Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 10
HP
HELGARPÖSTURINN
Ritstjóri:
Halldór Halldórsson
Ritstjórnarfulltrúar:
Helgi Már Arthursson
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Blaðamenn:
Friðrik Þór Guðmundsson
Gunnar Smári Egilsson
Guðlaugur Bergmundsson
Kristján Kristjánsson
Jónína Leósdóttir og
Óskar Guðmundsson.
Ljósmyndir: Jim Smart.
Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson.
Skrifstofustjóri:
Garðar Jensson.
Auglýsingastjóri:
Hinrik Gunnar Hilmarsson
Auglýsingar:
Sigurður Baldursson
Sveinbjörn Kristjánsson
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimasími: 74471)
Guðrún Geirsdóttir
Afgreiðsla:
Bryndís Hilmarsdóttir
Ritstjórn og auglýsingar
eru að Ármúla 36, Reykjavík sími
681511. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36, sími 681511.
Útgefandi: Goðgá h/f
Setning og umbrot:
Leturval s/f.
Prentun: Blaðaprent h/f.
Týnda kynsldðin er fyrirbrigði
sem skotið hefur upp kollinum í
veitingahúsinu Hollywood nú ný-
verið. Nafnið eitt hefur vakið
nokkra athygli, sérstaklega eftir að
menn sáu myndir af köppum eins
og Rúnari Júlíussyni í stól sem
bjargað var úr Glaumbæ á sínum
tíma. Rúnar hefur lengi verið í
fremstu sveit íslenskra poppara og
var uppá sitt besta í Trúbroti heitnu
á árunum kringum 1970 en sú
hljómsveit hefur hingað til verið tal-
in heyra til kynslóð sem kennd er
við það fræga ártal 1968. Þessi kyn-
slóð, þ.e. '68 kynslóðin, hefur svo
sannarlega ekki verið gleymd,
hvorki fyrr né síðar, hún hefur á
hinn bóginn verið mest umtalaða
kynslóð seinni tíma og lærðir jafnt
sem leikir verið ósparir á að eigna
henni áhrif í samtímanum, bæði
ljóst og ieynt, auk þess sem allar
gerðir nútímamannsins virðast að
einhverju leyti vera andsvar við
gerðum blómabarnanna. Það kem-
ur því spánskt fyrir sjónir ef menn
úr þessum hópi eru farnir að kalla
sig týndu kynslóðina. Hvað mega
þá aðrir segja?...
D
■^Áeyndar er eins og vakning
hafi orðið meðal tónlistarmanna
sem komnir eru af allra léttasta
skeiði, um að koma saman og reyna
að öðlast fyrri vinsældir á ný. Nægir
í því sambandi að benda á óhemju
vinsældir Ríó tríósins, sem komið
hefur fram á milli 70 og 80 sinnum
á undanförnum tveimur árum,
Þokkabót var með skemmtun á
Sögu síðastliðið haust, fjölmörg
„show" hafa verið sett upp á
Broadway þar sem eldri músíkant-
ar hafa verið í aðalhlutverkum; má
þar nefna Söngbók Gunnars
10 HELGARPÖSTURINN
LEIÐARI
Fátækt í góðæri
Fátæktin er ekki fögur. Hún er óþolandi
ástand. Ástand sem brýtur niður hvern þann
sem hafnar í því fari. Hvunndagurinn snýst
um að láta enda ná saman — að nurla saman
til að eiga í sig og á. Þeir eru fátækir sem ekki
tekst að láta enda ná saman. Og um það eru
mörg dæmi. Þú sérð ekki fram úr öllum þeim
skyldum sem þér eru lagðar á herðar. Þú get-
ur ekki staðið við skuldbindingar sem þér
finnst sjálfsagt að þú — eins og aðrir — takir
á þig. Þú brotnar niður. Fyrst andlega. Svo
Ifkamlega. Fátækt er ósigur einstaklings
gagnvart öllu þvf sem hann vildi helst forðast.
Okkur hefur verið talin trú um að dugnaður,
staðfesta og stolt forði frá fátækt, en þetta —
eins og reyndar fleira í barnatrúnni — stenst
ekki. Veruleikinn er annar.
Það varðar miklu að samfélagið komi þeim
til hjálpar, sem tímabundið lenda í erfiðleik-
um. Til þess höfum við byggt upp velferðar-
kerfi. Ekkitil þessað úthluta peningastyrkjum
og þrengja einstaklingum í ákveðinn ramma.
Ramma fátæktar. Velferðarkerfi á að vera til
að hjálpa fólki ti! að geta hjálpað sér sjálft.
íslensk hefð býður að fátækt skuli vera
einkamál. Og þannig er farið með fátækt.
