Skógræktarritið - 15.05.2004, Page 110
MINNING
Leó Guðlaugsson
F. 27. mars 1909 • D. 14. febrúar 2004.
Leó Guðlaugsson, heiðursfélagi í Skógræktarfélagi
Kópavogs, lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 14.
febr. síðastliðinn.
Leó fæddist á Kletti í Geiradal, Barðastrandarsýslu,
27. mars 1909.
Foreldrar hans voru Guðlaugur Guðmundsson og
Sigurlína Guðmundsdóttir, bæði ættuð af Ströndum.
Sigurlína lést ung frá 6 börnum. Voru börnin tekin í
fóstur á Ströndum og í Barðastrandarsýslu, ólst Leó
upp á Þambárvöllum í Bitrufirði hjá Skúla Guð-
mundssyni, föðurbróður sínum.
Leó kvæntist árið 1943 Sofffu Eygló Jónsdóttur frá
Stóra-Skipholti í Reykjavík, f. 3. nóvember 1916, d. 3.
janúar 1999.
Synir Leós og Soffíu eru Trausti byggingafræðingur
og Guðlaugur leiðbeinandi. Fóstursonur Leós, sonur
Sofffu, er Þórir |ón Axelsson. Barnabörn Leós eru Silja
arkitekt, Tumi skógarvistfræðingur og Sindri líffræði-
nemi.
Leó nam húsasmíði á Borðeyri og lauk sveinsprófi
árið 1931. Meistararéttindi hlaut hann árið 1940. Leó
starfaði við iðn sína allan sinn aldur meðan heilsan
leyfði.
Leó var mikill félagsmálamaður og tók virkan þátt í
félags- og stjórnmálum. Hann átti auðvelt með að ná
athygli hlustenda sinna, var fylginn sér og lá ekki á
skoðunum sínum. Hann var formaður Sósíalistafélags
Kópavogs, átti sæti í stjórn Lionsklúbbs Kópavogs,
stjórn Meistarafélags húsasmiða, en sfðast en ekki
síst var hann einn af stofnendum Skógræktarfélags
Kópavogs, sem stofnað var 1969.
Skógræktarfélagið átti stóran sess í hjarta Leós.
Hann var formaður félagsins frá árinu 1976 til ársins
1989. Leó vann mikið og óeigingjarnt starf í Skóg-
ræktarfélagi Kópavogs sem verður seint fullmetið. í
því starfi ber hæst frumkvæði hans og vinna við kaup
á jörðinni Fossá í Hvalfirði árið 1972. Á þeim tíma
voru það Skógræktarfélög Kópavogs og Kjósarsýslu
sem stóðu að kaupunum. Fyrir þessi félög var þetta
mikið gæfuspor og aðdáunarverð framtíðarsýn hjá
þeim mönnum sem að því stóðu.
Nú er kominn mikill skógur á Fossá og þar er mikil
uppbygging sem þessir öldnu höfðingjar komu á fót.
Það voru ófáar ferðirnar sem Leó fór að Fossá bæði til
að standa að plöntun trjáa og einnig að uppbyggingu
og viðhaldi gamla bæjarins sem var honum mikið
kappsmál og hann sjálfur búinn að leggja í mörg
handverkin.
Leó var mikill áhugamaður um örnefni og sögu
Fossár. Björgvin síðasti ábúandi var mikill vinur Leós
og það hefur vafalaust skipt máli þegar hann seldi
skógræktarfélögunum jörðina að hann vissi að eign-
unum yrði sinnt af umhyggju.
Leó var afar stoltur af hengibjörkunum sem Vigdfsi
fyrrum forseta voru afhentar af Finnlandsforseta og
að Vigdís valdi þessum plöntum stað að Fossá eftir
ráðleggingum frá Skógræktarfélagi íslands. Eitt af því
síðasta sem Leó lagði mikla áherslu á, var að við
stjórnarmenn settum upp skjöld sem hann hafði látið
útbúa fyrir þennan reit.
Leó varð fyrstur manna hér til að smíða plöntustafi
sem hann hafði kynnst í skógarferðum í Noregi. Leó
smíðaði marga stafi bæði fyrir sitt félag og einnig fyrir
ýmsa skógræktarmenn. Flesta þessa stafi gaf hann, að
minnsta kosti afhenti hann félagi sínu 40 stafi að gjöf
sem var mikill fengur á þeim tíma. Leó smíðaði
einnig marga hluti sem félagið þarfnaðist og allt var
gert af miklu hugviti og útsjónarsemi
Meðal skógræktar- og landgræðslufólks var Leó
mikils metinn og vel þekktur.
Sérstaklega var hann vel þekktur fyrir söfnun sína á
birkifræi þar sem hann sló öll met og hlaut að laun-
um Landgræðsluverðlaun sem
afhent voru í Gunnarsholti árið
1999.
Undirrituð hlaut þann heiður
að vera við þessa verðlaunaveit-
ingu með Leó og Tuma barna-
barni hans, og líður seint úr
minni stolt þeirra hvors af öðrum
og sögurnar sem þeir sögðu hvor
öðrum til heiðurs. Það má segja
að Leó hafi komið skógræktar-
geninu vel til sinna nánustu sem
öll studdu hann í skógræktará-
huganum.
Skógræktarfélag Kópavogs á
Leó mikið að þakka fyrir hans
mikla og óeigingjarna starf í þágu
félagsins. Staðfesta hans á kaup-
um Fossárjarðarinnar var eitt
mesta gæfuspor í sögu Skógrækt-
arfélagsins. Að leiðarlokum vil ég
þakka Leó góð kynni og allt sem
hann gerði fyrir Skógræktarfélag
Kópavogs.
Sigríður Jóhannsdóttir