Víðförli - 01.03.1947, Side 60

Víðförli - 01.03.1947, Side 60
ó8 VÍÐFÖRLI ult um sálmabókartillöguna nýju. Þó liefur blaðið „Akranes“ birt undanfarið ýtarlega ritgjörð um hana eftir ritstjór- ann, hr. Olaf 13. Björnsson, sem enn vottar l>að, sem alkunna var raunar, að hann er mikill áhuga- og afkastamaður. Skal hér með vakin athygli á þessum greinaflokki í „Akranesi“. Þar er m. a. rækileg athugun á því, í hverju breyt- ingarnar frá gildandi sálmabók eru fólgnar, en slíka greinargerð hefur oss skort. Nefndin hefði þurft að birta slíka skýringu um leið og hún lét prenta tillögu sína. Einn nefndarmanna, sr. Hermann Hjartarson, hefur samið og birt prýðilega greinargerð fyrir þeim grundvallarsjónarmiðum, sem nefndin starfaði eftir. En það er ekki nóg til þess að menn eigi auðvelt með að átta sig á, hvað hún hefur raunverulega gert. Ekki var annars ætlunin að fjölyrða um þetta mál hér. Aðeins skal sú ósk látin í ljós, að endurskoðun sáJmabók- arinnar verði komið í höfn hið bráð- asta. Oðru verður ekki unað. Nú er gildandi sálmabók ekki fáanleg og hef- ur svo verið lengi, tillagan ein er á markaði, reyndar af skornum skammti líka, en þó hefur húu verið seld langt um of í því ástandi, sem hún er, því að allmargar meinlegar villur eru í henni, sem engu taii tekur að innprenta landslýðnum. Það þarf að yfirfara þetta verk rækilega. Agreiningur mun vart vera innan kirkjunnar um veruleg atriði þeirrar endurskoðunar, sem fyrir liggur, og hefur nefndin í því tilliti leyst hlutverk sitt vel af hendi. Það var flestum ljóst þegar ráðizt var í endurskoðun sálmabókarinnar, að atkvæðamenn á sviði sálmakveðskapar eru ekki uppi á íslandi nú. Af þeim sökum kallaði þetta verk ekki að. Tím- arnir voru aðrir, þegar sálmabókin var endurskoðuð síðast. Að því verki unnu menn, sem eru í fremstu röð ísl. skálda fyrr og síðar. Slík blómgun á sér hvergi stað nema endrum og eins. Og ekki er það sálmakveðskapurinn einn, sem er í öldudal eins og stendur. Islenzk ljóða- gerð yfirleitt má muna sinn fífil fegri. Valdimar Snævarr á fáeina sálma í sálmabókartillögunni nýju. Mun sr. Friðrik Friðriksson einn nútímahöfunda eiga fleiri. Engum kom á óvart, að Valdimars yrði hér við getið. Iíann er löngu þjóðkunnur fyrir þýða og lipra sálma, frumorta og þýdda. Kverið „Syng Guði d5rrð“ er úrval andlegra ljóða höf. og var fengur að fá þetta á einn stað, sem áður var á víð og dreif í blöðum og tímaritum. Svo vinsæll er Valdimar fyrir söng sinn, að þessu kveri mun tekið fegins hendi. Hann hefur og látið kirkjumál til sín taka af miklum áhuga og góðfýsi, auk þess sem liann á merkan feril að baki sem skólamaður. Kirkja Islands á þar góðan son, sem hann er, og það kemur líka fram í þessum Ijóðum. Þar ómar hlýr og holl- ur trúarstrengur, barnstrúin, sem tekið hefur út vöxt sinn í skóla starfsins og lífsreynslunnar. Ríflegur hluti þessara ljóða er þýð- ingar. Meðal þeirra eru slíkar perlur, sem jólasálmur A'Vallins, „Var hálsad sköna morgonstund“ (nr. 6). Ilann er vandþýddur eins og annað, sem frá- bært er. Vantar og nokkuð á, að hann njóti sín í þessum ísl. búningi, þótt tæplega sé á öðrum völ, er betur mundi leysa þetta verk af hendi en Vald. Snævarr. Af frumsömdum sálmum skal

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.