Helgarpósturinn - 13.08.1987, Síða 18

Helgarpósturinn - 13.08.1987, Síða 18
eftir Salvöru Nordal mynd Jim Smart Guðmundur Bjarnason heilbrigðismálaráðherra í HP-viðtali EKKI YÆNT UM RÆÐUSTÓLA ÞYKIR Hann segir aö hœgt sé aö skipta þingmönnum í tvo hópa, annars vegar þá sem eru mikiö í fjölmiölum og „meö uppákomur í rœöustól, sem jaðrar stundum við sýndarmennsku“ eins og hann orðar það. Hins vegar eru þing- menn sem láta lítiðyfir sér, eru hvorki áherandi írœðustólum né fjölmiðlum en koma málum sínum fram með öðrum hœtti. Guðmundur Bjarnason tel- ur sig tilheyra síðari hópnum. Þeir sem þekkja til vita að það er engin hóg- vœrð hjá Guðmundi að hann hafi ekki verið mjög áberandi á átta ára stjórnmálaferli sínum. íár hafa hins vegar orðið þáttaskil hjá honum. Tveir atburðir hafa orðið til þess að kastljósi fjölmiðlanna var beint að Guðmundi. I vetur vann hann Stefán Valgeirsson í prófkjöri sem varð til þess að sá síðarnefndi yfirgaf Framsóknarflokkinn. Isumar var hann einn afþremur fulltráum flokksins í stjórnarmyndunarviðrœðunum og þegar stjórnin var komin á koppinn hafði Guðmundur hlotið eftirsóttasta starf hvers stjórnmálamanns, ráð- herrastarfið. Guðmundur Bjarnason er rólegur í fasi þegar við hittumst á skrifstofu hans í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hann segist þó vera nokkuð þreyttur eftir átök síðustu mánaða, enda hefur verið fátt um frídaga hjá honum. Við byrjum á að rœða um stjórnmálin og hvenœr hann hófafskipti af þeim, en óhœtt er að segja að Guðmundur hafi helgað Framsóknar- flokknum og samvinnuhreyfingunni starfskrafta sína. ,,Ég er fæddur á Húsavík í vöggu samvinnu- hreyfingarinnar, þar sem elsta kaupfélagið er starfandi. Faðir minn var mikill samvinnumaður og ég var snemma þeirrar skoðunar að sam- vinnuhreyfingin væri mjög ákjósanlegt félags- form og hafði þvi áhuga á að starfa undir merkj- um hennar. Einnig byrjaði ég snemma að starfa í ungliðahreyfingu Framsóknarflokksins." EKKI MAÐUR VALDSINS Eftir nám á Hásavík fór hann íSamvinnuskól- ann. Eftir aö hafa lokiö verslunarprófi þaöan 1963 lá leidin aftur nordur. Þar hóf hann störf í Kaupfélagi Þingeyinga og var sídar starfsmaöur Samvinnubankans. Þá var hann fulltrúi Fram- sóknarflokksins í bœjarstjórn á Húsavík 1970-1977. Um skólaárin segir Guðmundur: ,,Ég naut þess að vera í Samvinnuskólanum sem er mikill fé- iagsmálaskóli og átti mjög vel við mig. Þangað má sjálfsagt að hluta rekja upphafið að þátttöku minni í stjórnmálum. Við vorum þar nokkur sem þá þegar höfðum mikinn pólitískan áhuga, ekki eingöngu framsóknarmenn, þarna voru líka harðir íhaldsmenn og kommar. Ég var þó ekki meiri félagsvera á þessum árum en svo að ég hafði lítinn áhuga á íþróttum og var því kall- aður „antísportisti". Við náðum fljótt saman nokkrir slíkir og héldum hópinn. Var oft eldað grátt silfur milli flokka „sport" og „antísport- ista“. Fyrstu eldskírnina í ræðustól fékk ég í Sam- vinnuskólanum og mun sú reynsla seint gleym- ast. Við áttum að draga um ræðuefni og tala um það í tvær mínútur. í minn hlut kom að tala um kvikmyndir. Og það fór svo að ég mundi ekkert, bókstaflega ekkert um ræðuefnið, gat ekki einu sinni rifjað upp hvaða myndir ég hafði séð. Eftir að hafa um stund svitnað og kólnað á víxl í ræðustólnum stundi ég loks upp að ég gæti ekk- ert sagt og baðst afsökunar á tilveru minni og staulaðist aftur í sætið. Þetta atvik kann að vera orsök þess að mér þykir ekki sérstaklega vænt um ræðustóla og nota yfirleitt ekki langan tíma í ræðuhöld." En Guömundur segir núna að hið félagslega