Hún er einkamál þess sem í hlut á. I þessu
felst að hluta til sú skoðun að einstaklingnum
sé um að kenna. Það sé hans einkamál að
koma sér áfram. Hver kannast ekki við fullyrð-
ingar á borð við þessa: Þetta er aumingja-
skapur, annað ekki! Fólk getur rifið sig upp, ef
það vill. Ef það hefur dugnað, staðfestu og
stolt.
En veruleikinn er annar.
Það þarf hugrekki til að viðurkenna fátækt.
Það þarf hugrekki til að standa upp og lýsa —
á mælti máli — hvað það er að vera fátækur.
Hvað það er að leita eftir opinberri hjálp til að
geta séð sér og sínum farborða. Það þarf hug-
rekki af því fátækt er einkamál. Hún er þægi-
legri þannig. Það er notalegra fyrir fjöldann
að vita ekki af henni.
I Helgarpóstinum í dag er viðtal við unga
konu sem greinir frá því á hispurslausan hátt
hvernig hennar fátækt er. Hún segir m.a.: „Við
bjuggum í leiguíbúð, sem ég borgaði 21.000
krónur fyrir á mánuði, en ég var með 24.000
í kaup... Eftir að við komum í bæinn fór sjálfs-
traustið í mola... Ég var komin svo langt niður
að ég bjó við stöðugan ótta um að ég myndi
missa börnin og sá enga leið út úr vandan-
um."
Og þessi hugrakka kona heldur áfram:
„Það að biðja um peninga er það sama og að
„segja sig á sveitina" og slíkt gerir maður ekki
fyrr en allt annað þrýtur. Það er ekki nóg að
mæta niður á Félagsmálastofnun og tilkynna
þeim að maður geti ekki lifað af laununum,
það þarf að fara fleiri, fleiri ferðir áður en eitt-
hvað er gert.
Mér leið hræðilega illa. Manni líður illa áður
en maður pantar tímann, manni líður illa að
ganga þarna inn og manni líður illa að þiggja
þessa hjálp. Manni finnst maður vera aumingi
þótt maður vinni heiðarlega vinnu og geri svo
sannarlega það sem í valdi manns er til að ná
endum saman."
Þetta er fátækt. Veruleiki, sem er líka til á
íslandi. Þetta er veruleiki sumra í góðæri.
Það hefur verið sagt að fátækt og basl væri
hugarástand. Slík fátækt er til, en fyrir þá sem
ekki hafa ráð á því að fæða sig og klæða er
hún grjótharður, miskunnarlaus veruleiki.
Niðurbrjótandi og Ijót.
í augum þeirra sem fara með völd er
fátæktin „abstrakt". Þeir heyra um hana.
Halda að hún sé einangruð við nokkra ein-
staklinga, sem hljóti hjálp í velferðarkerfinu.
Við skulum fullyrða að þeir viti ekki betur. í
allsnægtaþjóðfélagi er fátæktin ekki lrab-
strakt". Hún er „absúrd". Hún ætti ekki að
vera til.
Þórðarsonar, Rokkárin og fleira.
Týnda kynslóðin var kannski angi
af þessu og með orðinu týnda er þá
átt við að þetta séu gleymdir popp-
arar, en ekki að hér sé á ferð kyn-
slóð sem hafi lent milli vita í umræð-
unni í samfélaginu. . .
ær fréttir eru helstar neðan
af auglýsingadeild Ríkisútvarps-
ins að Steinþór Ólafsson deildar-
stjóri hefur sagt starfi sínu lausu eft-
ir stuttan stans hjá stofnuninni og
hyggst taka við hótelstjórastöðunni
í Valaskjálf á Egilsstöðum frá og
með næstu mánaðamótum ...
SL _ ~ -
gefið út einkar handhægt dagskrár-
blað, Miðillinn, og hefur að hluta til
verið dreift ókeypis, en enn fremur
verið fylgirit Þjóðviljans. í síðustu
viku hætti Miðillinn skyndilega að
koma út. Þjóðviljanum sem hefur
orðið býsna skrafdrjúgt um ágæti
flokksins síns að undanförnu, nægði
hins vegar í þessu tilfelli að tilkynna
lesendum sínum þennan niður-
skurð á útgáfunni í tveimur setning-
um. í fyrri setningunni var sagt að
Miðillinn væri farinn í frí, en í seinni
setningunni var sagt að það væri
vegna anna á ritstjórn vegna kosn-
inganna. Helgarpósturinn hefur fyr-
ir satt að báðar þessar setningar eigi
ekki við rök að styðjast, og hefði
blaðið logið betur með þögninni í
þessu tilfelli. Samkvæmt áreiðan-
legum heimildum er Miðillinn ekki
farinn í frí, heldur hefur verið
ákveðið að hætta útgáfu hans. I
öðru lagi hafa kosningarnar ekkert
að gera með þá ákvörðun, því þó
allir blaðamennirnir væru upptekn-
ir við að þjónusta f rambjóðendurna,
þá var Miðillinn unninn af einum
starfsmanni, sem ekkert kom ná-
lægt blaðamennsku á blaðinu. Lag-
lega logið í ekki lengri klausu. . .
