Víðförli - 01.03.1947, Side 64

Víðförli - 01.03.1947, Side 64
62 VIÐFORLI Aðeins skal vikið að einu einkenni þessarar sýkingar: Kenning ísl. þjóð- kirkjunnar er komin á ringulreið. Eng- inn hljóðglöggur og hugsandi áheyr- andi málflutnings hennar kemst hjá að finna, að liiín hefur tungur tvær, raun- ar fleiri en tvær. Kennimenn hennar eru ekki neitt líkir samstilltum kór, margradda, sem syngur sama lag, þótt raddsvið sé mismunandi og hlutverkin ólík. Þetta lilýtur að stafa af skoðana- mun um það, hvað sé kristindómur, hvert ætlunarverk kirkjunnar, liver skylda kennimanns. Eða stafar ])að af því, að flytjendum hins kirkjulega boð- skapar mörgum, sé með öllu óljóst, hvað kirkjan, sem hefur falið þeim um- boð, hefur á hjarta? I einu dagblaða bæjarins stóð svofelld klausa fvrir skemmstu: „Eg hef oft furðað mig á þeirri tilhneigingu íslenzkra presta að færa prédikanir sínar í dularbúning, þannig að þegar þeim er lokið eru menn venjulega engu nær um gildi trúarinn- ar og hafa eiginlega hvorki skilið upp né niður í því, sem sagt var“ (Þjóðvilj- inn 8. jan. 1947). Sé þessi ádrepa ekki allsendis ósanngjörn, þá er það alvar- legt. En svo mikið er víst, að ósam- hljóðan í kenningu gerir kirkjuna mátt- vana í trúboði. Verði fjölbrigðin í mál- flutningi hennar slík, að einn rífi niður fyrir öðrum, einn bendi til austurs, þegar hinn bendir til vesturs, þá er ekki von, að neinn taki hana alvarlega sem stofnun. Það er engum til gagns eða góðs að þegja um þetta. Það er að dyljast meinsins. Kirkjan verður að ræða mál- efni sín hispurslaust og opinskátt. Mun það gert bæði í þessum dálkum og ann- ars í Víðförla. Yfirhylming er til ills eins. Af henni sprettur tortryggni, mis- skilningur, getsakir og annað verra. Hver með sínu nefi Með engu móti verður þeim skiln- ingi unað, að hverjum þeim, sem kemst í kennimannsstétt, skuli heimilt að syngja með sínu nefi það, sem hon- um kann gott að þykja. Er kirkjan fuglabjarg, þar sem hver skal krunka á sinni syllu? Slíkt kenningarfrelsi, sem undirstrikar, að hver verði sæll í inni trú, getur ekki blessazt kirkjunni. Hvað vill þá kirkjan með trúboð? Geðþótti einstaklinga og yfirdrottnun yfir kenn- ingunni getur ekki leitt til annars en upplausnar. Það er ekki til neins að nefna slíkt fallegum nöfnum, svo sem víðsýni, frjálslyndi o. þ. u. 1. Það verð- ur ekki þar með annað en það er: Agaleysi, hringl, fálm, — einu nafni réttnefnt lauslyndi, andleg lausung. Menn hafa sínar sérskoðanir, sína reynslu — eða reynsluleysi —, og’ það er ekki nema eðlilegt, að menn hafi mismunandi skilning á útlínuatriðum. En það er tvíinælalaus skvkla opin- bers boðbera kirkjunnar að láta slíkt ekki sitja í fyrirrúmi boðskapar síns. Presturinn er ekki trúarbragðahöfund- ur. Og færri í þeim hópi eru siðbótar- frömuðir og spámenn en þeir virðast ætla. Presturinn er þjónn, ekki herra. Hann á að þjóna boðskap kristinnar kirkju, ekki drottna yfir trú safnaðar- ins. Hann á að vera samverkamaður að gleði hans, gleði safnaðar Jesú Krists lærisveina yfir því, sem hann hefur þegið af Drottni sínum. Prestur, sem kemst að þeirri niðurstöðu, að liann geti ekki aðhyllzt meginatriði, sem á öllum tímum hafa verið ómissandi

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.