Helgarpósturinn - 19.03.1987, Síða 38
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA UM HELGINA?
ÁMUNDI ÁMUNDASON
ÁRÓÐURSMEISTARI (MEÐ MEIRU)
Það er alls ekki fastmólad. Þó
stendur til aö fara í Hollywood á
föstudaginn að upplifa þar hina
týndu kynslóð, sem aldrei hefur
fundið sér samastað síðan Glaum-
bœr brann, heldur dreifst á hina
ýmsu skemmtistaði. Maöur átti gíf-
urlega góðar stundir með Hljómum
og Dúmbó og fleirum og það veröur
gaman að hitta gömlu góðu félag-
ana frá þessum tíma. Ég vona að ég
yngist um að minnsta kosti 5 ár, ekki
veitir af í kosningabaráttunni. Á
laugardag verða fundahöld og á
sunnudag farið til Akureyrar ásamt
góðvini mínum Árna Gunnarssyni,
aö undirbúa stórhátíð í Sjallanum
4. apríl.
MÁL OG MENNING
Bölv og ragn (2)
eftir Halldór Halldórsson
Mér er til efs, að fólk geri sér almennt grein fyrir, að fyrir áhrif
kristninnar breyttist gildismat íslenzku þjóðarinnar, til mikilla muna
og að þessi breyting hafði mikil áhrif á málið. Auðvitað voru tekin
upp mörg ný orð, en jafnframt tóku nýjar merkingar að smeygja sér
inn í gömul orð. Þau tóku að vísa til annarra hugmynda en áður. Við
skulum í þessum þætti athuga sagnir, sem hafðar eru um formæling-
ar, bölv og ragn. Sumar þessara sagna voru notaðar í heiðni, en þá
í annarri merkingu en i kristni. En þess ber að gæta, að oft lifir eldri
merkingin samhliða hinni yngri. Byrja mætti á sögninni að blóta.
Ásatrúarmenn notuðu þessa sögn um að tigna guði sína. í þessari
merkingu mun sögnin almennt hafa tekið með sér þolfall, þ.e. nafn
þess, sem tignaður var, var í þolfalli, t.d. blóta Óðin. Við trúarathafnir
ásatrúarmanna var dýr-
um, jafnvel mönnum
fórnað. Um þetta var
sögnin blóta einnig
höfð. Var þá heiti hins
fórnaða haft í þágufalli,
t.d. blóta sauðu, blóta
syni o.s.frv. Við tilkomu
kristninnar verða heið-
in goð tákn hins illa. í
samræmi við það fær
sögnin blóta vonda
merkingu. Menn fara að
nota hana um formæl-
ingu. Taka mætti dæmi
úr íslenzku hómilíubók-
inni, en þar stendur: bið
þú fyrir þeim, er þér
blóta. Þetta minnir á
blessið þá, sem bölva
yður og biðjið fyrir
þeim, er misþyrma yður
(Lúkas 6, 28). íslenzka
hómilíubókin, sem
einnig er kölluð Stokk-
hólmshómilíubók,
vegna þess að handritið
er varðveitt í Stokk-
hólmi, er safn predik-
ana frá 12. öld. í þessari
bók er sögnin blóta,
sem sé, notuð í merk-
ingunni „bölva, for-
mæla“, þótt hún sé í
máli landnámsmanna
notuð um guðsdýrkun
þeirra. Þessi notkun
sagnarinnar blóta var
áfram tíðkuð í kristilegu
máli. Eitthvert elzta
dæmi Orðabókar Há-
skólans um þessa merk-
ingu er úr Guðbrands-
biblíu (1584): Bölvaður
veri sá, sem blótar föö-
ur sínum (5. Mós. 27, 16, stafs. samræmd). 1 nýjustu Bibliuútgáfu
stendur hins vegar: Bölvaður er sá, sem óvirðir föður sinn.
Sögnin ragna er dregin af orðinu regin (rögn), sem táknaði heiðin
goð. Samsvarandi sögn kemur fyrir í gotnesku og fornensku og
merkir þar „að drottna". í íslenzku fornri var sögnin hins vegar höfð
um galdra, t.d. ragna at einhverjum vándar vœttir. Allt um það þykir
mér trúlegt, að merkingin „formæla" eigi rætur sínar að rekja til
þess, að mönnum hafi verið ljóst sambandið við regin=goð. Elztu
dæmi Orðabókar Háskólans um ragna í merkingunni „formæla" eru
frá 17. öld, sbr. t.d. að blóta eður ragna (stafsetn. samræmd) úr Grein-
ir or þeim gaumlu laugum. Samanskrifadar af Jonas Rugman.
Uppsalæ 1667, bls. 11. Tvímælalaust er þó þessi merking miklu eldri.
Sögnin bölva er kunn þegar í fornu máli. Hún er mynduð af orðinu
böl og virðist því í rauninni merkja „að óska einhverjum ills (böls)“.
