Helgarpósturinn - 05.12.1985, Síða 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Blaðamenn: Edda
Andrésdóttir, Jóhanna
Sveinsdóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea J. Matthíasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Steinþór Ólafsson
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimasími: 74471)
Afgreiðsla:
Berglind Björk Jónasdóttir
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Nú hefðum við
þurft Vilmund
Jón Ormur Halldórsson hef-
ur skrifað bók um stjórnmála-
sögu Vilmundar Gylfasonar.
Heiti bókarinnar er sótt í eitt
þekktasta orðatiltæki Vilmund-
ar: „Loglegt en siðlaust."
Bók þessi er um margt
merkileg. í fyrsta skipti er gerð
tilraun til að raða saman hug-
myndum Vilmundar og stjórn-
málaskoðunum og setja þær í
skipulegt samhengi en heildar-
sýn almennings á stjórnmála-
manninum og hugsuðinum Vil-
mundi vildi oftast fara forgörð-
um. Vilmundur var það mikill
baráttumaður og fyrirferðar-
mikill á síðasta áratug og í byrj-
un þessa, að menn fylgdust
meir með honum íeinni orrustu
til annarrar, í stað þess að sjá
verk og hugsjónir Vilmundar í
heild.
Það er erfitt að skrifa bók um
Vilmund Gylfason. i fyrsta lagi
er persóna hans og atburðirnir
honum tengdir það nálægir í
tíma og rúmi að erfitt er að ná
föstum tökum á efninu. En Jón
Ormur gefur sig ekki út fyrir að
vera sagnfræðingur og einbeit-
ir sér fyrst og fremst að því að
leita skilnings á hugmyndum
Vilmundar Gylfasonar eins og
fram kemur m.a. af viðtali
Helgarpóstsins við Jón Orm í
þessu tölublaði.
Við lestur stjórnmálasögu
Vilmundar Gylfasonar kemst
lesandinn að raun um hve miklu
eldhuginn Vilmundur áorkaði á
skömmum tíma og hve víða
liggja eftir hann spor í íslensku
þjóðlífi. Vilmundur skar upp
herör gegn flokkakerfi, sam-
tryggingu, spillingu, mútu-
þægni og múlbindingu fjöl-
miðla.
Við þennan lestur finnur
einnig lesandinn sárt til sökn-
uðarins við dauða Vilmundar,
þessa einstaka stjórnmála-
manns og manneskju sem allt-
af barðist fyrir réttlætinu og
prinsippi hvers máls án þess að
láta ættartengsl, hagsmuni eða
kunningsskap hafa þar áhrif á.
Nú þegar sukkið og svínaríið
í kringum Hafskipshneyksliö
og Útvegsbankaafglöpin veltur
yfir þjóðina, finnum við fyrir
tómarúminu sem Vilmundur
skildi eftir. Enginn þingmaður
hefur sýnt sig vera með tærnar
þar sem Vilmundur var með
hælana. Nær þingheimur allur
stendur nú þegjandi og horfir á
tær sér.
Við hefðum þurft á Vilmundi
að halda þessa dagana.
LAUSN Á
SKÁKÞRAUT
31.
Leikröðin 1. - Kc6 2. Be4 mát
bendir til þess að hrókurinn og
biskuparnir séu vel settir þar sem
þeir eru og annarhvor riddarinn
eigi að stíga fyrsta sporið. Svarti
kóngurinn á um þrjá reiti að velja
og þarf að búa honum mát á
hverjum þeirra sem er.
1. Re2
og mátar í næsta leik. Sérstaklega
þykir mér mátið 1.-Kc4 2. Be6 fal-
legt.
32.
Þetta er snoturt dæmi um ofríki,
svarti biskupinn er ekki óhultur á
neinum reit nema þeim sem hann
stendur á. Hafi maður komið auga
á þetta er lausnin ekki flókin:
1. Bh5 Nú verður svartur að leika
biskupnum, hvítur hirðir hann
með riddara eða peði. Því næst
verður svartur að leika b-peðinu
og þá kemur 2. Bf3 mát.
HANSKAR OG TÖSKUR í ÚRVALI
Teg. 6951
Kr. 2.300.-
Litir: Grátt, svart.
Hanskar
r
Skinn
Frákr. 1.195.-
Litur: Svart, brúnt, beige.
Teg. 6952
Kr. 1.850.-
Litir: Grátt, svart.
PÓSTSENDUM
Teg. 6985
Kr. 2.300.-
Litur: Grátt, svart.
Hanskar
Rúskinn
Kr. 796.-
Litur: Svartur, brúnt, biátt.
VERSLUNIN JÓJÓ AUSTURSTRÆTI8 sími 13707.
1—2—3 rakvélin
frá Braun vinnur verkið fullkomlega
Tvœr gerflir ^ með
Nú eru götin á rakþynnunni
stærri en áður og það þýðir
fljótvirkari og betri rakstur. Gott
hefur orðið ennþá betra. Þú
hefur því 1 —2—3 nýjar ástæður
til að prófa 1—2—3 rakvélina.
í tilefni þessara tímamóta
hjá BRAUN hefur verslunin
PFAFF, ásamt
umboðsmönnum um land
allt, ákveðið að gefa kaup-
endum skilafrest ef þeir eru
ekki ánægðir með þá
BRAUN rakvál sem þeir
kaupa nú á næstunni. Skila-
fresturinn er til 31.
BRAUIM
Þeir hjá BRAUN vilja vera
fremstir. Þess vegna hönnuðu
þeir rakvél sem þú getur verið
fullkomlega sáttur við. Þeir kalla
þetta „Kerfi 1-2-3".
Eins og myndin sýnir hafa
karlmenn þrenns konar skegg-
vöxt. Kerfi 3 snyrtir barta og
skegg. Kerfi 2 rakar linari og
„óþekk" hár. Kerfi 1 sér um
hina venjulegu skeggrót, rakar
þéttar og betur en áður.
Kerfi 1. Rakþynnan vinnur ein og rakar
hiö venjulaga skegghár 6
kinnum og höku.
Kerfi 2. Á þessari stillingu kemur bart-
skerinn upp að rakþynnunni og
klippir löngu og „óþekku"
hárin á hálsinum. Samstiliing
rakþynnu og bartskera f sömu
yfirferö.
Kerfi3. Bartskerinn fer i hnstu
stillingu og þú snyrtir barta og
skegg.
hefur enn einu sinni sannað
að þeir eru í fremstu röð
Verslunin
PFAFF
Borgartúni 20
'0 HELGARPÓSTURINN