Helgarpósturinn - 13.08.1987, Page 23
sölubörn
Samt er það svo að grínið er
ákveðinn tíðarandi, alveg eins og
pönkið í heild sinni var ákveðinn
tíðarandi og íslensku textarnir á
seinni helmingi 8da áratugarins
voru líka ákveðin tilraun til að
skoða samfélagið upp á nýtt. Leið-
rétta söguna og benda á fyrirbrigði
í samfélaginu sem betur máttu fara,
nokkuð sem lítið hafði verið stund-
að áður. Meiningar um samfélagið
hafa hinsvegar verið á undanhaldi á
nýjan leik og koma helst ekki fram
nema sem grín og í einstaka tilfell-
um sæmilegt háð og fer þar Sverrir
stormsker fremstur í flokki. Létt
sumarpopp — í góðærinu — tröllríð-
ur vinsældalistum og textarnir sem
heyrast eru til að mynda eitthvað á
þessa leið: 1 sorg og sút/óttalega
veikburða/hann langar svo út/er
það furða/Símon hann er lasinn/
með gólftusku um hálsinn o.s.frv.
eða: Hryssan mín blá/hryssa hryssa
blá/segðu þeim okkar ævintýrum
frá/sjaldan við vorum heimaslóð-
um á/lentum alltaf þeim frá, já...
TEXTAGERÐ OG
KARLHEIMUR
Hér hefur mest verið fjallað um
hinar stóru sveiflur sem finna má í
íslenskri textagerð í gegnum tíðina
og þá mið tekið af þeim sem hafa
verið að gera texta sem geta talist
góðir á hverjum tíma. Hitt er þó ljóst
að alla tíð hafa verið til textar sem
tilheyra þeirri hlið poppsins sem
fæst ekki við neina nýsköpun,
hvorki í tónlist né textagerð. Áhersl-
urnar hafa þó breyst í gegnum tíðina
eins og nærri má geta. Korter í þrjú-
gæi Greifanna á tildæmis ekki
margt sameiginlegt með þessum
rómantíska manni sem Dátar sögðu
frá á sínum tíma: Ding dong — hjart-
að mitt/Ding dong — hjartað þit/
Ding dong segja hjörtun og hamast
bæði í kór./Ding dong — yndið
mitt/Þú ein ert mér góð/Ég yrki
um þig ljóð o.s.frv.
Hitt hefur þó lítið breyst, eins og
Spilverkið sagði frá, að dægurlaga-
textarnir, þeir fjalla gjarnan um/
hve auðvelt er að ná sér í konu/þú
ferð bara á ball/úllen dúllen doff...
Líklega er það einmitt sterkasta ein-
kenni þeirra í gegnum tímana að
þar eru karlar að ávarpa konur,
hvort sem þeir vita hvað þær vilja,
líkja augum þeirra við fagurblá
fjallavötn eða segja þeim að vera
ekki: svona stíf og stirð og þver.
Karlheimurinn, með öllum sínum
sérkennum, birtist sem sé mjög
skýrt í dægurlagatextum samtíðar-
innar, allt frá fyrsta bítli til hins síð-
ast, og svo þetta með að „Allt sem
máli skiptir er bababara égég og
þú/égég og þú égég og þú...
Þorsteinn Eggertsson, textahöfundur
úr Keflavík, hefur sett saman margan
óðinn við dægurlög.
sölubörn
ÝÐURSÖLUBÖRNUMS
ÍNUMÍTÍVOLÍÍHVERA
GERÐIÞRIÐJUDAGINN
18. ÁGÚSTNÆSTKOM
ANDIMÆTIÐKÁTOGH
RESSKL.12ÁHÁDEGIÍ
ÁRMÚLA36KOMIÐÍB
ÆINNAFTURKL.6.
HELGARPÓSTURINN 23