Helgarpósturinn - 13.08.1987, Síða 15
SVIPMYND
eftir Friðrik Þór Guðmundsson
getur hæglega kostað sjúklinginn
um 20 þúsund krónur.
Lopinn og dúnsængin bjarga lífi
námsmanna í New York á veturna,
því kuldinn þar verður mun meiri
en við eigum að venjast á Fróni.
ÞYSKALAND
Háskólar í Þýskalandi reka hús-
næðismiðlun, sem hefur til umráða
stúdentagarða og herbergi ,,úti í
bæ“. Það gengur þó ekki endilega
fyrirhafnarlaust að fá húsnæði,
heldur útheimtir það bæði tíma og
útsjónarsemi. Á frjálsum markaði er
miðlungsverð á herbergi rúmar 6
þúsund krónur, með rafmagni og
hita. Barnafólk getur leitað aðstoð-
arsveitarfélagsins við að fá húsnæði
og þriggja herbergja íbúð getur þá
verið tiltölulega ódýr, miðað við
verð á einstaklingsherbergjum, eða
undir 10 þúsund krónum.
Námsmenn í Þýskalandi mega
vinna þar með náminu, en til þess
að fá atvinnuleyfi verður viðkom-
andi fyrst að hafa útvegað sér starf.
Leita verður til ákveðinnar stofn-
unar, sem úrskurðar hvort stúdent-
inn er hæfur til að vinna með nám-
inu eða ekki. Laun fyrir sæmilega
verkamannavinnu eru þá ef til vill
rúmar 200 krónur á tímann.
íslendingar, sem fara til náms í
Þýskalandi, verða að tryggja sig
vegna hugsanlegs lækniskostnaðar.
Þeir mega búast við að það kosti
u.þ.b. 8 þúsund krónur fyrir hverja
önn í háskólanum og eru heimsókn-
ir til tannlæknis innifaldar í þessari
tryggingu. Lyfjaverð er þar með
einnig niðurgreitt.
Það verður vel kalt alls staðar í
Þýskalandi, svo hlýjar flíkur koma
sér vel. Gamli, góði lopinn stendur
fyrir sínu. Hins vegar borgar sig
ekki að koma hlaðinn af neinu öðru
að heiman, því verðlag á velflestum
vörum þarna er mun hagstæðara en
á íslandi. Verð í mötuneytum há-
skólanna er líka mjög gott, t.d. um
50 krónur fyrir heila máltíð.
Huldumaðurinn í Kringlunni
Um bóndasoninn úr kaupfélagsveldinu sem byggthefur upp stœrsta verslunarapparat landsins.
Opnun Kringlunnar markar enn ein tímamótin hjá
Pálma Jónssyni kaupmanni í Hagkaupum. t>að er Pálmi
sem gert hefur Hagkaup að stórveldi og það eru Hag-
kaup sem eiga allan heiðurinn af því að Kringlan er orðin
að veruleika — þessi veglegasta verslunarmiðstöð lands-
ins. Pálmi sjálfur er reyndar sagður vera að koma sér æ
meir úr viðskiptunum og færa á hendur sona sinna og
frænda, en flestir eru þó sammála um að það sé enn hann
sem togi í mikilvægustu spottana og eigi snjöllustu hug-
myndirnar.
olíufélögin og Eimskipafélagib. Það
segir sitt um yfirburði Hagkaupa í
verslunarrekstrinum að árið 1985
var velta fyrirtækisins meiri en sam-
anlögð velta Miklagarðs, Vöru-
markaöarins, Fálkans og JL-húss-
ins. í fyrra fluttu Hagkaup inn til
landsins alls 4.300 tonn af varningi
og IKEA flutti að auki inn alls 1.728
tonn.