Hún kemur fyrir í sambandinu bölva ok banna (einnig er til blóta eða
banná), auk þess sem hún er kunn úr Biblíutilvitnunum: bölvaðr
verð þú fyrir öll kvikendi á jörðu (1. Mós. 3, 14). í nýjustu Biblíuþýð-
ingu er setningin á þessa leið: skalt þú vera bölvaður meðal alls fén-
aðarins og allra dýra merkurinnar.
I sambandi við sögnina bölva hér að framan var minnzt á banna,
sem í fornu máli kemur fyrir í sömu merkingu. I nútímamáli mun
þessi merking sagnarinnar lítið tíðkast. Hún er þó tilgreind í Orðabók
Menningarsjóðs, t.d. lýsingarhátturinn bannaður í sambandinu
bannað hyskiö, einnig miðmyndin bannast um í merkingunni „for-
mæla". Hér er áreiðanlega um að ræða tökumerkingu, sennilega úr
miðlágþýzku bannen,
sem einnig gat merkt
„formæla". Þá kemur
einnig fyrir í fornu máli
bannsettr í merking-
unni „bölvaður". Bann-
settur er enn notað sem
vægt blótsyrði. Orðið
merkir upphaflega
„settur í kirkjulegt
(páfalegt) bann“.
Sögnin formœla
merkti að fornu
„ákveða fyrir fram“, en
ekki „bölva“. í seðla-
safni Orðabókar Há-
skólans er elzta dæmið
um sögnina úr Nýja-
testamenti Odds Gott-
skálkssonar (1540): þá
tók hann at formæla
borgunum( Matt. 11,20).
f nýjustu Biblíuþýðingu
er hér notuð sögnin
ávíta. En minnast má
þess, að séra Hallgrímur
Pétursson sagði: for-
mœliny illan finnur
stað. Eg get ekki skýrt,
hvernig formœla fékk
merkinguna „bölva".
Orðabók Háskólans
hefir nokkur dæmi, hin
elztu frá 18. öld, um
sögnina oð sankta
„blótá'. Nú á dögum er
hún oft borin fram
sánta, og svo skrifa
sumir. OH hefir dæmi
frá Jóni Grunnvíkingi
um að sankta manni,
að sankta manni niður
og sankta manni út.
Vafalaust er þessi sögn
mynduð af latneska
orðinu sanctus „heilagur", sem í íslenzku er
notað í samböndum eins og Sankti-Pétur. Hugsanlegt er, að sankta
hafi upphaflega merkt „helga, blessa“ og síðan verið notuð sem
skrauthvörf fyrir „blótá'. Skrauthverf blótsyrði eru algeng, en fá af
þessu tæi í íslenzku. En minna má á, að í ensku getur bless merkt
„bölvá' í ýmsum samböndum.
Loks er kunn úr nútímamáli sögnin sanka í merkingunni „blótá'.
Ég þekki þessa merkingu sagnarinnar úr barnæsku. Elzta dæmi
Orðabókar Háskólans er úr bókinni Við Maríumenn eftir Guðmund
G. Hagalín, bls. 50: Þú... blótar og sankar eins og enginn guð og
hreppsnefnd vœri. Venjulega merkir sanka „safná', t.d. sanka
saman. Ég geri ráð fyrir, að flestir telji, að sanka „blótá' sé orðin til
úr sankta. Eg er ekki sannfærður um það, en læt hugmyndir mínar
um upprunann liggja í þagnargildi að sinni.
STJORNUSPA
HELGINA 20.-22. MARS
Þetta gæti orðið allra sæmilegasta helgi, ef þú
gætir þess að gera þér ekki of glæstar vonir varð-
andi sunnudaginn. Það borgar sig ekki að hafa í
frammi neitt pukur þessa daga, hvorki íeinkalífi eða
starfi. Þér eldra fólk getur orðið til þess að þú þarft
að breyta fyrri ákvörðunum á laugardag, en sá dag-
ur er hins vegar heppilegur fyrir þá, sem fara á
mannamót I rómantískum hugleiðingum.
Það er heilmikið að ske bakvið tjöldin þessa
dagana og þú mátt til að taka af allan vafa um að
ekki sé hægt að ganga endanlega frá neinu, án þlns
samþykkis. Núna er líka rétti tíminn til þess að gefa
ástvini þínum það frelsi sem hann/hún þarfnast og
vera ekki of uppáþrengjandi. Þá Ifður ekki á löngu
þar til hann gerir sér grein fyrir þeim skilningi og
stuðningi, sem hann fær hjá þér.
TVIBURARNIR (22/5-21/6
Þú ættir að salta ákveðna langtímaáætlun um
sinn, án þess að láta þig dreyma um að hætta end-
anlega við eitthvað sem er þér mikilvægt til þess að
koma til móts við eigingirni annars aðila. Á laugar-
dag finnurðu greinilega til tilfinningalegrar þreytu
og uppgjafar, en áður en langt um Ifður muntu sjá
að samband þitt við persónu af gagnstæða kyninu
er þess virði að því sé bjargað. Það getur fátt komið
f þess stað.
