Helgarpósturinn - 05.12.1985, Síða 7
REKSTRARHNEYKSLI HAFSKIPS:
„MISFERLI, GALEYSIMEÐ FJARMUNI,
VANKUNNÁTTA OG FULLKOMID TILLITSLEYSI
GAGNVART HLUTHÖFUM“
RNORKU
• Lúxusferðalög forráðamanna félagsins.
Einn hótelreikningurinn hljóðaði upp á
tæp 800 þúsund krónur.
• Bandarískir endurskoðendur Hafskips
gáfust upp á bókhaldsóreiðunni. Bók-
haldarinn á New York-skrifstofu félagsins
sagði upp starfinu samvisku sinnar
vegna.
• Skúffufyrirtæki forstjóra Hafskips USA
mjólkaði félagið með vitund forráða-
manna.
• Baldvin Berndsen, forstjóri Hafskips
USA, hélt starfinu vegna þess að hann
bakkaði upp vitleysur forráðamanna
Hafskips í Reykjavík.
- SEGJA TVEIR FYRRVERANDI
STARFSMENN HAFSKIPS, GUNNAR
ANDERSEN, FRAMKVÆMDASTJÓRI
COSMOSIBANDARÍKJUNUM OG
BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON HJÁ
HAFSKIPI USA
„Eftir að hafa hugsað mikið um
þetta, held ég að það sé alveg Ijóst
að það var mikið um misferli að
rœða í rekstrinum og ýmsir vafa-
samir hlutir á ferðinni," segir Gunn-
ar Andersen fyrrverandi fram-
kvœmdastjóri flutningamiðlunar-
fyrirtœkisins Cosmos og dótturfyrir-
tœkis Hafskips við Helgarpóstinn
þegar hann var spurður þess hvers
vegna Hafskip h/fstandi nú frammi
fyrir hugsanlegum gjaldþrotaskipt-
um.
í HP höfum við fjallað um N-Atl-
antshafssiglingar Hafskips, viðvar-
anir starfsmanna vegna þessa œvin-
týris og hvernig öll viövörunarorð
voru hunsuð af stjórnendum fyrir-
tœkisins í Reykjavík.
En nú velta menn jafnframt fyrir
sér hvernig Hafskip hafi verið rekið
sem fyrirtœki, fyrir utan þau megin-
mistök sem fólust í því að taka upp
beinar siglingar milli Evrópu og
Bandaríkjanna, þvert ofan í allar
afkomuspár starfsmanna.
Gunnar Andersen og Björgvin
Björgvinsson fyrrum starfsmaður á
skrifstofu Hafskips í New York,
þekkja rekstrarsögu Hafskips mjög
vel nokkur ár aftur í tímann og þá
einkum rekstur Hafskips í Banda-
ríkjunum og samskipti við yfir-
stjórnina á Islandi. Þeir rœddu við
HP í New York fyrir nokkrum dög-
um.
Kádíljákar, golfferðalög
og 800 þús. króna hótel-
reikningur
Þeir Gunnar og Björgvin staðhæfa
að fjármunir Hafskips hafi verið
misnotaðir og oft hafi verið um
hreina sóun að ræða. Sem dæmi
nefna þeir óeðlilegan bílakost for-
stjóra Hafskips USA, Baldvins
Berndsen (á tímabili réði hann yfir
fjórum bílum), alls kyns óeðlilegan
kostnað sem erfitt sé að skýra, svo
sem notkun Baldvins á lengdum
kadílják með sjónvarpi, bar og
einkabílstjóra með kaskeiti sem
einkum var notaður til að aka for-
stjóranum út á flugvöll vegna golf-
ferðalaga og söluferða, Concord-
flugferðir forstjóra Hafskips á ís-
landi og stjórnarformannsins,
þriggja herbergja hótelsvítur á dýr-
asta hóteli í New York (þúsund doll-
arar á dag eða um 40 þúsund ísl. kr.).
Annað dæmi um hótelkostnað for-
ráðamanna Hafskips er 18 þúsund
dollara hótelreikningur (á 800. þús-
und kr. ísl.).
Þá má geta þess til gamans að
þegar forstjóri Hafskips USA eða
forráðamenn Hafskips fóru í golf-
ferðalög, hvort sem það var í Banda-
ríkjunum eða Evrópu (Baldvin
Berndsen lék stundum golf í Lúx-
emburg) var notast við sérsmíðaðar
Baldvin Berndsen forstjóri Hafskips USA við bll frá fyrirtækinu —
plötuna...
golfkúlur með einkennismerki Haf-
skips.
Endurskodendurnir
gáfust upp á óreiðunni
„Það voru ýmsir reikningar á
ferðinni sem ekki áttu heima í bók-
haldi Hafskips, en lentu samt þar,“
segir Björgvin Björgvinsson við HP.
„Það er erfitt fyrir mig að sanna
þetta en á hinn bóginn sá ég færslur
í bókhaldinu og tékkayfirlit, og það
ætti að vera hægt að sjá þetta þar,
nema að búið sé að eyðileggja öll
gögn. Þessu til viðbótar get ég svo
nefnt að bandarískir endurskoðend-
ur frá endurskoðendafyrirtækinu
Coopers og Lybrand bentu á þessar
færslur. Og raunar fór það nú svo að
þetta endurskoðendafyrirtæki
treysti sér ekki til að sjá um endur-
skoðun fyrir Hafskip USA vegna
þess að það var svo mikið um sér-
kennilega viðskiptahætti sem birtist
í bókhaldinu, og ekki virtist stand-
ast venjulegar endurskoðunarregl-
ur. Þeir hættu viðskiptum við Haf-
skip USA í september í fyrra vegna
þessa."
Gunnar: „Þeir tóku það fram í
bréfi til Páls Braga Kristjónssonar
fyrrum fjármálastjóra Hafskips að
það væri slík óregla á bókhaldinu
hjá Hafskipi USA að það væri ekki
sjá númers- mark takandi á því og þeir treystu
sér alls ekki til að skrifa undir það.
HELGARPÓSTURINN 7