Helgarpósturinn - 05.12.1985, Blaðsíða 23
iÍ^^^^argir urðu fyrir sárum
vonbrigðum síðastliðinn sunnudag,
þegar auglýst afmælisdagskrá rás-
ar 2 féll niður af „óviðráðanlegum"
ástæðum, að því er sagt var. Staðið
hafði til að útvarpa frá því kiukkan
átta um kvöldið og fram eftir nóttu,
en fregnir herma að ekki hafi unnist
tími til að undirbúa þáttinn, þó hann
hafi „slysast" í dagskrána, eins og
einn starfsmanna rásarinnar komst
að orði. Þetta þykja mönnum undar-
leg vinnubrögð og ekki beinlínis
rásinni til sóma.. .
lEins og yngstu lesendur þess-
ara dálka vita manna best, ákváðu
dagskráryfirvöld á rás 2 að skera
hálftíma framan af morgunþáttun-
um í fyrrihluta hverrar viku. Nú um
nokkurra mánaða skeið hefur svo
barnaefni hljómað á þessum út-
sendingartíma, sem er í sjálfu sér
gott þar sem alltaf er svo að öll börn
komast ekki í skólann á hverjum
degi til dæmis vegna veikinda og
sést af þessu hvað yfirmenn út-
varpsins hugsa vel um þarfir jafnt
smæstu og stærstu viðskiptavina
sinna! En þetta hefur sínar afleiðing-
ar: Stranglega er bannað að auglýsa
svo börnin heyri og hefur því þurft
að hliðra til og fella niður þá aug-
lýsingatíma sem annars eiga inni í
hverjum klukkutíma af útsendingu
rásarinnar. Kvótinn í þeim efnum
hefur verið þrisvar sinnum þriggja
mínútna innskot á klukkustund, en
þar sem barnaefnið varir núna í
hálfan fyrsta klukkutíma af útsend-
ingu rásarinnar á mánudögum og
þriðjudögum, er nú svo komið að
eitt þessara innskota hefur verið
fellt alveg niður, en hinum tveimur
þröngvað með fárra mínútna milti-
bili inn á hálftímann sem eftir er.
Áætlað tekjutap rásarinnar af þess-
um tilfæringum mun nálgast 80
þúsund á viku, sem gerir þá líkast til
eitthvað yfir 300 þúsund í jólamán-
uðinum...
l haust auglýsti jafnréttisnefnd
Norrænu ráðherranefndarinnar eft-
ir starfskrafti til þess að annast fram-
kvæmd samnorræns verkefnis á
Akureyri. Nú hefur Valgerdur H.
Bjarnadóttir, fyrrum forseti bæjar-
stjórnar Akureyrar, verið ráðin til
þess að hafa umsjón með þessu
verki, sem gert er ráð fyrir að taki
fjögur ár. Markmið verkefnisins er
að auka fjölbreytni í náms- og starfs-
vali kvenna, hvorki meira né minna,
og mun Valgerður því koma til með
að vinna í nánum tengslum við
skólayfirvöld og atvinnurekendur á
svæðinu. Samskonar starf verður
unnið á öllum Norðurlöndunum á
næstu árum og niðurstöðurnar síð-
an kynntar i Norðurlandaráði. .
W ið höfum áður sagt lesend-
um okkar frá afrekum Flokks
mannsins á erlendri grundu. I okt-
óber héldu nokkrir félagar frá
Flokki mannsins til Finnlands og
stofnuðu þar manngildisflokk sem
heitir á finnsku Humanistinen
Poulue. Ekki létu félagar úr Flokki
mannsins þar við sitja heldur boð-
uðu fagnaðarerindið ennfremur á
Irlandi í byrjun nóvember. Og sjá:
undirtektir íranna við komu hinna
íslensku manngildisvina voru með
fágætum. Flokkur var stofnaður á
írlandi með 135 stofnfélögum í
hinni frægu verkalýðshöll Liberty
Hall. Flokkur mannsins lieitir á
ensku The Humanist Party. Ekki
láta hinir vösku íslendingar þar við
sitja, heldur hafa nú boðið tveimur
írum til fslands til að kynna sér
flokksstarfsemina hérlendis. Komu
þeir hingað fyrir nokkrum dögum
og dvelja hér í 12 daga. Munu írarnir
m.a. fara til Vestmannaeyja og
kynna sér starfsemina og halda
fundi og námskeið þar og hér í
Reykjavík. Einnig munu þeir halda
fyrirlestur í dag, fimmtudag, í Há-
skóla íslands undir yfirskriftinni
„Getur manngildisstefnan brúað bil-
ið milli kaþólskra og mótmælenda á
írlandi?" Eins og sést á þessari yfir-
skrift ætlar Flokkur mannsins á fs-
landi sér ekki lítið verkefni á ír-
landi...
SVEINN EGILSSON HF,
Skeifunni 17. Sími 685100.
SUZUKI
HELGARPÓSTURINN 23