Helgarpósturinn - 19.03.1987, Síða 3
FYRST OG FRtMST
HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR
FÉLAGSFRÆÐINGAR og
fræðingar á skyldum sviðum fá
stundum ákúrur fyrir óskiljanlegt
málfar, ekki síst ef fræðingarnir
eru menntaðir í Skandinavíu. Fara
þeir þá ósjálfrátt í taugarnar á
„íhaldssömum" mönnum af gamla
skólanum. Við sjáum hins vegar
enga ástæðu til að hnýta í fóik
sem vill vera fræðilegt. í DV í
vikunni skrifa þær Sveinbjörg J.
Svavarsdóttir þjóðfélagsfræðingur
og Hansína B. Einarsdótiir afbrota-
fræðingur um vændi og greina
meðal annars frá þeim niður-
stöðum úr finnskri könnun að
vændiskonur þar í landi komi úr
öllum stéttum og „hafa ekki
vandamálafylltan bakgrunn". Er
nokkuð við svona hugtak að
athuga?
BÆNDUR eru margir súrir
vegna niðurskurðarstefnunnar í
landbúnaðinum. Þeir gerast varla
súrari og um leið skeleggari en
hann Þorvardur Júlíusson bóndi í
V-Húnavatnssýslu, sem skrifaði í
Moggann í vikunni. Hann leggur til
að landbúnaðurinn verði endur-
reistur og til þess selji ríkið Ríkis-
útvarpið, Áburðarverksmiðjuna,
Kollafjarðarstöðina, Póst og síma,
Rarik og „ótal önnur ríkisfyrir-
tæki“ og fækki um leið ríkisstarfs-
mönnum stórkostlega. Með öðrum
orðum: rakleiðis inn í 19. öldina á
ný. . .
GRIMUbúningaleiga Bóthildar
Steinþórsdóttur er nú auglýst til
sölu. Til að gera „vöruna" lokk-
andi fylgja auglýsingunni þau
meðmæli að leigan sé tilvalin
„fyrir heimavinnandi húsmæður'
Þá væntanlega af hvoru kyninu
sem er. . .
SVERRIR Hermannsson
menntamála er umdeildur maður
eins og alþjóð veit. Framganga
hans í fræðslustjóramálinu er enn
víða heitt deiluefni, en líka er
gantast með málið. Þannig segir í
Stúdentablaöinu, að nýlega hafi
framkvæmdastjóri íþrótta- og
æskulýðsmála Reykjavíkur komið
að máli við fréttastjóra Morgun-
blaðsins (þeir eru fjórir) til að
upplýsa um skipun Sverris á
manni í stöðu. Fréttastjórinn mun
þá hafa hváð og spurt: „Er þetta
rétt? Ertu viss um að hann hafi
ekki verið að reka hann?“
SMARTSKOT
BYLGJAN var með ofurlitla
getraun hjá sér á þriðjudaginn.
Hlustendur skyldu þá hringja inn
ef þeir vissu heitið á þeim þremur
lögum sem spiluð höfðu verið þar
á undan. Verðlaunin skyldu verða
málsverður fyrir tvo á Kentucy
fried. Margir hringdu inn en flestir
götuðu þegar á hólminn var
komið. Og hver skyldi síðan hafa
unnið fast (djönk) food réttinn
fyrir tvo? Enginn annar en Mark
Brink, tónlistarmaður og vel
metinn kokkur í veitingahúsinu í
Glœsibœ. Verði kokknum að góðu!
MORGUNÞÁTTUR rásar 2 er
með sérstakan tíma sem kallast
óskalög yngstu hlustendanna eða
eitthvað þess háttar. Mikil ásókn
mun vera hjá þeim yngstu að
koma að óskalagi og símakerfið
annar alls ekki öllum þeim hring-
ingum sem berast. Einn umsjónar-
maður þáttarins hafði þó svör við
þessu á reiðum höndum á mánu-
daginn síðastliðinn. Hann sagði
þeim yngstu að í stað þess að
hringja, skyldu þau bara skrifa
þættinum og þá myndu umsjónar-
mennirnir bregðast vel við og
leika óskalögin, bréflega.
í NÝJASTA hefti fréttabréfs
Ríkismats sjávarafurða eru teknir
í gegn allir þeir sem þrífa báta
sína úr hafnarsjó, enda þykir þeim
þar á bæ þetta „fádæma sóða-
skapur", „hirðuleysi og trassaskap-
ur“ og gæði íslenskra sjávarafurða
í hættu. Blaðið fer hringinn í
kringum landið til að kanna sóða-
skapinn. Staðir með þennan sóða-
stimpil reyndust vera á Snœfells-
nesi, víða á Vestfjörðum (Patró sér-
staklega tiltekið), Siglufjörður,
Sandgerði og Hafnarfjörður (litlu
bátarnir). Reykvískir bátaeigendur
höfðu tekið sig saman í andlitinu
og voru farnir að þrífa upp úr
fersku vatni og slík þrif þóttu
áberandi á Austurlandi og í Vest-
mannaeyjum. Leiðarahöfundurinn
Halldór Arnason er myrkur í máli
um þrif upp úr menguðum hafnar-
sjó og spyr: „Hver vill sjóða eða
skola soðningu sína í hafnarsjó?"
og svari hver fyrir sig. . .