IMMúllllim
Það er eiginlega ekki fyrr en á sunnudag að þú
getur farið að slaka á. Farðu varlega á föstudag, ef
þú ekur bfl, og vertu ekki of fljótur að gefa loforð.
Á laugardag leynast einhverjar áhyggjur rétt undir
yfirborðinu, sem spilla fyrir þér, og á sunnudag
gæti nákomið fólk ruglað þig f ríminu. Láttu vinn-
una alveg endilega ekki ganga fyrir einkalífinu
þessa helgi. Það gæti orðið kveikjan að heimiliserj-
Nú eru þáttaskil á fleiri en einu sviði f lífi þínu og
tfmi breytinga. Þú hefur verið svolítið taugaóstyrkur
og fullur efasemda að undanförnu, bæði hvað varð-
ar vinnu og einkalff. Þetta er hins vegar heppilegur
tími til þess að endurheimta sjálfstraustið og söðla
um ígrundvallaratriðum. Fyrstverður þú þóaðgera
upp við þig hvernig þú ætlar að lifa lífinu, hvar og
með hverjum.
ESHlMtW
Þú ert að fyllast auknu sjálfstrausti og þarft nú að
athuga þinn gang á ýmsum sviðum. Fólk er eflaust
undrandi á ákefð þinni f að binda endahnúta, en
það ætti þá að hafa stutt þig betur áður en að þessu
kom. Auðvitað verður þú að leysa fjárhagsvanda-
mál, sem þú veist vel af, en aukið sjálfstraust og al-
menn velgengni verður til þess að auðvelda þetta
sem og annað. Framkoma ástvinar þfns spillir ekki
einu sinni gleðinni.
Nákominn ættingi á við vandamál að strfða, sem
krefst tfma þfns en gæti skilað ánægjulegum
árangri. Á laugardag gætu áform um einhverja
skemmtun farið út um þúfur af fjölskylduástæðum
og rómantíkin getur orðið svona upp og niður...
Hjónabandserfiðleikar ekki ólíklegir á sunnudag og
erfitt gæti orðið um sættir. Það er hins vegar hreint
ágætur dagur til hvers kyns heimilisstarfa!
SPORÐDREKINN (23/10-22/11
Þú verður að streitast á móti löngun til að skvetta
úr klaufunum á föstudag og reyna að nýta frekar
daginn til hins ýtrasta. Láttu skynsemina nú ráða og
taktu enga áhættu! Á laugardag ættirðu að læsa
ávísanaheftið ofaní skúffu og vera heima f róleg-
heitum. Þeir sporðdrekar, sem þurfa að vinna á
sunnudaginn þurfa því miður að takast á við erfitt
fólk eða aðstæður og hugsunin óskýrist með
kvöldinu.
BOGMAÐURINN (23/11-21/12
Það hefur verið svolftið stormasamt í kringum
þig að undanförnu, sérstaklega á heimavelli, en þú
þarft ekkert að óttast. Allar breytingar verða þér til
góðs, þegar til langs tfma er litið. Taktu það ekki
nærri þér þó ættingjar kvarti, gagnrýni og rífist. Frá
og með sunnudeginum er hins vegar kominn tfmi
til að hægja á sér. Einhverjum finnst þú hafa van-
rækt sig eða sært á annan hátt, en þú hefur sýnt
mikla þolinmæði.
STEINGEITIN (22/12-21/1
Ekkert pukur á föstudag, takk! Og ekki setja neitt
leyndarmál á blað Þú ættir að skella þér á manna-
mót á laugardaginn, sérstaklega ef þú ert í róman-
tfskum hugleiðingum, og reyndu að berjast á móti
hræöslu og skorti á sjálfstrausti. Sunnudagurinn
býr ekki yfir neinu spennandi og þú ættir að hafa
hægt um þig þá.
VATNSBERINN (22/1-19/2
Notaðu föstudaginn tii að ganga frá ákvörðun
varðandi fjármál eða vinnu og gættu þess að láta
ekki plata þig. Þegar sjálf helgin gengur f garð, ættir
þú að leysa vandamál sem eru til komin vegna sam-
bandsleysis við vini eða ættingja að undanförnu.
Þetta er mikilvægt tfmabil á starfsævi þinni og þú
mátt ekki gera neitt vanhugsað Taktu sjálfur af
skarið og láttu þig ekki fljóta með straumnum.
FISKARNIR (20/2-20/3
Þó svo að búið sé að skera ákveðin bönd, má allt-
af stofna til annarra tengsla á heiðarlegri og varan-
legri grunni. Fyrst og fremst áttu að skvetta svolftið
úr klaufunum, njóta Iffsins og leyfa þér að blómstra.
Láttu það ekki á þig fá þótt annað fólk sé duglegt
að gagnrýna. Þú ert að öllum Ifkindum dauöleiöur
á núverandi aðstæðum og þarfnast tilbreytingar,
sem þú ættir að láta eftir þér.
38 HELGARPÖSTURINN