starf laði hann að pólitíkinni. „Oft á tímum er maður þreyttur á karpinu en þátttaka í stjórnmálum er oft skemmtileg og þá sérstaklega hinn félagslegi þáttur, mannlegu samskiptin gefa mér rnest," segir hann. það er ekki sóknin eftir völdum sem rekur þig áfram? „Ég er ekki valdamaður og ég lít á pólitískt starf sem samstarf fjölda fólks. Auðvitað er gam- an að sjá eitthvað eftir sig, en vegna þess að stjórnmálin eru hópstarf er ekki alltaf auðvelt að merkja árangur einstaklingsins. Það á heldur ekki vel við mig að hælast yfir eigin verkum og segja að ég hafi gert þetta eða hitt." Guðtnundur var forseti bœjarstjórnar á Húsa- vík 1974— 77ásamtþvíað starfa hjá Samvinnu- bankanum. Árið 1977 lá leiðin tilKeflavíkur þar sem hann tók við starfi útibússtjóra Samvinnu- bankans. „Okkur leið mjög vel í Keflavík þó svo að ekki væri spáð vel fyrir Húsvíkingi að setjast að í þeim „rok- og vindrassi". En það er hollt að skipta um umhverfi, það víkkar alltaf sjóndeild- arhringinn og við eignuðumst þarna marga góða vini. Þegar ég var í Keflavík hafði ég ekki nein pólitísk afskipti og hafði ekki hugsað mér að fara aftur í pólitíkina. En fyrir kosningarnar 1979 var leitað til mín um að ég gæfi kost á mér til framboðs. Eftir mikla umhugsun fannst mér ég einfaldlega ekki mega hafna þessu skemmti- lega tækifæri. Ég náði kjöri inn á þing í þeim kosningum, ég hætti því í bankanum og flutti frá Keflavík." BÚSKAPURINN SÝNDARMENNSKA Þiö hafiö semsagt búið í Reykjavík frá því þú varðst þingmaður? „Við eigum tvö heimili, hér í Reykjavík og á Húsavík. Heimilishaldið á Húsavík er þó því miður meira sýndarmennska því fyrst og fremst hef ég orðið að vera í Reykjavík til að stunda þingmennskuna af fullum krafti. Hins vegar reyni ég að fara eins oft norður og ég get og fjöl- skyldan dvelur á Húsavík í frítímum. Til að halda tengslum við kjördæmið og kjósendur daglega nota ég hins vegar símann geysilega mikið." Hver eru helstu áhugamálin, hvernig veröu frístundum? „Pólitíkin tekur náttúrulega mestan minn tíma en auk þess hef ég gaman af því að fara á skíði og reyni einnig að fara í sund við og við. Þegar ég bjó í Keflavík og var ekki í pólitíkinni hafði ég mun meiri tíma til að sinna fjölskyld- unni og áhugamálum. Þar fékk ég til dæmis áhuga á skíðaíþróttinni. Það er dálítið skondið að þurfa að flytja að norðan til Keflavíkur til að fá áhuga á skíðum. Fjölskyldan fór á námskeið í Kerlingarfjöll tvö sumur í röð, það var frábært. Síðan hefur áhug- inn verið ódrepandi enda er skíðaíþróttin mjög gott fjölskyldusport. Svo virðist sem ýmsir póli- tíkusar hafi gaman af að fara á skíði og ekki er óalgengt að sjá þingmenn og ráðherra í Bláfjöll- um eða Skálafelli. Bæði Steingrímur Hermanns- son og Halldór Asgrímsson eru miklir skíða- menn og nú á dögunum fór aðstoðarmaður minn, Finnur Ingólfsson, með fjölskyldu sína í Kerlingarfjöll til að læra á skíðum og lét vel af. Og ég má ekki gleyma hinni öldnu útivistar- kempu Eysteini Jónssyni. Hann var nýlega spurður hvort ekki væri rétt fyrir svo fullorðinn mann að leggja svigskíðunum og stunda frekar skíðagöngu. Þá á Eysteinn að hafa svarað: „Jú það ætla ég að gera þegar ég verð gamall." Guömundur segist einnig hafa gaman af því að ferðast. „Aðallega hef ég ferðast um landið," segir hann og heldur áfram „ég hef aðeins einu sinni farið í sólarlandaferð en það var 1978, en þá var ég heldur ekki í pólitíkinni. Ef frá er talin sú ferð hef ég ekki farið til útlanda í frí eingöngu, heldur einungis ferðir sem á einn eða annan hátt hafa verið bundnar starfinu. Það