Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 13.08.1987, Qupperneq 24

Helgarpósturinn - 13.08.1987, Qupperneq 24
SKÁK eftir Guðmund Arnlaugsson A uppleið íslenskum skákmönnum geng- ur flest í haginn um þessar mundir. Ungu piltarnir Hannes Hlífar Stef- ánsson og Héðinn Steingrímsson eru nú heimsmeistarar hvor í sín- um aldursflokki, Margeir Péturs- son er Norðurlandameistari í skák og svo bættist við frábært afrek Jóhanns Hjartarsonar er hann varð efstur á millisvæðamótinu í Ungverjalandi ásamt Salov. Þetta var sigur ungu kynslóðarinnar, Jóhann er fæddur árið 1963, Salov er árinu yngri. Sigursælir og þrautreyndir taflmeistarar eins og Ljubojevic, Beljavskí, Andersson og Adorjan máttu horfa á eftir ungu mönnunum í þessu kapphlaupi. Nú kemur nýr og örðugur hjalli fyr- ir þessa ungu menn: áskorenda- einvígi, þar sem menn eigast við tveir og tveir í senn, og annar er dæmdur til að heltast úr lestinni. Þannig verður haldið áfram þar til aðeins einn er eftir og sá skorar heimsmeistarann á hólm. Það eru Kanadamenn sem hafa tekið að sér að sjá um þann áfanga. Þeir bjóða til mikillar skákhátíðar i janúar á næsta ári og þar verða áskorendaeinvígin einn helsti þátturinn. Jóhann er yngstur stórmeistar- anna okkar ungu. Hann vakti fyrst verulega athygli á sér árið 1984 er hann varð í sigursæti á tveimur skákmótum er haldin voru hér í Reykjavík snemma árs: Búnaðar- bankamótinu og Reykjavíkurmót- inu. Síðan hefur honum gengið misjafnlega, en nú hefur hann tek- ið undir sig stórt stökk fram á við og er nú greinilega fremstur ís- lenskra skákmanna. Á siðasta Reykjavíkurmóti, IBM- mótinu, var það Jóhann sem stöðvaði sigurgöngu Shorts. Myndin sýnir stöðuna í skák þeirra þegar komnir voru 33 leikir. Eins og sjá má hefur Short sótt á drottningararmi, en Jóhann lék síðast Dg5 og hótar nú Rxh3+. Framhaldið tefldist þannig: 34 De3 fe4 35 g3 Hh7! 36 Kh2 hg3 37 fg3 Rxh3! Ef nú 38 Bxh3, þá Dg4 og vinnur. 38 Dxg5 Rxg5 39 Kg2 Rf3 Hótar máti með Hh2. 40 Hxe4 Hf8 Hótar sama máti að nýju. 41 g4 Hh2+ 42 Kg3 Hhl 43 He2 Rh4 44 He3 Betra var Hf2 44 - g5 45 Re7+ Kg7 46 Hc3 og gafst upp um leið, taflið er al- veg tapað. Heimsmeistaramót unglinga Innsbruck 1987. Hannes Hlífar Stefánsson Alexander Delchev (Búlgaríu) Sikileyjarleikur 01 e4 c5 02 Rf3 d6 03 d4 cd4 04 Rxd4 Rf6 05 Rc3 Rc6 06 Be2 g6 Svartur velur drekaafbrigðið. Nú er komið fram hjá þeim leiðum sem lengst hafa verið raktar (þar sem hvítur leikur f3, Bc4, Be3, Dd2, 0-0-0 og hefur siðan sókn á kóngsarmi, en svartur gagnsókn á drottningararmi). Þær leikja- raðir hafa verið raktar langt út í miðtafl, svo að orðin er úr öllu saman hálfgerð langavitleysa — og er jafn gott að stýra framhjá henni. 07 0-0 Bg7 08 Be3 0-0 09 Rb3 Be6 10 f4 Ra5 11 Rd4 Enn er stýrt framhjá hraðbraut- unum, bækurnar f jalla einkum um 11 f5. 11... Bc4 12Bd3e5 13 Rb3 d5 Sé hægt að gera þetta áfallalaust er svartur kominn yfir upphafs- hjallann heilu og höldnu. Auðsætt er að 14 fe5 Rxe4 vegna þess að Bc4 miðar á Hfl ef hvíti biskupinn bregður sér af línunni. 14 Rxa5 Dxa5 Enn er 15 fe5 Rxe4 ekki sérlega heillandi: 16 Rxe4 Bxd3 17 Dxd3 de4 18 Dxe4 Dxe5. En Hannes vel- ur aðra leið. 15 Bxc4 dc4 16 fe5 Had8 Svartur skýtur inn leik áður en hann tekur á e5, en það innskot reynist örlagaríkt. Þetta er ekki í fyrsta sinn að millileikir skipta sköpum, til góðs eða ills. Hefði svartur leikið 16 - Dxe5 gat komið 17 Bd4 De6 18 Df3 og hvítur á öllu 17 ef6! Hxdl 18 Haxdl Bh8 19 Bh6 Bxf6 Svartur áttar sig á því að hann er kominn í vandræði vegna þess hve þröngt er um kónginn. T.d. leiðir 19 - He8 20 Rd5 Hxe4 21 Khl til taps (Dc5 22 Re7+ Hxe7 23 Hd8+). 20 Hxf6 He8 21 Hfd6 Dc5 + 22 Khl f5 Það er ekki gott að búa við mát- hótanir í borðinu (Dh5 23 Hd8). Taflið er tapað, en sprikl svarts styttir biðina aðeins. 23 Hd7 g5 24 Hg7+ Kh8 25 Hdd7 og svartur gafst upp, nú er orðið stutt í mátið. SPILAÞRAIIT Suður er sagnhafi í 6-spöðum. Sagnir gengu: N A S V — pass 1-S dobl redobl 3-T 4-S 5-T 6-S pass/hr. 4 Á107653 + KDG9842 tp KG96 o — O D9 + A95 + D32 Vestur spilar út tígul-6. Þú trompar í blindum, ferð heim á tromp og spilar hjartaáttunni, lítið spil frá vestri. Hver er vinningsáætlunin og hvernig þarf háspilaskipting AV að vera? Spilið er úr leik Belgíu og Sviss á Evrópumótinu í Torquay 1961. Það féll, því farið var í slemmuna á báðum borðum. 980! Lausn á bls. 10. LAUSN Á MYNDGÁTU Dregið hefur verið úr réttum lausnum verðlaunamyndgátunn- ar sem birtist á þessum stað í blað- inu fyrir tveimur vikum, en hún var: Eyrarbakki heldur upp á níu- tíu ára afmœli á þessu sumri '87. Vinningshafinn reyndist vera Ásta Sóllilja í Hæðargarði 40 í Reykjavík og fær hún heimsenda bókina Nútímafólk eftir sálfræð- ingana Álfheiöi Steinþórsdóttur og Gudfinnu Eydal sem bókaút- gáfa HP sendi frá sér fyrir síðustu jól. Frestur til að skila inn lausn myndgátunnar hér að neðan er venju samkvæmt til annars mánu- dags frá útkomu þessa tölublaðs — merkið lausnina myndgáta. Verð- launin að þessu sinni eru smásög- ur Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Níu lyklar, sem Vaka-Helgafell gaf út fyrir síðustu jól. Góða skemmtun. 24 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.