Helgarpósturinn - 19.03.1987, Side 12

Helgarpósturinn - 19.03.1987, Side 12
og ég ætlaði að hefja nám en ég fór þó á námskeið hjá skólanum í tvo vetur og sótti einnig tíma hjá Stefáni Gunnlaugssyni listmálara. Reyndar er ég ákveðin í að læra að mála einhvern tíma þótt lítið hafi farið fyrir því að ég máli á síðari árum. Ég er alveg ákveðin í að þegar ég flyt í hús með bílskúr ætla ég að hafa hefilbekk og málaratrönur í bílskúrnum.. PÖNKIÐ FJÁRMAGNAÐI VIÐSKIPTIN En nú er Elín sem sé orðin annar eigandi vandaðrar tísku- verslunar í Reykjavík. Hún segir ástæðuna fyrir stofnun verslunar- innar vera þá að Ragna mágkona sín hafi verið búsett í Þýskalandi í 12 ár og þá hafi fátækir náms- menn ekki haft ráð á að klæðast fötum frá Betty Barclay. Þær ákváðu því að reyna að fá umboðið og var það auðsótt mál: „Reyndar ætluðum við ekki að opna verslun fyrr en vorið '86, en þegar okkur bauðst húsnæði í nóvember ’85 slógum við til. Ég átti peninga á banka sem ég hafði ávaxtað af bílakaupunum frá pönkaraárunum og þeir komu sér vel. Það var því pönkið sem fjár- magnaði viðskiptin til að byrja með! “ segir Elín hlæjandi. Það er ljóst að Elín getur brugðið sér í hin ýmsu hlutverk ef því er að skipta og því ætti engum að koma á óvart ef „Elín Reynis- dóttir listmálari" heldur sýningu á olíuverkum sínum eftir nokkur ár. Hún er til alls vís... Myndin í huga mínum af því hvernig „heföarkona" á ad líta út hefur alltaf verid nokkud skýr. Ég hafdi ad vísu aldrei hitt neina slíka en áöur en Agatha Christie gerðist órjúfanlegur hluti af lífinu lá ég í nokkrar vikur í „óðals- seturssögum". Þegar ég fór síðan í jólaveislu á liðnum vetri sat þessi hefðarkonuímynd skyndilega Ijós- lifandi fyrir framan mig. Hún var alveg eins og hún vœri nýstigin út úr bók — nema hvað síddin á kjólnum samræmdist ekki myndinni í huganum! ÚR KIRKJUKÓR í PÖNKIÐ Elín Reynisdóttir er 29 ára Reykjavíkurstúlka sem rekið hefur versiunina Betty í rúmiega eitt ár ásamt mágkonu sinni, Rögnu Kemp Guðmundsdóttur. Fram- koma hennar og útlit minnir í alvöru að tala á hefðarkonu en þegar maður kynnist Elínu kemur sveitaballatímabilinu lauk fórum við út í flutning á pönkrokki. Við fengum æfingaaðstöðu heima hjá Hilmari Erni Agnarssyni og hljóð- einangruðum þar eitt herbergi með eggja- og appelsínubökkum. Strákarnir sömdu lög og við ákváðum að gefa út plötu með þeim. í framhaldi af þeirri ákvörð- un breyttum við nafni hljóm- sveitarinnar í ÞEYR og gáfum út plötuna Þagað í hel. Þá passaði þessi huggulega ímynd ekki lengur við hljómsveitina svo kærasta Hilmars fékk mig til að RÆTT VIÐ ELÍNU REYNISDÓTTUR, FYRRUM SÖNG- KONU HLJÓM- SVEITARINNAR „ÞEYR" aðrir og vorum ekki með „meiningar” á níu tii fimm fólk — eða manneskjur eins og ég er sjálf orðin í dag! Að vísu þótti ég ekki passa inn í kirkjukórinn svona fríkuð og hætti því í honum.” LÖGMAN NSFRÚ í MIÐRI VIKU. . . „Það var heiimikið upp úr þessu að hafa og ég keypti mér til dæmis nýjan bíl fyrir peningana og sú fjárfesting átti eftir að koma sér vei síðar. Skömmu eftir að við gáfum út plötuna, 1980, kynntist ég manninum mínum, Guðmundi Óla Guðmundssyni lögfræðingi. Við unnum bæði hjá Póstgíró- stofunni og þannig kynntumst við enda er næstum öruggt að Guð- mundur hefði ekki lagt sig eftir því að mæta á ball þar sem hljóm- sveit eins og Þeyr lék fyrir dansi! Hann er sjö árum eldri en ég og var á þessum tíma orðinn hátt- settur lögfræðingur hjá ríkis- stofnun og það kom fljótlega í ljós að það passaði ekki að vera lögmannsfrú á virkum dögum og pönkari um helgar! Ég valdi eigin- manninn fram yfir hljómsveitina, kvaddi strákana í Þey og gerðist húsmóðir. Hárið óx á nýjan leik og ég fór aftur að ganga í „vönduðum kvenfatnaði”.. .!