Pálmi var fyrir nokkrum árum
skattakóngur Islands og náði núver-
andi yfirburðaskattakóngur, Þor-
Um Pálma hefur verið sagt að þó
hann sé einhver allra ríkasti maður
landsins þá sé hann huldumaður
sem fer „þegjandi og hljóðalaust í
gegnum lífið“. Að allir þekki versl-
anir hans en fáir manninn sjálfan,
hann enda hlédrægur og afskiptalít-
ill maður sem lítið fer fyrir. Þó er
þetta maðurinn sem verkalýðsfröm-
uður einn sagði eitt sinn að hefði
bætt hag láglaunafólksins í landinu
meir en nokkur annar maður og átti
hann vitaskuld við hið lága vöru-
verð sem tíðkast hefur í verslunum
Pálma.
SONUR KAUPFÉLAGS
OG FRAMSÓKNAR!
Pálmi Jónsson kaupmaður í Hag-
kaupum er fæddur 3. júní 1923 á
Hofi á Höfðaströnd í Skagafirði og
er því 64 ára að aldri. Faðir hans var
Jón Jónsson bóndi á Hofi af Vala-
dalsætt en móðir Sigurlína Björns-
dóttir. Tvíburasystir Pálma er Hólm-
fríður Sólveig Jónsdóttir, eiginkona
Ásbergs Sigurdssonar, sýslumanns,
fógeta og alþingismanns. Jón, faðir
Pálma, var stórbóndi og framsókn-
arfrömuður og var um skeið stjórn-
arformaður Kaupfélags Austur-
Skagfirðinga. Átti Jón 11 systkini og
náinn frændgarður Pálma því stór.
Pálmi kvæntist hinn 23. desember
1959 Jónínu Sigríði Gísladóttur sjó-
manns Sigurðssonar. Þeirra börn
eru Sigurður Gísli, forstjóri og
stjórnarformaður Hagkaupa, Jón,
Ingibjörg Stefanía og Lilja Sigurlína.
Pálmi varð stúdent frá MR 1942
og útskrifaðist frá Háskóla íslands
sem lögfræðingur árið 1951 — en
hefur á hinn bóginn aldrei stundað
almenn lögfræðistörf. Hann hóf
snemma að stunda kaupmennsk-
una. Um miðjan sjötta áratuginn
setti hann á fót sjoppu í Austurstræti
er nefndist ísborg og rak með öðr-
um (meðal annars Steingrími Her-
mannssyni) ísgerð í „Geirsfjósinu"
við Eskihlíð. Það var einmitt í því
húsi að hann stofnaði póstverslun-
ina Hagkaup árið 1959, þá hálffer-
tugur að aldri. Má segja að þá hafi
fyrir alvöru hafist ævintýri það, sem
enn hefur ekki náð hámarki sínu.
VELDIÐ STÆKKAR
ÓÐUM
Veldi Pálma stækkaði með árun-
um og teygir sig víða núorðið þó
þungamiðjan hafi lengstum verið í
Skeifunni, þar sem hann hefur rekið
í leiguhúsnæði stærsta stórmarkað
landsins um árabil. En Pálmi hefur
víða komið við sögu, hann hefur
rekið minni verslanir í Lækjargötu
og í Kjörgarði við Laugaveg, stór-
markaði á Akureyri og í Njarðvík-
um, kjötvinnslu í Kópavogi, sauma-
stofu við Höfðabakka, smíðastofu
og húsgagnalager við Smiðjuveg og
ekki má gleyma 7K£A-deildinni
(Miklatorg sf.). Þá er hann meðal
annars hluthafi í Loðskinnum hf. á
Sauðárkróki og situr í stjórn fyrir-
tækisins og á Selfossi á hann hluti í
Höfn hf, sem rekur verslun, slátur-
hús, kjötvinnslu og fleira. Þannig að
umsvifin hafa verið mikil, en á hinn
bóginn hafa eignirnar ekki verið
mjög miklar hingað til. Þannig er
Skeifan 15 leiguhúsnæði í eigu Val-
Pálmi Jónsson kaupmaður í Hagkaupum.
fellsættarinnar. Það er fyrst nú að
tala má um verulega fjárfestingu
Hagkaupa, sem eiga um 37% í
Kringlunni.