að ég hef lítið ferðast erlendis og aldrei dvalið þar við nám eða starf hefur því miður þær afleiðingar að ég er lítill málamaður og ég hef ekki lagt næga rækt við 25 ára gamlan skóla- lærdóm. Ég hef auðvitað af því nokkrar áhyggj- ur að það kunni að geta valdið mér vissum erfið- leikum í þessu nýja starfi." FLJÚGANDI SAMLOKUR „En það getur alltaf komið fyrir jafnvel bestu menn að misskilja þegar mælt er á erienda tungu," heldur Guðmundur áfram. „Mig langar til að láta hér flakka sögu þar sem vinur minn Árni Johnsen er í aðalhlutverki og vona ég að hann fyrirgefi mér það. Við Árni vorum báðir í hópi nokkurra þingmanna í París í boði franska þingsins. Þar sáum við meðal annars stórkost- lega uppfærslu á óperunni AIDU og fór hún fram í mikilli íþróttahöll sem rúmaði 10—12 þúsund manns. I hléi fylltust allir veitingasalir sem von var og hópurinn skiptist eitthvað. Lenti Árni með tveimur öðrum ferðafélögum en við hin annars staðar, þó öll í sama sal. Allt í einu heyri ég nafn mitt kallað þrátt fyrir kliðinn og skvaldr- ið í salnum. Þegar ég Iít upp sé ég um leið sam- loku koma fljúgandi yfir allt fólkið og gat ég rétt gripið hana áður en hún hafnaði á haus næsta manns. Fleiri brauðsneiðar koma síðan fljúg- andi á sama hátt þar t'I allir við mitt borð höfðu fengið sinn skammt. Engum hefði dottið þetta í hug, eða að minnsta kosti framkvæmt, nema Árna Johnsen. Og skýringin á þessu athæfi var sú að þegar Árni pantaði veitingarnar vantaði eitthvað upp á frönskukunnáttuna. Hann hafði pantað eina kók fyrir sig, hann þolir ekkert sterkara, tvo bjóra fyrir hina og þrjár samlokur en fékk þrettán!! En önnur áhugamál fyrir utan skíðaiðkun og ferðalög, hlustar þú t.d. mikið á tónlist? „Ég er nú eiginlega alæta á tónlist. Jazz var mikið í tísku þegar ég var í Samvinnuskólanum og á hann hlustaði ég. Einnig hljómsveitir eins og Bítlana og Rolling Stones. Eins hef ég gaman af mörgu því sem framleitt er í dag, ég hlusta á það sem er að glamra í útvarpinu á hverjum tíma. Mér finnst til dæmis músík Stuðmanna mjög góð, þó textarnir þeirra séu ekki allir merkilegir. Einnig nýt ég klassískrar tónlistar en til þess þarf að gefa sér bæði tíma og næði." Guðmundur er þó ekki aðeins þiggjandi í tón- listinni heldur er hann einnig söngmaður. „Ég hef haft mjög gaman af því að syngja og ég var bæði í kirkju- og karlakór á Húsavík og í Keflavík en því miður hefur ekki gefist tími til þess eftir að við fluttum til Reykjavíkur." Og fleiri listir? „Ég nýt þess mjög að fara í leik- hús en geri það þó ekki nógu oft, en ég fer hins vegar mjög sjaldan í bíó. Ég held að það sé hægt að telja það á fingrum annarrar handar hve oft ég fer í bíó á ári. Ég hef einnig gaman af myndlist þó svo ég fari ekki eins mikið á myndlistarsýningar og ég vildi. Það má því kannski segja að ég sé listunn- andi þó svo að ég hafi ekki þróað það mjög með mér." GRÍPUR í UPPVASKIÐ Tal okkar berst að fjölskyldunni. Guðmundur er kvœntur Vigdísi Gunnarsdóttur og eiga þau þrjár dœtur. Eins og margir stjórnmálamenn segir hann: „Því miður eyðir fjölskyldan allt of fáum stundum saman vegna starfs míns. En við erum, held ég megi segja, mjög samheldin fjöl- skylda og reynum að njóta þeirra stunda sem gefast. Við reynum til dæmis að fara saman á skíði, sem er sameiginlegt áhugamál allra." En er heilbrigðisráðherra liðtcekur við heim- ilisstörfin? „Ég þvæ stundum upp, gríp stundum í ryksug- una og ég kann að sjóðaj>ulsur,“ segir hann hik- andi og bætir svo við: „Eg held að þar sé kunn- átta mín við heimilisstörfin upptalin," og af svip hans má ráða að hann sýni þessari hlið heimilis- ins ekki mikla rækt. Eg ákveð að firra ráðherra frekari vandrœð- um og fer ekki frekar út í þessa sálma en fer hann oft út að skemmta sér? „Ég hef mjög gaman af því að fara út að skemmta mér og nýt þess að vera í góðum hópi. Við förum ekki mikið á skemmtistaðina því þar sannast þau orð að sé maður í pólitík losnar maður aldrei við starfið hvert sem maður fer.