Víðförli - 01.03.1947, Page 38

Víðförli - 01.03.1947, Page 38
36 VÍÐFÖRLI A afar fjölmennum fundi í stærsta samkomusal Oslóborgar var þetta gjört heyrinkunnugt. Eftir þetta var ljóst öllum lýð, að kirkjan var ein, ein í Kristi og átti í stvrjöld. Nokkurs uggs gætti þó með ýmsum fyrst í stað um, að sam- tök þessi hefðu kostað no'kkurn afslátt frá hreinni evangeliskri trú og boðun. En þá lýsti „Kristent samrád“ því yfir, að svo væri eigi. Svo að engin efi væri á um þetta, komst það m. a. svo að orði: „Ef einhverjir koma, stefnur eða menn, sem rífa vilja Biblíuna í tætlur, vilja neita getnaði Jesú af Heilögum Anda, fæddum af Maríu mey, vilja gjöra kross Jesú að píslar- vættiskrossi og neita vilja friðþægjanda dauða hans og líkam- legri upprisu, mun „Kristent samrád“ í engu hindra, að þá verði hafin vörn fyrir enni sönnu trú“. Samtök þessi urðu nú vörn kirkjunnar og sóknartæki, eins- konar samnefnari allra kristinna starfsgreina í landinu. Ekkert var hafzt að, ekkert birt, engin ákvörðun eða ályktun gjör neinsstaðar, án þess að slíkt hefði áður verið rætt og skoðað í „Kr. samrád“. Eftir þetta tóku línur að skýrast og fylkingar að síga saman. Nazistar tóku öll opinbcr tæki til stuðnings málstað sínum, þau, er þeir gátu og þorðu að taka. Þá er þeir leituðu vináttu trúaðs og trúrækins lýðs, báru þeir sífellt fram ena sömu staðhæfingu, að þeir vildu vernda og varðveita kjarna kristindómsins (þetta segir öll heiðni, hvernig sem hún birtist) og kirkjan ætti ekki að skipta sér af öðru. í bréfi, er biskupar landsins sendu út til almennings, svara þeir þessu m. a. svo: „Kirkjan er sköpun Guðs, og ber henni að vinna verk sitt frjáls og óttalaus, því að Guðs orð og Guðs vilji er hafinn yfir allt annað á þessari jörð. Verk sitt vinnur hún meðal fólksins vitandi um þá ábyrgð, er hún hefur: að prédika orð frelsisins og boða Guðs lögmál“. Þeir vitna og í, að stjórnarskráin ákveði. að en evangelisk- lútherska trú sé en opinbera trú ríkisins. Kirkjan sé því bundin þeim réttar- og siðferðisskyldum. sem grundvöllur kirkjunn- rr. B:b!:r.n og játn'nfarnar. greini.

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.