði verið óbærileg
handvömm. En einnar tillögu er vert að geta, þeirrar, sem flutt
var á síðasta alþingi um vígslubiskupssetur í Skálholti. Hún sýn-
ir þó, að löggjafarnir eru að rumska og að þeir virðast vera að
byrja að hugsa málið. Víst er þörf að hugsa vel áður en hafizt
er handa, líka þessa tillögu, enda slcal ég láta ósagt að sinni,
hvort Skálholti er fullkosta með henni, þótt hugurinn, sem á bak
við hana er, stefndi í rétta átt. En mjög langan umhugsunar-
frest er ekki hægt að gefa úr þessu. Hlutaðeigandi söfnuður
hlýtur að krefjast messuhæfrar kirkju, og allt Skálholtsstifti
krefst þess, að þessi helgistaður fái þá meðferð, sem honum ber,
að bætt verði úr brotum þeim, sem framin hafa verið, og því