“ Guðmundur segist aldrei hafa lœrt þann siö að reykja, þó hann drekki mikið kaffi, og hann segir: „Ég verð að játa að ég hef gaman af því að fá mér í staupinu með góðum vinum, en ég vona að ég hafi ekki gert neinn skandal," segir hann hlæjandi og bætir við: „En á þeim vígstöðvum verður maður að gæta hófs." GEKKTIL LEIKSINS AF HEILINDUM Við snúum okkur aftur aö aðaláhugamáli Guðmundar, pólitíkinni. Hann segist ekki fyrst og fremst sœkjast eftir völdum ístjórnmálunum, heldur lítur á þau sem samvinnu margra manna. Talið berst að prófkjörinu í vetur þegar Guðmundur vann Stefán Valgeirsson sem varð til þess að sá síðarnefndi bauð fram sérlista til síðustu alþingiskosninga. „í öllum flokkum hefur verið vilji til endurnýj- unar, fá ungt fólk, konur og karla, til starfa. Nið- urstaða prófkjörsins, fólksins í kjördæminu, sýndi að Stefán ætti að draga sig í hlé. Þetta var ekki vanþakklæti gagnvart honum, heldur ein- ungis vilji til að gefa öðrum tækifæri." Voru þetta ekki persónuleg átök milli ykkar tveggja? „Kannski verða svona átök alltaf á endanum persónuleg. Hins vegar höfum við átt mjög gott samstarf gegnum tíðina, og ekki síður þess vegna var þetta enn erfiðara. Það sitja auðvitað eftir sárindi, en ég tel mig hafa gengið til leiksins af heilindum." En það var Guðmundur sem fór með sigur af hólmi og eftir þokkalega stöðu Framsóknar- flokksins í kosningunum var Guðmundur einn af oddamönnum flokksins I löngum og ströng- um stjórnarmyndunarviðrœöum. Hann segist vona aö langar viðrœður og umrœða um stjórn- ina hafi gert það að verkum aö stjórnin hafi fundið grunn til að starfa á sem sterk stjórn. „Ég tel að það hafi verið mjög mikilvægt að það náðist samstarf milli Framsóknar- og Al- þýðuflokks. Það hefur lengi verið ágreiningur milli þessara flokka en hann hefur að verulegu leyti verið persónubundinn, en núna vona ég að þeir eigi eftir að geta unnið saman." Guðmundur telur líka að einn alþýðuflokks- maður hafi átt sinn þátt í aö þessi stjórnarmynd- un tókst, Jón Sigurðsson. „Hann hefur mikla seiglu og þrautseigju sem er nauðsynleg í slíkum viðræðum auk þess sem hann er mjög snjall og reyndur samningamaður." En hvaða einkunn gefur þú þínum formanni? „Steingrímur er mjög duglegur og honum hefur tekist vel að stjórna flokknum þó sjálfsagt megi eitthvað að öllum finna. Stjórnmálin hafa líka í auknum mæli farið að velta á einstökum sterk- um persónum og þar hefur Steingrímur reynst mjög vel.“ Framsóknarmenn beindu líka athyglinni að mestu leyti að formanninum í kosningunum. „Flokkar gera það ef formaðurinn er sterkur því ef hann er það þá tekst vel til og það held ég að hafi verið tilfellið með Steingrím í síðustu kosningum. Flokkurinn fékk góða kosningu sem var að verulegu leyti verk Steingríms og þeirrar ímyndar sem honum og að sjálfsögðu einnig öðrum forystumönnum flokksins, ekki síst Halldóri Ásgrímssyni, tókst að skapa honum." En er Steingrímur ekki í hópi þeirra þing- manna sem berast mikið á? „Nei, Steingrímur hefur verið mjög mikið í fjöl- miðlum vegna starfs síns en hann er ekki með

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.