NÆR ÞRIGGJA
MILLJARÐA KRÓNA
VELTA
Pálmi Jónsson og fjölskylda hans
hafa þannig byggt upp stórveldi á
sviði verslunar og viðskipta. Smá-
söluverslunin hefur almennt verið
að færast á æ færri hendur með til-
komu stórmarkaðanna og hlutur
Hagkaupa að því leyti verið hvað
stærstur. Hagkaup voru allt til 1980
rekin sem einkafirma Pálma, en þá
breytt í hlutafélag. Ekki breyttist þó
eignarhaldið í sjálfu sér og sitja í
stjórninni Pálmi, Jónína eiginkona
hans og synirnir Sigurður Gísli og
Jón. Árið 1979 nam velta Hagkaupa
á núvirði um 1.200 milljónum króna
en 7 árum síðar eða 1985 var velta
Hagkaupa komin í 2.400 milljónir
auk þess sem húsgagnaverslunin
með IKEA velti þá um 230 milljón-
um króna. Ár frá ári jókst veltan að
raunvirði en þó hægði á veltuaukn-
ingunni árið 1985 þegar nýir stór-
markaðir tóku að eflast, s.s. Mikli-
garður. Umsvifin hafa aukist svo hjá
Hagkaupum að fyrirtækið hefur
hækkað á lista Frjálsrar verslunar
yfir stærstu fyrirtæki landsins úr 28.
sæti árið 1979 í 21. sæti árið 1985.
Með tilkomu Kringlunnar má síðan
vænta þess — ef hlutirnir ganga upp
— að Hagkaup fari enn upp lista
þennan og að fyrirtækið nái brátt
stærðargráðu kunnugiegra risa á
borð við stærstu viðskiptabankana,
valdur Guðmundsson í Síld & Fisk,
vart að hafa tærnar þar sem Pálmi
hafði hælana. Árið 1979 greiddi
Pálmi þannig skatta sem á núvirði
hljóða upp á um 18 milljónir króna,
en núorðið greiðir hann „aðeins"
um 800 þúsund krónur, en þennan
mun er að sjálfsögðu að rekja til
þess er einkafirmað breyttist í hluta-
félag. Á nýbirtum lista skattyfir-
valda yfir skattahæstu lögaðilana í
Reykjavík lentu Hagkaup í 11. sæti í
heildarálagningu með 29,2 milljónir
króna, þar af um 21 milljón króna
í aðstöðugjöld. Þá voru Hagkaup á
Akureyri í 14. sæti lögaðila í Norður-
landskjördæmi eystra með um 5
milljónir króna í skatta.
FÆDDUR KAUPMAÐUR
— ÁN SKRIFBORÐS
Fyrir nokkrum árum var í HP haft
eftir kunningja Pálma, að hann væri
fæddur kaupmaður, „í bestu merk-
ingu þess orðs,“ og annar bætti við:
„Hann er snjall bíssnessmaður,
ákveðinn í viðskiptum og vakandi
og þorir að fara inn á nýjar brautir.
Hann er snjall að láta menn vinna
fyrir sig og láta öðrum eftir að bera
ábyrgð á hlutunum." Annar kunn-
ingi hafði um stjórnunarhætti
Pálma þetta að segja: „Hann ræður
sér menn og borgar þeim vel fyrir
að sinna daglegum rekstri fyrirtæk-
isins. Hann skiptir sér litið af smá-
atriðum í daglegum rekstri en fylg-
ist þó vel með. Hann hefur, held ég,
aldrei haft svo mikið sem skrifborð
í húsakynnum fyrirtækisins, hvað
þá skrifstofu. Hans hlutverk er að
hugsa og leggja línurnar. Lykillinn
að velgengni Pálma er að hann get-
ur lyft sér upp úr hinu daglega
amstri og hugsaö um morgundag-
inn. Enda er hann alla tíð að hugsa
um framkvæmdir á öllum sviðum."
