Skógræktarritið - 15.05.2004, Side 97

Skógræktarritið - 15.05.2004, Side 97
an til að heilsa okkur og bjóða okkur velkomna og litlu sfðar húsbóndinn. Þá var okkur boðið til morgun- verðar. Á borð voru bornir svo margir réttir að ekki var hægt að bragða þá alla. Allt var það sann- kallaður hátíðamatur. Húsfreyjan skýrði fyrir okkur úr hverju réttirn- ir væru búnir til og hvað af því væru sérstakir þjóðlegir réttir. Hún þurfti margs að spyrja frá ís- landi og lét f ljós löngun til að koma til landsins. En nú var ekki til setunnar boðið. Bíllinn sem flutti okkur var væntanlegur á hverri stundu og þá þurftum við að vera komnir niður á þjóðveg- inn. Við kvöddum þvf okkar agætu gestgjafa og gengum niður á veginn. Bfllinn, 40 sæta langferðabíll, kom rétt um leið og við á vega- mótin. Mikill hluti fólksins var komið í bílinn og nú hófst deila um það hvar hefði verið best að gista. Hver hélt fram sínum gist- ingarstað og niðurstaðan varð sú að alls staðar hefði verið búið svo vel að okkur að tæplega hefði verið hægt að gera það betur. Eg lýsi viðtökunum þarna svo nákvæmlega vegna þess að hvar sem við komum, voru viðtökurnar jafn alúðlegar, svo þessi lýsing á við hvern þann stað sem við gist- um f Noregi. Sólskinið sem við komum með til Noregs, entist alla dagana sem við dvöldum þar. Hitinn komst yfir 30 stig í forsælu. Þegar búið var að safna öllu fólkinu í bílinn var farið í bílferju yfir í Álasund, sem er allstór bær. Nú skildu leiðir, því helmingur fólksins fór suður í Guðbrands- dal, til Vágö. Fararstjóri þess hóps var ísleifur Sumarliðason, skógarvörður á Vöglum. Hinn hópurinn sem eg var í fór til Rissa í Þrændalögum. Fararstjóri þess hóps var Sigurður Blöndal, sem reyndist afbragðs fararstjóri. Hann var óþreytandi að skýra fyr- ir okkur það sem fyrir augu bar, og benda okkur á allt sem athygl- isvert var á leið okkar. Enda er hann vel kunnugur á þessum slóðum og fróður um sögu þeirra héraða sem við fórum um. Eg hef aldrei komist betur að raun um það, hvað mikilsvert er að hafa góðan fararstjóra. Við héldum frá Álasundi yfir að Romsdalsfirði að Ándalsnesi, sem er nær því við fjarðarbotn- inn. Húsin íÁndalsnesi eru flest mjög nýleg, þvf Þjóðverjar lögðu þar allt í rústir á stríðsárunum. Á leiðinni milli Álasunds og Ándalsness fórum við f gegnum 8 jarðgöng, sum af þeim eru stutt, en önnur töluvert löng. Eg gæti trúað að þau lengstu væru ekki minna en einn km. Frá Ándalsnesi fórum við inn f mynni Romsdals en lögðum þar lykkju á leið okkar, og fórum upp Trollstigen sem okkur var sagt að væri glæfralegasti vegur f Noregi. Get ég vel trúað því. Dalurinn inn að þar sem Trollstigen byrjar er mjög djúpur og má segja að hann endi í hrikalegu gljúfri. Dá- lítil á fellur niður f gljúfurbotninn f geysiháum fossi. Það má telja undravert að nokkrum manni gæti komið til hugar að hægt væri að leggja veg upp úr þessum tröllabotni. En það er staðreynd að vegurinn er þar kominn. Veg- urinn liggur skáhallt inn og upp austurhlíð dalsins, beygir svo út dalinn hærra og hærra upp hlíð- ina og er sumstaðar sprengdur framan í hamrabelti. Svona liggur hann f beygjum þar til komið er upp í miðja hlíðina; þar liggur hann yfir í vesturhlíðina, yfir volduga steinbrú framan við foss- inn og síðan upp vesturhlíðina, sem heita má að sé eitt stand- berg ofan frá brún og niður í dal- botn. Ofurlftill flái er á sumum hlutum bergsins. Þar sem beygjur eru á veginum eru höggnir stórir skútar inn í bergið svo bílarnir hafi svigrúm til að taka beygjurn- ar. Þar sem efsta beygjan er á veginum í vesturbrún gljúfursins er bergið samfelldur veggur niður f dalbotn. Okkur var sagt að það mundi þar vera um 800 metrar á hæð. Sumir farþegarnir sögðust Ifka forðast að líta út í gluggana, en aðrir nutu þess að horfa niður eftir hengifluginu. Þegar upp á brúnina kom, var ekið nokkurn spöl inn á hálendið að fjallahóteli sem þar stendur. Mynd 7. Að afloknum landsleik í knattspyrnu í Rissa hvíla menn lúin bein. Leiknum lyktaði með jafntefli. SKÓGRÆKTARRITIÐ 95
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.