EITT SINN orti Matthías
Jochumsson: „Hólastóll með hefð
og sóma/hafinn stóð/biskup nýr
með listaljóma/lýstí þjóð./Postul-
lega prýddi Hóla/presta lærði,
vígði skóla/lék á hörpu himna-
ljóð.“ Langt er síðan Hólar í
Hjaltadal voru miðpunktur þjóð-
félagsins og helsta uppspretta
vísdóms og valda. Á kirkjuþingum
hafa komið fram tillögur um
endurreisn fornrar frægðar Hóla
og Skálholts sem fullgildra
biskupssetra. Ekki það, að á
Hólum fari ekki fram göfugur
búskapur, þvert á móti, en nokkuð
hefur hlutverkið breyst. Nú berast
þaðan fréttir af sæðingum og
kynbótum. Ekki er þá átt við
mannskepnuna, heldur er að
Hólum refahögnastöð og um
þessar mundir eru menn að búa
sig undir að sæða 700 læður og
nýlokið sérstöku námskeiði í
sæðingum. Eitthvað myndi hann
Matthías kveða á aðra lund nú á
dögum.
Þingslit
Úti á þessum heimsins hjara
heyrist gá:
Þingmenn eru að fara að fara
fljúgast á.
Niðri
,,Það er rétt að Alexander og Jón hafa
ekki náð til fjöldans eins og viö Halldór..."
STEINGRlMUR HERMANNSSON FORSÆTISRÁÐ-
HERRA OG FORMAÐUR FRAMSÖKNARFLOKKSINS i
SAMTALI VIÐ DV VARÐANDI HUGSANLEGAR
BREYTINGAR Á RAÐHERRALIÐI FLOKKSINS, EF
HANN TEKUR ÞATT I NÆSTU RlKISSTJÖRN.
Nú stendur yfir verkfall Hins (slenska kennarafélags og af þeim sökum
standa framhaldsskólar nú auðir og nemendur kúra undir sæng, sumir
uggandi um hvort þeir nái að klára stúdentsprófið sitt á réttum tíma.
Formaður H.i.K. er Kristján Thorlacius og HP hafði af þessu tilefni sam-
band við hann og spurði hann nokkurra spurninga varðandi verkfallið.
Er þetta ekki allt
ykkur að kenna?
Kristján Thorlacius, menntaskólakennari
„Nei, nei. Þetta verkfall hefur auðvitað sinn aðdraganda.
Fólk veit hve erfitt það er að manna stöðurnar í framhaldsskól-
unum og af hverju það stafar. Margir myndu eflaust svara því
til, að betra sé að setja allt í hnút núna en slá því á frest fram
á haustið. Það er Ijóst, að ef ekki er tekið á málinu af alvöru
núna, verður komið í mikið óefni þegar skólar taka til starfa
aftur eftir sumarleyfið."
— Hvernig líkar hægláta kennaranum að vera orðinn
þjóðþekktur?
„Þetta er svo sannarlega ekki hans óskastaða og ég ætla mér
ekki að gera verkalýðsbaráttu að ævistarfi. Það fylgir hins vegar
minni núverandi stöðu að vera mikið í fjölmiðlum og þá er bara
að taka því. Þetta er hluti af starfinu. Óneitanlega finnur maður
samt mun á álaginu við fjölgun fjölmiðlanna, sem orðið hefur
frá því við stóðum síðast í stórræðum."
— Færðu viðbrögð frá fólki á förnum vegi?
„Það er töluvert um að fólk gefi sig að mér, já. Fólk, sem ég
þekki ekki neitt. I langflestum tilvikum eru þessi viðbrögð já-
kvæð og hvetjandi. Raunar man ég ekki eftir dæmi um annað
en mjög ánægjuleg samtöl og stuðningsyfirlýsingar."
— Hvað með samskipti við skólameistara framhalds-
skólanna? Hefurðu fengið miklar skammir frá þeim?
„Síður en svo, enda skilja þeir vandann kannski öðrum betur.
Það getur verið mjög erfitt fyrir skólastjórana að manna skipin
og þeir eru ekki öfundsverðir á sumrin og haustin, þegar það
stríð stendur sem hæst. Sá vandi hefur farið sífellt vaxandi á
undanförnum árum.
Það er líka ánægjulegt að finna hve nemendur sýna okkur
mikinn skilning. Við kunnum að meta það."
— Hvernig er að eiga alnafna, sem einnig er í verka-
lýðsbaráttu?
„Ég hef ekki fundið svo mikið fyrir því. Þetta var meira áþer-
andi fyrir nokkrum árum. Mig grunar að það hafi aðallega verið
nafni minn, sem fann fyrir þessu. Hann var gjarnan gerður
ábyrgur fyrir því, sem ég hafði sagt eða gert."
— Hvernig kanntu persónulega við Indriða H. Þor-
láksson? Getið þið aðskilið hið opinbera stríð ykkar og
persónurnar, sem heyja það?
„Ég kann alveg Ijómandi vel við Indriða og ég held að það
sé gagnkvæmt."
— Hvernig ertu búinn undir langa baráttu?
„Við gerðum okkur grein fyrir því í upphafi að þetta gæti orð-
ið langt stríð. Menn eru eflaust misvel í stakk búnir, fjárhags-
lega, en við gerum okkur vel grein fyrir mikilvægi þess að fá
úr þessu skorið núna í stað þess að skjóta vandanum á frest til
haustsins."
— Hvernig tekur fjölskyldan þessu?
„Einstaklega vel. Ég á fimm dætur — fjórar eru orðnar það
gamlar að þær skilja um hvað málið snýst, en sú yngsta er að-
eins fjögurra ára og er kannski ekki fullkomlega með á nótun-
um. Hún svarar þó hiklaust í símann að ég sé á fundi, ef ég er
ekki heima."
HELGARPÓSTURINN 3