Helgarpósturinn - 19.03.1987, Side 19
Orn Svavarsson
heildsali í
Helgarpóstsviðtali
líf og atvinnu? „Það er óaðskiljanlegt!" segir
hann. „Ég byrja daginn á góðum sundspretti fyr-
ir klukkan sjö á morgnana og fer þaðan beint á
skrifstofuna. Ég er yfirleitt í vinnunni fram til
klukkan sjö, átta á kvöldin og tek þá oftast með
mér heim einhver verkefni sem þarf að ljúka.
Helgarnar fara í vinnu annan hvorn daginn,
laugardag eða sunnudag, og þann dag sem ég er
ekki að vinna er ég með börnunum rnínurn."
— Hvað gerirðu meö þeim?
„Það er svona eitt og annað, yfirleitt það sem
þau óska eftir. Við förum í ökuferðir eða göngu-
ferðir, spiium eða dundum okkur heima við, allt
eftir veðri og þeirra óskum . ..“
— Ertu góður pabbi?
„Krakkarnir kvarta alla vega ekki undan mér!
Ég held að minnsta kosti að þeim þyki gaman að
vera með mér ...“
— Ertu heilsufrtk?
„Nei, það er mikið langt frá því! Ég er ekki
nokkur íþróttamaður fyrir utan þessa 200 metra
sem ég syndi daglega til að halda mér liðugum.
Ég les aldrei íþróttasíður í nokkru blaði og
íþróttaþættir í sjónvarpi eru neðstir á lista hjá
mér.”
Þegar Örn er beðinn að segja skoðanir sínar
á stjórnmálum og trúmálum svarar hann: „Úff!
Ég hef alveg sérstakar skoðanir á þeim málum
en að ætla að fara að svara þeim í nokkrum setn-
ingum er út í hött. Það þyrfti minnst opnu til að
koma þeim á framfæri!"
Hann segir áhugamál sín vera „það sem ég er
að gera á hverjum tíma. Ég er í þessu sama
amstri og aðrir og reyni að njóta þess sem ég er
að gera hverju sinni, hvort heldur það er vinna
eða annað."
MIKIÐ FYRIR GÓÐAN MAT
OG VÍN
— Ertu kvennamaður?
Hrossahlátur: „Hvers konar spurning er þetta
eiginlega???!"
— Þú ert í viðtali. Heldurðu þú vildir gjöra svo
vel að svara??
„Ég neita að svara þessu nema lögfræðingur
minn sé viðstaddur!" segir hann glottandi.
—■ Svo við snúum okkur þá að frístundum.
Hvað gerirðu þá?
„Ég hef stundað laxveiði í nokkur ár og hef
svona aðeins fiktað við golfið á undanförnum
árum. Svo sæki ég mikið tónleika því ég er mjög
hrifinn af tónlist — svo til allri tónlist nema þá
helst þessari svokölluðu nútímatónlist. Jazz er í
miklu uppáhaldi hjá mér og þegar ég er í útlönd-
um gref ég upp allar jcizzbúllur sem ég get.“
Örn þykir frábær kokkur og býr gjarnan til
mat sem ekki er algengur hérlendis. Áhuga á
matargerð segist hann sækja allt til bernskuár-
anna enda hafi mamma hans kennt þeim systk-
inum að elda: „Eftir að ég fór síðan að versla
með matvörur sjálfur hefur þessi áhugi aukist
verulega," segir hann. „Ég er mikið fyrir góðan
mat — og reyndar góð vín líka. Ég nota mikið af
grænmeti og fiski — og bý líka til pastamat þótt
ég viti vel að það sé ekki það hollasta sem mað-
ur lætur ofan í sig!"
Hann segist njóta þess að lifa „enda er það
mín fílósófía að njóta starfs og leiks meðan það
varir. Það sem mér hefur lærst fram að þessu er
að njóta lífsins og horfa á björtu hliðarnar. Lífið
er stutt og það er um að gera að vera jákvæð-
ur...“