S„...............«... „
starfsmanna sinna geta virkað illa á
meðbræður þeirra í lífsbaráttunni,
sérstaklega í litlum samfélögum.
Þannig er þetta í það minnsta á
Breiðdalsvík. Þar er Snjólfur
Gíslason rafgæslumaður fyrir
RARIK. Hann fær eins og aðrir
gæslumenn hjá stofnuninni greidd-
an bílakostnað vegna starfs síns.
Þetta vita allir á Breiðdalsvík. Því er
fylgst vel með akstri Snjólfs, hvort
sem er í miðri viku eða á rúmhelg-
um dögum. íbúar Breiðdalsvíkur
vita að þeir greiða hluta af kostnað-
inum við aksturinn. Og rafmagns-
reikningar eru háir á Breiðdalsvik.
Það vita líka allir. ..
Umræður um
leyniviðræðurnar 1951
á Alþingi:
Undarlega
hljótt — Gögnin
á borðið
„Það er vissulega fróðleg lesning
sem þar liggur fyrir, en það hefur
verið undarlega hljótt um þetta hér,“
sagði Hjörleifur Guttormsson á Al-
þingi í síðustu viku, er hann vakti
máls á frásögnum Helgarpóstsins af
leyniviðræðum Bandaríkjastjórnar
og íslendinga 1951. Hjörleifur krafð-
ist þess m.a. að innlendu gögnin frá
þessum tíma yrðu lögð á borðið.
„Það er raun til þess að vita að ís-
lenskir stjórnmálamenn eins og
Bjarni heitinn Benediktsson skuli
þurfa að búa við það að sagan sé
opinberuð vestur í Washington, en
íslenskir aðilar eigi þess engan kost
enn sem komið er að sjá gjörðir
hans og ákvarðanir og undirbúning
aðdraganda þessa dæmalausa
samnings sem skúmaskotaliðið á
Alþingi á þeim tíma treystist ekki til
að kalla löggjafarsamkomuna sam-
an til að leggja blessun yfir, fyrr en
eftir á,“ sagði Hjörleifur í ræðu sinni.
„Ég skora á utanríkisráðherra, að
hafa frumkvæði að því fyrr en
seinna að birta þessi gögn og leggja
þau á borðið og sinna þar með upp-
lýsingaskyldu sinni" ... „ég treysti
ráðherranum að leggja þessi gögn á
borð þingmanna áður en Alþingi
iýkur, að veita alþingismönnum að-
gang að gögnunum frá fyrri hluta
árs 1951, sem varða samningana,
undirbúning að komu bandaríska
herliðsins til íslands. Þar eru á ferð-
inni atriði sem eru svo alvarleg og
snerta svo stjórnarskrá lýðveldisins
að það getur ekki verið sætt fyrir ís-
lensk stjórnvöld og embættismenn
að sitja með þau niðri í kössum og
láta menn vera að ráða í það með
getsökum eða í gegnum penna frá
bandaríska sendiráðinu á íslandi á
þeim tíma,“ sagði Hjörleifur Gutt-
ormsson.
í svarræðu sinni sagði Matthías Á.
Mathiesen um þessi atriði: „Vissu-
lega þurfa að koma í ljós þegar sagan
verður skrifuð þau hin réttu gögn í
þessum efnum og ég efast ekkert
um að þegar að því verður hugað í
utanríkisráðuneytinu, á þeim tíma
sem það er talið eðlilegt og skyn-
samlegt, verði þau gögn birt. Það
sem þingmaðurinn skoraði á mig að
gera á þessum dögum á ég ekki von
á að geti gerst, en ég trúi því, eins og
ég sagði áðan, að þegar fram líða
stundir, liggi þau gögn ljós fyrir til
að upplýsa hvað hefur þar gerst (þ.e.
árið 1951).“
LAUSN Á SKÁKÞRAUT
45 Laws
Hér er lausnin sjónhverfingu lík-
ust.
