Víðförli - 01.03.1947, Side 36

Víðförli - 01.03.1947, Side 36
34 VÍÐFÖRLI gætu fullnægt yður. Raunar er svo, að í öllu, er ég hef skrifað, stendur ekkert, er neitar einum einasta lið trúarjátningarinnar. Eg hef því efckert aftur að taka. Vöxtur minn í trúnni er langær, og aldrei hef ég viljað játa meiru en því, sem var mér örugg sannfæring. En ég lief seilzt eftir sannleikanum, svo að ég mætti höndia hann jafnframt því sem ég er höndlaður af Kristi. Það er fyrir náð Guðs en ekki verðskuldan mína, að ég nú nýt þeirrar sælu að eiga krist- indóminn allan sem burðarafl lífs míns‘‘. Fleira fór þeim á meðal. En svo lauk, að þeir tókust í hend- ur og gengu einum huga og ei.nni trú að einu verki. A líkan hátt fór með þeim Berggrav og Ludvig Hope. Og félög þau, sem þeim stóðu að baki, gengu að einum leik. Þannig tókst að sameina megin kraftana. Og í Noregi varð ein kirkja: Una sancta ecclesia. Enn 25. október varð Berggrav biskup 56 ára. Þann dag var fundur lagður á biskupssetrinu og þangað boðaðir ýmsir fremstu rnenn kristins starfs, biskupar Noregs allir, prestar nokkrir og forystumenn ens frjálsa starfs. Berggrav hafði forsögn mála. Sýndi hann, hversu enni þýzku játningakirkju fór. Starf hennar var gott, og trú var hún Guðs orði og játningunum. En einn brestur var í skipan hennar, þess vegna stóð hún höllum fæti fyrir ofurvaldi nazista: Söfn- uðirnir voru ekki í lifandi, síverandi starfstengslum við presta sína. Þeir hlýddu á orðið og boðskapinn sér til blessunar og uppbyggingar. En lifancri safnaðarstarf var ekki. „Án styrks ens frjáisa starfs fær kirkjan ekki staðizt í því stríði, er hún nú hevr“, sagði biskupinn* Fundi þessum lauk svo, að stofnað var ráð manna, er vera skyldi vörn og vörður kirkju Noregs og kristni. Samþykkt var og ávarp það.'er hér fer á eftir og Berggrav samdi ásamt Hallesby og Ilans Höeg, rektor. ..Frá því er styrjöldin hófst í sept. 1939 hefur verið þörf samfélags og samþykkis með þeim, er finna ábyrgð á sér hvíla um rétta háttsemi kristna nú á viðsjálum tímum. Fyrir því eru

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.