Á sínum tíma var lága verðið hjá
Hagkaupum bylting og hefur sú
saga verið sögð að verðlagið megi
rekja til þess að hann komst í tengsl
við aðalbirgðastöð verslunarkeðj-
unnar C&A í Belgíu, en þetta var
þegar Pálmi var að stækka við sig í
Skeifunni og kom maður frá keðju
þessari að skipuleggja hlutina. Sumt
af því sem Pálmi keypti frá Belgíu
var og er svo ódýrt að hann er að
sögn kunningja „í vandræðum með
að verðleggja það. Það má nefni-
lega ekki vera of mikill verðmunur,
þá verður fólkið tortryggið". Og sagt
er um Pálma að hann sé harður í
horn að taka í viðskiptunum. Menn
muna eftir viðskiptastríðunum um
bóksölu Hagkaupa, jógúrtsölu og
gleraugnasölu og er þá fátt eitt
nefnt.
„CON-MAN OF THE
YEAR"
Þegar blaðamaður HP ræddi við
nokkra af þeim aðilum sem eiga í
hörðustu samkeppninni við Hag-
kaup og eru þá um leið viðskiptaleg-
ir andstæðingar Pálma komu yfir-
leitt fram virðing og aðdáun fyrir
manninum, en um leið að kynnin
væru lítil.
„Það er ekki hægt að neita því að
Pálmi er framúrstefnumaður í versl-
unarmálum, það fer ekki á milli
mála,“ sagði einn verslunarstjór-
anna. „Hann brýtur með Kringl-
unni ákveðið blað, kemur fram með
nýja siði.“ Annar viðmælandi sagð-
ist alltaf hafa borið virðingu fyrir
Pálma í Hagkaupum þrátt fyrir
mikla og harða samkeppni. „Hann
er duglegur bísnessmaður og hefur
sýnt það í sínu lífi að hann er kraft-
mikill, hefur gert marga mjög góða
hluti. Hvort hann er að færast um of
í fang með Kringluævintýrinu getur
auðvitað aðeins sagan sagt til um,
en hann hefur aldrei troðið neinum
um tær með óheiðarlegum hætti og
á allt gott skilið. Það er kraftur í hon-
um, en fyrst og fremst er hann mikill
pælari." Enn annar viðmælandi
sagðist ekki geta annað en borið
djúpa virðingu fyrir Pálma þó tekist
hafi verið á í viðskiptunum. „Hann
hefur stuðlað að lækkuðu vöruverði
í landinu án þess þó að hann hafi
með velgengni sinni eignast neitt
sem slíkt — fyrirtæki hans hefur
verið rekið i leiguhúsnæði og það er
í fyrsta skiptið nú með Kringlunni
sem þeir Hagkaupamenn horfa
fram á að eignast nokkuð að
ráði og sem viðskiptalegum and-
stæðingi finnst mér þá leiðinlegast
að það skuli vera kaupmenn í
Reykjavík sem eru að byggja fyrir
hann! Svo rosalega hefur hann plat-
að kaupmennina að hann á bara
skilið heiðursmerki eða titilinn
„Con-man of the year“ eins og ná-
unginn sem falsaði dagbækur
Hitlers! Eða hverjir eru það sem
borga brúsann af ævintýrinu?"
SONURINN VERÐUR
ÞRÍTUGUR . . .
Pálmi Jónssón kemur sem fyrr
segir ekki um of nálægt daglegum
rekstri Hagkaupaveldisins og hefur
deilt út æ fleiri verkefnum á syni
sína Sigurð Gísla og Jón, sem og til
systursonar síns Jóns Ásbergssonar.
það er ef til vill til marks um yfir-
standandi valdatöku sonarins Sig-
urðar Gísla að hann er formaður
stjórnar Hagkaupa auk þess að vera
framkvæmdastjóri. Og opnunar-
dagur Kringlunnar er vandlega val-
inn — 13. ágúst verður Sigurður
Gísli þrítugur.
HELGARPÓSTURINN 15