Lykilleikurinn 1. Rb3 gefur
kónginum fjóra reiti til að athafna
sig á:
1. -Kxb3 2. Bd5
1. -Kb5 2. Bd3
1. -Ka4 2. Bd5
1. -Kc4 2. Rd6
46. Kohtz og Kockelkorn
Þessi þraut er býsna erfið þótt
ekki séu margir menn á borði —
eða kannski vegna þess. Það er
kóngurinn sem á að hreyfa og
hann má ekki taka d2 frá drottn-
ingunni:
1. Ke2 Kb3 2. Dd2 Ka4 3. Db4
Kc4 3. Dd3
ÍÞRÖTTIR
Tólfan er handan hornsins
Þá eru 25 umferðir afstaðnar í fjöl-
miðlakeppninni og einungis 8 úm-
ferðir eftir, því sú síðasta fer fram
laugardaginn 9. maí og verðlaun ís-
lenskra getrauna er ferð fyrir tvo á
úrslitaleikinn í FA-bikarkeppninni á
Wembley 16. maí. Enn hefur Bylgj-
an góða forystu, en þá er þess að
gæta að aðaltippsprauta Bylgjunn-
ar, Árni Snævarr, er fluttur yfir á
gömlu Gufuna og því aldrei að vita
hvað tekur við. Helst er það Tíminn
sem gæti velgt frelsingjunum undir
uggum. Spámaður HP virðist ekki
ætla að komast nálægt toppnum þó
árangurinn sé svipaður og í fyrra
(þegar hann spáði fyrir Alþýðubiað-
ið og vann). Kemur ekki að sök, því
HP er formlega ekki með af ein-
hverjum dularfulium orsökum.
Þó hefur spámaður HP tekið veru-
lega við sér eftir slakt gengi um og
eftir áramótin, þegar hann komst
alla leið á botninn. Eftir tuttugustu
og fimmtu umferð er staðan nú sú
að Bylgjan trónir á toppnum með
152 rétta, Tíminn er með 147, DV
með 144, Dagur með 143 HP og
Morgunblaðið með 141, RÚV með
140, en botninn vermir Þjóðviljinn.
með aðeins 135. Kominn tími á
marxíska sjálfsgagnrýni á þeim bæ
sýnist mér. Áföll hafa einnig dunið
yfir spámann Alþýðublaðsins, sem í
mini-keppninni við HP hefur á
tveimur vikum glutrað niður 4
réttra forystu í jafntefli. Staðan
134:134. í þeirri keppni eru 24 um-
ferðir afstaðnar, en 9 umferðir eftir.
Næsta leikvika er með erfiðara
móti. Víða geta úrslit orðið á hvern
veg sem er, helst að stóla megi á
Chelsea, Southampton og Derby og
Manchester City með vægum fyrir-'
vara. Kerfisspáin nú er þrír tví-
tryggðir og þrír þrítryggðir (1.080
kr), en þess má geta að tvær síðustu
kerfisspár undirritaðs hafa gefið 11
rétta! Tólfan er rétt handan horns-
ins...
-fþg
Chelsea-W.Ham 64-6(6-2-2) 4-6-6(24-7) 65-25-10 1 1
M.city-Newcastle 64-5(1 4-5) 14-10(1-1-8) 60-35-5 1 1
Norwich-Luton 7-8-1 (4-6-0) 3-5-7(6-34) 3540-25 X lx
Sheff Wed-M.Utd 6-7-2(0-3-7) 1-8-6(34-3) 2540-35 X x2
Sou’mpton-A.Villa 7-2-5(2-l-8) 14-11(1-4-6) 55-30-15 1 i
Watford-Arsenal 84-2(5-3-2) 6-5-5(34-3) 35-35-30 1 1x2
Wimb’don-Q.P.R. 8-34(4-4-2) 3-3-8(7-0-3) 55-20-25 1 1
Birm’ham-Portsm. 6-8-1 (2-6-2) 4-6-5(6-2-2) 3040-30 X 1x2
C.Palace-Leeds 9-2-5(44-5) 2-5-7(3-64) 45-30-25 1 1
Hud’field-Stoke 744(3-4-3) 3-3-10(5-2-3) 35-35-30 1 lx
Hull-Derby 6-3-5(2-44) 9-2-5(6-3-l) 10-30-60 2 2
Sun'land-Oldham 7-5-3(4-0-5) 7-3-5(5-2-3) 40-25-35 1 1x2
Skýringar: Fyrst koma leikir helgarinnar. Þá kemur árangur heimaliðs
heima en innan sviga árangur heima og að heiman í síðustu leikjum. Þá
kemur árangur útiliðs úti en innan sviga árangur heima og að heiman í síð-
ustu leikjum. Þá eru framreiddar prósentulíkur á úrslitum að mati spá-
manns. Þá kemur einföld fjölmiðlaspá en að síðustu breytileg kerfisspá.