Skógræktarritið - 15.05.2004, Side 81

Skógræktarritið - 15.05.2004, Side 81
mjó og súlulaga. (R. C. Hosie 1973). Fjalllendið Black Hills er á mörkum Wyoming og South Dakota, en á korti yfir útbreiðslu- svæði hvítgrenis, eru sýnd tvö til- tölulega lítil afmörkuð svæði sunnan við meginvaxtarsvæðið (Thomas S. Elias 1987). Annað þeirra er á mörkum Saskatchew- an og Montana, en hitt í suðvest- urhorni North Dakota, 150- 200 km norðan við Black Hills. Aftur er sáð hvítgreni á Hallormsstað árið 1936. Því fræi hafði verið safnað í Chugach National For- est, Kenai District f Alaska, og sent Skógrækt ríkisins að gjöf árið 1935 ásamt sýnishornum af fleiri tegundum, m.a. sitkagreni. (Af því munu hafa lifað 3 tré á Hallormsstað. B.Þ. minnisblað). Þjóðskógurinn, Chugach Nat. Forest, nær yfir geysilega víðlent svæði, og tilgangslítið er að reyna að geta sér til um, hvar söfnun hafi farið fram. Þó er freistandi að giska á tvö svæði: Kenaiskaga og Copper River Valley. í skýrslu um vinnuna á Hallormsstað 1941 stendur, að gróðursett hafi verið 200 hvít- greni (Guttormur Páisson 1942). Ekki er getið aldurs plantnanna né uppruna. Er taiið að kvæmið frá 1941 sé frá Austur-Kanada (Sigurður Blöndal 1995). Þótt ekki sé sérstaklega getið um gróðursetningu annars hvítgrenis en þess „kanadfska", má ekki með öllu útiloka, að einhverjar plönt- ur úr tveimur seinni sáningunum hafi komist á legg og verið gróð- ursettar með öðrum kvæmum. í riti Sigurðar Blöndals um inn- fluttar trjátegundir í Hallorms- staðaskógi ersúlurit, sem sýnir, að gróðursett hafi verið um 1000 hvftgreni árið 1941. Fjallaþöll. I fræskrá Tsuga mer., frænúmer 453004. Þessu fræi var sáð á Hallormsstað og f Múlakoti vorið 1945. Kvæmið hefir gengið undir nafninu „Pigot Bay", og var skráð þannig í Fræ- skrá I. 1994. Við endurskoðun allra frumgagna fyrir þremur árum var enn á ný farið yfir bréfa- skipti Skógræktar ríkisins og Vig- fúsar lakobssonar frá Hofi í Vopnafirði frá árunum 1943-1945. Vigfús lagði þá stund á skógrækt- arnám í Seattle, en f frfum ann- aðist hann fræsöfnun í Alaska fyr- ir Skógrækt ríkisins. Samanburð- ur við aðrar heimiidir leiddi í ljós, að það þallarfræ, sem var safnað við Pigot Bay haustið 1945 kom ekki tii íslands fyrr en í byrjun ársins 1946, nema ef vera skyldi sýnishorn, sem Hákon Bjarnason safnaði. Þvf miður fundust engar frekari upplýsingar um þallar- fræssöfnun Vigfúsar árið 1945. Hins vegar hafði hann einnig safnað allmiklu þallarfræi haust- ið 1944 við Guil RockviðTurn- again Arm, auk sitka- og hvft- grenis, og það fræ barst til ís- lands í tæka tíð til sáningar vorið 1945. Við nánari athugun þótti því sennilegast, að þailarfræinu, sem var sáð á Hallormsstað og í Múlakoti vorið 1945, hlyti að hafa verið safnað 1944, þvf um annað fræ væri ekki að ræða. f framhaldi af þessu var skráningu á fjalla- þöll, frænúmer 453004, breytt þannig, að í stað Pigot Bay kemur Turnag. Arm (mætti þó allt eins vera Anchorage). Til fróðleiks má geta þess, að Turnagain Arm er við botn Cook inlet, skammt frá Anchorage, en Pigot Bay er á suðaustanverðum Kenaiskaga við Prince William Sound. Loftlínan á milli þessara staða þvert yfir skagann er um 100 km. Árið 1952 voru gróðursettar 370 fjallaþallir á Stálpastöðum og fáeinar á Tumastöðum. „Þær munu ættað- ar frá Kenaiskaga eða Prince Williams Sound" segir í ársskýrslu skógræktarstjóra (Há- kon Bjarnason 1953). Hérvirðist gæta einhverrar óvissu um upp- runann, en þó má til sanns vegar færa að Turnagain Arm tilheyri Kenaiskaga. Árið 1953 voru af- greiddar 100 fjallaþallir úr gróðr- arstöðinni á Tumastöðum. Þá var einnig gróðursett fjallþöll tii reynslu í Lambhaganum í Skarfa- nesi (Hákon Bjarnason 1954). Fjallaþöll var fyrst gróðursett í Mörkinni á Hallormsstað árið 1953 í bland við sibiríulerki (Sig- urður Blöndal 1995). Þetta var í stuttu máli saga fyrstu fjallaþall- arræktunar hér á landi. Útbreiðslusvæði hvítgrenis f N-Ameríku. Úr bókinni The Complete Trees of North America eftir Thomas S. Elias. SKÓGRÆKTARRITIÐ 2004 79
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.