Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 9
Albert Guðmundsson: Iðnað-
arráðherra og fyrrverandi fjár-
málaráðherra hefur gjarnan
verið líkt við korktappa í öllu
havaríinu vegna Hafskips-
hneykslisins. Flýtur hann
áfram?
sjálfur fram á frest til að skýra mál
sitt síðar og var honum veittur frest-
ur tii þess. Til þess er hins vegar tek-
ið, að fresturinn er ótilgreindur —
og þykir mörgum sjálfstæðismann-
inum það miður og jafnvel mistök af
hálfu þingflokksins.
Því er haldið fram, að Þorsteini
Pálssyni sé full alvara með kröfu
sinni um afsögn Alberts. Hann sé
búinn að stíga fyrsta skrefið og úr
því sem komið sé verði ekki aftur
snúið. Raunar meta sumir mál þann-
ig, að nái Þorsteinn fram með kröfu
sína, geti það orðið álitsauki fyrir
Þorstein sem formann og um leið
fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem slíkan.
I þessu sambandi er bent á, aö
framboösfrestur vegna alþingis-
kosninganna 25. apríl sé ekki lid-
inn, og því sé enn tími til þess að
breyta framboöslista sjálfstœdis-
manna í Reykjavík, þar sem Albert
Gudmundsson skipar efsta sœtid.
Áhrifamenn í Sjálfstœdisflokkn-
um stadhœfdu ísamtölum við Helg-
arpóstinn, ad það sem vekti augljós-
lega fyrir Þorsteini Pálssyni vceri ad
útkljá þetta mál ádur en umrœddur
frestur rennur út.
Þetta þýdir, að til úrslita muni
draga um pólitíska framtíð Alberts
Guðmundssonar strax í nœstu viku
því fresturinn erað þessu sinni 4 vik-
ur og þrír dagar.
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki bú-
inn að skila inn sínu framboði í
Reykjavík og því er enn tími til að
breyta framboðslistanum segja
sömu menn. Verði listanum breytt
gæti svo farið, að Albert færi fram
sérstaklega í Reykjavík, þótt frestur-
inn sé skammur. En kjarni málsins
er sá, að talið er, að Þorsteinn Páls-
son sæki það fast að Albert Guð-
mundsson verði látinn víkja, því
óverjandi sé að efsti maður á fram-
boðslista flokksins í Reykjavík hafi
lent í skattrannsóknarstjóra, sem
hafi úrskurðað vegna rangra skatt-
framtala ráðherrans í tengslum við
Hafskipshneykslið.
1 samtölum Helgarpóstsins við
ráðamenn í Sjálfstæðisflokknum
kom fram, að það er ríkjandi sjónar-
mið, að engu skipti hversu háar fjár-
hæðir er um að ræða í máli Alberts
Guðmundssonar iðnaðarráðherra.
Hann hafi gerzt brotlegur við
skattalögin ár eftir ár, þar af bæði
árin, sem hann gegndi embætti fjár-
málaráðherra, og slíkt sé ólíðanlegt
og óverjandi fyrir flokkinn eigi
hann að teljast trúverðugur.
HELGARPÓSTURINN 9