“ Elín á tvær dætur, Þóreyju 10 ára og Ernu 2 ára. Auk pönkara- sögunnar fylgdi frásögn af því að Elín væri frábær smiður? „Frábær smiður!" segir Elín hlæjandi. „Þetta er nú sterkt til orða tekið. Hins vegar er ég alveg brjáluð í við og þegar mágkona mín ein fór á námskeið í smíði hjá Námsflokkum Kópavogs dreif ég mig með henni. Mér fannst óskap- lega gaman að læra að smíða og þar sem ég fann ekkert rúm handa Þóreyju dóttur minni sem mér líkaði ákvað ég að smíða það sjálf. Svo fékk ég einu sinni gefins úrverk frá Sverri í Goldie þar sem hann er úrsmiður og ég söng inn á auglýsingu fyrir hann. Þá fór ég að smíða eldhúsklukkur.. . Aftur á móti ætlaði ég mér alltaf í Mynd- lista- og handíðaskólann að læra að mála því ég hef alltaf verið heilluð af málverkum. Af því námi varð þó aldrei því ég varð ófrísk af eldri dótturinni um svipað leyti „Ég fékkgefinspeysu og klippti af mér hárið." Elín með hljómsveitinni „Þeyr". Myndina tók Guðni Rúnar Agnarsson á fyrstu opinberu tónleikum Þeys ( Norræna húsinu 21. nóvember 1980. í ljós að það er stutt í prakkarann — sem kannski ætti ekki alveg heima inni á óðalssetri. Að minnsta kosti segir sagan að Elin hafi einhverju sinni klippt af sér allt hárið og gerst pönkari. „Já, það er rétt,“ segir Elín brosandi. „Þannig var mál með vexti að systir mín söng með Bústaðakirkjukórnum og spurði mig einhverju sinni hvort ég vildi ekki koma líka í kirkjukórinn því í honum væri svo skemmtilegt fólk. Við vorum aldar upp við tónlist á heimilinu, pabbi spilaði á píanó og söng með Karlakór Reykjavíkur og mamma spilaði á gítar svo mikið var um söng. Við systurnar höfðum báðar lært á píanó í nokkur ár... Mér fannst kjörið að skeiia mér í kórinn og mætti á eina æfingu. Nokkrum dögum síðar var árshátíð kirkjukórsins haldin og ég mætti að sjáifsögðu á hana, enda taldi ég mig fullgildan meðlim þar sem ég hafði mætt á eina æfingu! Á árshátíðinni lék hljómsveitin Frostrós fyrir dansi og þegar við systurnar höfðum sungið með lögunum hástöfum helming kvöidsins kallaði einn hljómsveitarmeðlimanna í mig og spurði hvort ég vildi ekki alveg eins standa á sviðinu og syngja. Ég gerði það og var samstundis ráðin sem söngkona hljómsveitar- innar! Við skemmtum víða, bæði hér í borginni og úti á landi og höfðum nóg að gera. Á þessum tíma lagði ég mikla áherslu á að vera fallega klædd og var með þetta fína, síða hár — gerði í því að vera „hugguleg", en það átti nú eftir að breytast! Meðan við vorum á þessu „Stína var lítil" plani passaði ég ágætlega inn í myndina svona „pjöttuð"! Við sungum róleg, mjúk lög, — dæmigerðar lummur en svo þegar vera módel hjá brasilískri hár- greiðslukonu sem hér var stödd. Hún kiippti af mér allt hárið þannig að eftir stóðu bara broddar upp í loftið og toppar fram á and- litið. Klæðnaðurinn varð auðvitað að breytast í samræmi við þetta og ég fékk mér níðþröngar stretchbuxur og hermannastígvél og Sigga og Sverrir í Goldie gáfu mér ekta pönkarapeysu. Svona var ég, söng og öskraði og fannst þetta æðislegur tími. Það var ekkert sukk á okkur, síður en svo og til að fá „fíling" hoppaði ég upp og niður stiga áður en ég kom fram á sviðið — verra var það nú ekki! Við vorum ekki harð- svíraðir pönkarar eins og sumir 12 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.