Víðförli - 01.03.1947, Side 24
22
VÍÐFÖRLI
bjargað, sem bjargað verður. Ákvæði Gissurar biskups í sam-
bandi við hans virðulegu gjöf er ekki sæmilegt að virða að vett-
ugi.
Skálholt á aftur að verða biskupsstóll og kirkjulegt mennta-
setur.
Einar Sigurfínnsson,
(sóknarnejndaroddviti Skálholtssóknar).
Björn Sigfússon, háskólabókavörður:
Landkostir og framlíð
staðarins
[Grein þessi var gerð fyrir rúmum 2 árum í sambandi við setning laga um
búnaðarskóla í Skálholti. Eftir það varð úr að hlífa bæjarhól staðarins við
öllu raski um sinn og byggja skólann ekki í heimatúninu, heldur á ræktarjöðrum
þeim, sem liggja vestan Kvernalækjar. Iláðgerð er hitaleiðsla þangað úr Þor-
lákshver eða öðrum uppsprettum. — Felld er hér framan af greininni hvatning
til hluta, sem eru nú þegar framkvæmdir eða ráðnir. — Meðan svo er á málum
haldið, að heimatún, Langasund og nokkuð af Asunum sé óháð búnaðarskól-
anum, standa Islendingum opnir möguleikar til að efna skuldina við Gissur
Isleifsson, ]íá sem leiðir af ákvæði hans um ævarandi biskupssetur þar, og
á þeirra alda máli fólst í ákvæðinu, að á staðnum vrði ævarandi skóli fyrir
„artes liberales**.]
Þorlákshver, sem heilagur Þorlákur stundaði forðum, er með
heitustu uppsprettum og svo vatnsmikill og vatnstær, að hitun
mikilla húsa, smáiðja og ræktun við hann eru auðveldari og
vænlegri til hagnaðar en gerist á góðum jarðhitastöðum.
í Laugarási við Hvítárbrúna, sem bráðlega kemur, rétt hjá
Skálholti, er enn meira af heitu vatni en í Skálholtshverunum.
Þar munu koma upp um 100 lítrar af sjóðheitu vatni á mínútu
og ykist það vafaiaust við borun. I Laugarási, sem er sýslueign
og iæknissetur, er þegar að spretta vísir að sveitaþorpi með
mörgum gróðurhúsum. Hver nýbýlingur hefur fengið þar 1—3
ha. túnstæði til að reisa bú sitt á, og Laugarássland er allt
xæktaniegt, margir ferkílómetrar.