Víðförli - 01.03.1947, Blaðsíða 44

Víðförli - 01.03.1947, Blaðsíða 44
42 VIÐFORLI jafnt mót vindi sem með, og slík ógn fylgdi máli þeirra Gissurs og Hjalta, að heiðnir menn treystust ekki að mæla gegn þeim, þótt ákafur vilji væri til þess og nógir mælskuskörungar í hópi þeirra. Næsta dag var kristni lögtekin á Alþingi. Þessi atburð- ur varð með þeim ágætum, áð hann varpar ljóma yfir alla sög- una um útbreiðslu kristinnar kirkju. A næstu dögum, vikum og mánuðum var landslýður skírður.. Fór þá jafnt fús sem tregur að skírnarlauginni, því nýtt og ótvírætt ljós hafði fallið yfir réttmæti löghlýðninnar. Því næst vor'u kirkjur reistar, prestar Iærðir, söngur numinn og fanga allra til kristnihaldsins aflað svo sem bezt mátti í hverjum stað. Alþingi hið forna lét sér annt um þessa stofnun, sem mjög fljótt varð óskabarn hins forna lýðveldis. Það gaf lög og end- urbætti önnur að ráðum biskupanna með það fyrir augum, að þjóðinni mætti sem bezt nýtast hin andlegu gæði, sem henni buðust í heilagri trú. Þá var eignarrétturinn ókrenkjanlegur, ekki aðeins I „stjórnarskránni" heldur og á Alþingi sjálfu. I trausti þess gaf hinn annar biskup íslands föðurleifð sína og fæðingarstað kirkjunni til ævinlegrar eignar og afnota fvrir eftirmenn sína, meðan kristni er í landi voru. Þar fékk heilög messa sitt höfuðból, og hlýtur hver íslendingur að blessa þann sæla stað. Réttum fram hendur vorar og reisum hann úr rústum niðurlægingarinnar! — Sælt væri að geta þannig goldið eitthvað af þakkarskuld vorri fyrir þá blessun, sem þaðan er út gengin yfir land vort. Messan við Almannagjá var ekki aðeins hátíðleg og nýstár- leg viðhöfn. Hún var miklu meira. Hún var opinberun og upphaf að sögu þjóðar vorrar. Þangað til hafði forsaga ein gerzt. Það var saga tveggja þjóðflokka, sem höfðu það eitt sameiginiegt að hafa borizt til þessa lands. Annar þeirra kom frá hraustri og frumstæðri víkingaþjóð, er framdi rán og ofbeldi sér til framfæris. Ilann stökk úr landi sínu undan lögum þess og yfirvöldum og var heiðinnar trúar. Hinn var þjóðflokkur gróinnar menningar, ræktaðra gáfna og kristinnar trúar, burt- numinn nauðugur úr landi sínu og lifði hér í ánauð hins fyrra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.