Helgarpósturinn - 25.10.1984, Qupperneq 4
mæm>
1118*
Hofmannlegt
Hótel Hof
☆ Vita menn almennt aö
Rauöarárstígurinn heitir ekki í
höfuöiö á neinni rauöri á,
heldur dregur hann nafn sitt af
alveg sérstakri á sem var meö
þeim ósköpum aö þar hafðist
gjarnan viö fiskpadda sú er
reyður nefnist? í munni forn-
manna varö reyður ,,rauður“,
- framburðurinn haföi áhrif á
ritháttinn, en ekki öfugt -, en
viö núna látum okkur nægja að
kalla kvikindiö silung.
Löngum hefur Rauöarár-
stígur þótt fremur sviplítill;
sennilega þess vegna aldrei
náö svo langt að veröa gata,
nvaö þá stræti. Þó er ekki laust
viö að um þessar mundir sé aö
verða breyting þar á. Viö
Rauöarárstíginn er ýmis
skemmtileg starfsemi aö festa
rætur, þar á meðal Hótel Hof,
gisti- og veitingahús sem þau
Aslaug Alfreösdóttir og Ólafur
Örn Ólafsson reka meö
miklum myndarbrag. Á Hótel
Hofi eru þrjátíu og eitt
herbergi, eins og tveggja
manna, vel búin þessum litlu
hlutum sem viö teljum orðið
sjálfsagöa; Húsgögnum,
sturtu, síma og útvarpi.
í notalega innréttuöum mat-
sal er framreiddur morgun-
veröur, hádegisveröur og
kvöldveröur, en á milli mála
kaffi og heimabakaðar kökur.
Matseöillinn er viö allra hæfi:
Þetta er enginn hamborgara-
staöur, en veröiö þó ekki
óviðráöanlegt. Þaömámæla
meö mínútusteikinni á Hótel
Hofi; ekki fóru fiskréttirnir
síöur á tungu, þegar þeir voru
kannaöir á dögunum. Börn
innan viö sex ára snæöa frítt á
Hótel Hofi, en krakkar á aldrin-
um sex til tólf ára greiða þar
einungis hálft gjald fyrir mat
sinn. Auk alls þessa er stór og
mikill fundarsalurá Hótel
Hofi.*
■
Mens sana in corpore sano, segir
Rómverjinn. í Líkams- og heilsu-
ræktinni er lögð meiri áhersla á
praxís en þeóríu...
Jafnvel þingmenn í
líkamslyftingu
Samningaleiðin
Eina leið ég aðeins sé
upp úr þessu hjólfare:
Að Albert gangi í BSRB
og byrji strax í verkfalle
musteri líkamans þessa
dagana, allt frá straumlínu-
löguðum þokkadísum á
Malibúströndinni til hörku-
legra samyrkjubústýra í
Úsbekistan.
„Hér er mikil traffík af fólki á
öllum aldri, frá þvi klukkan sjö
á morgnana til tíu á kvöldin,“
sagði Ævar Agnarsson hjá
Líkams- og heilsuræktinni í
Borgartúni 29, þegar næsta
hvapholda Helgarpóstsmenn
bar þar aö garði fyrir
skemmstu í því skyni aö kynna
sér nokkuð starfsemina, áður
en líka þeir létu til skarar
skríöa að skella sér í líkams-
lyftingu. „Líkams- og heilsu-
rækt nýtur sívaxandi vin-
sælda,“ sagöi Ævarenn-
fremur, „hingaö kemurótrú-
legasta fólk til aö hressa sig
við - jafnvel er til í dæminu að
þingmenn líti inn, þegarþing-
setan er tekin að skilja eftir sig
helst til áþreifanleg ummerki.
Þaö er oröiö mjög algengt aö
fólk komi fyrir vinnu; eftir
leikfimi snemma á morgnana
er það vel upplagt allan
daginn. Einnig er vinsælt að
nota matartímana til aö hreyfa
sig. Sjálfir útbúum við hér sér-
staka matseðla fyrir fólk ef það
óskar eftir; gerö þeirra annast
Finnur Pálsson."
Alls eru starfsmenn Líkams-
og heilsuræktarinnar sex
talsins, og hafa flestir margra
ára reynslu aö baki sem þjálf-
ararog leikfimikennarar.
Þarna í Borgartúninu er, auk
aöstööu fyrir leikfimi, gufubaö
og sólbaöstofa - allt undir
sama þaki. Sólbaöstofari heitir
Áróra og er líklega sú stærsta
sinnar tegundar hér á landi.*
☆ Líkamsrækt er jafn óað-
skiljanleg nútímaþjóöfélagi og
þumalskrúfa, hjól, stegla og
spænsk stígvél samfélagi
myrkra miöalda. Þaö eru bók-
staflega allir aö dytta að
STÆRSTA BIFREIÐASTÖÐ BORGP^
4 HELGARPÓSTURINN