Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Page 58
56
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000
mikið yndi af að dansa. Það er
minnisstætt að hafa horft á þau
svífa um gólfið í gamla Félags-
heimilinu í valsi, ræl og tangó.
Oft var farið á ball eftir langan
vinnudag og eltki haft áhyggjur af
að þurfa að mæta eldsnemma til
vinnu daginn eftir. Jón taldi eltki
eftir sér að kenna margri smá-
stelpunni fyrstu sporin í gömlu
dönsunum og sú kennsla hefur
dugað margri þeirra vel. Sem
ungur maður spilaði Jón einnig á
harmoníku fyrir dansi. Þau hjón
voru mikið áhugafólk um leiklist,
voru stofnfélagar í Leikfélagi
Ólafsvíkur og síðar heiðursfélag-
ar. Jón hafði mikla leikhæfileika,
tók þátt í uppfærslum Leilcfélags-
ins. Hann er minnisstæður í
mörgum hlutverka sinna svo sem
Kétil-Skræk í Skuggasveini,
Hjálmari Tudda í Manni og
konu. Hann var líka vel lesinn
og hafði yndi af að ræða um
bækur og segja frá ýmsu skop-
legu sem hann var að lesa eða
hafði séð í leikhúsi þegar hann
fór til Reykjavíkur.
Þau hjón stóðu einnig ein-
huga að baki slysavarna-og
verkalýðsmálum í Ólafsvík,
Sigríður tók fullan þátt í starfi
og orlofsferðum eldri borgara
þegar hún var komin á þann
aldur..
Matsala og hótelrekstur
Sigríður og Jón voru sam-
hent hjón og lifðu í farsælu
hjónabandi, þau eignuðust tvö
börn Jens sem lést á fyrsta ári og
dótturina Mettu, sem alla tíð var
sú sem þeim báðum var kærust
og báru mesta umhyggju fyrir.
Eftir að Metta giftist manni sín-
um Bjarna Ólafssyni byggðu fjöl-
skyldurnar saman íbúðarhúsið að
Ólafsbraut 44. Þar bjó fjölskyldan
öll saman þar til Metta og Bjarni
hófu búskap í Geirakoti, áður
höfðu þeir Jón og Bjarni verið
með fjárbúskap hér í Ólafsvík.
En þau störf sem Sigríður er
þeldctust fyrir hér í
Ólafsvík og raunar
langt út fyrir bæjar-
mörkin voru matsala og
hótelrekstur og þjón-
usta hennar við gesti
og gangandi.
Þessi atvinnurekstur
hennar átti síðar eftir að
bera hróður hennar og
Ólafsvíkur víða. Með
sérstökum hæfileikum,
dugnaði og fórnfysi
greiddi hún götu fleiri
samferðamanna en við
höfum tölu á. Starfið
aflaði henni aðdáunar
og virðingar fjöl-
margra víðsvegar um
land.
Um 1934 keyptu þau hjón
íbúðarhúsið sem nú stendur við
Ólafsbraut 46. Þar hófst nýr kafli
í lífi Sigríðar. Hún hóf sjálfstæðan
atvinnurekstur og byrjaði að selja
mönnum fæði ,,var með kost-
gangara” eins og það var kallað á
þessum árum. Heimili þeirra Sig-
ríðar og Jóns var með einstökum
myndarskap og alltaf veitt af
rausn. Sjálfsagt hefur það verið af
þeirri ástæðu að leitað var til
hennar þegar koma þurfti fyrir
gestum og gangandi. Hún opnaði
heimili sitt fyrir öllum sem á fyr-
irgreiðslu þurftu að halda. Hún
tók á móti öllum af sérstakri alúð
og þjónustugleði.
Bakaði allt brauðið
Eins og nærri má geta voru að-
stæður á venjulegu heimili eklci
þannig að auðvelt væri að matbúa
og bera á borð fyrir fjölda manns.
Það var lagt á borð í tveimur eða
þrem herbergjum á Ólafsbraut-
inni og þeir sátu oft lengi yfir
matnum karlarnir, því það var
eldtert sjónvarp og ekkert bíó í
plássinu. Þá var rætt um alla
heima og geima. Allan mat og
mjólk varð að bera heim, og hún
var létt í spori þegar hún snarað-
ist inn eftir Ólafsbrautinni hún
Sigga með töskur í báðum hönd-
um. A þessum fyrstu árum voru
stöðugt hjá henni verkstjórar og
kafarar sem unnu að hafnargerð,
bílstjórar áætlunarbifreiða ásamt
lögreglumönnum sem voru laus-
ráðnir til mislangs tíma ásamt
þeim sem komu til ýmsra verka
til lengri eða skemmri tíma. Eldc-
ert bakarí var á staðnum svo baka
varð allt brauð og allar kölcur,
engar unnar kjötvörur voru til
staðar og engar frystigeymslur
þannig að allt hefur orðið að
vinna heima. Ekki hafði hún
neina fasta hjálp, en féklc stund-
um lcralcka til að skjótast í búð
eða til að vaslca upp þegar mest
var að gera og þá borgaði hún
alltaf vel fyrir. Sífellt fjölgaði
þeim sem á þessari þjónustu
þurftu að halda og að lokum
hafði hún ekki nægilegt hús-
næði að eigin mati.
Atvinnufyrirtæki sem þá
voru að hasla sér völl þurftu á
aðlcomufólki að halda, það
varð að ráði að hún tólc að sér
forstöðu mötuneytis í Félags-
heimili Ólafsvíkur, á vegum
K.F. Dagsbrúnar og síðar Jafets
Sigurðssonar.
Sigga ásamt þremur barnabörnum sínum, Ólafi, Unni og
Sigurjóni.