Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 13.08.1987, Qupperneq 33

Helgarpósturinn - 13.08.1987, Qupperneq 33
að hann væri vel stæður og gæti séð almennilega fyrir mér, þannig að í rauninni var ég ekki að taka neina áhættu." Þótt Elfa vissi að hún þyrfti ekki að svelta varð henni þó hálfpartinn um þegar hún sá hvað beið hennar við komuna til Indlands: „Eftir mér beið stórt hús, umlukið fallegum garði — og það var ná- kvæmlega ekkert inni í húsinu. Það var tómt og það var í mínum verka- hring að láta útbúa húsgögn inn í það eftir mínu höfði. Eg hafði aldrei í lífinu komið nálægt neinu slíku, það lengsta sem ég hafði komist í innanhússarkitektúr var að breyta litnum á herberginu mínu úr ljósum yfir í svartan og gulan einhvern tíma þegar það var í tísku! Við bjuggum í borginni Madras og þar var ekkert hægt að kaupa af hús- gögnum eða lampaskermum, það þurfti að búa allt til. Auðvitað gerði ég ýmis mistök í þessari fyrstu atrennu og fékk húsgögn sem voru ekkert falleg þegar þau voru tilbú- in!“ HELDRA MANNA LÍF Á INDLANDI Húsinu fylgdu þjónar, garðyrkju- maður, „butler", bílstjóri og mat- sveinn og Elfa segist lítið hafa gert annað en skipuleggja lífið: „Við sótt- um mikið af samkvæmum og um- gengumst heldra fólk Indlands eins og stjórnmálamenn, ráðherra og viðskiptafólk. Maðurinn minn fyrr- verandi var skipamiðlari og hafði góðar tekjur og við lifðum þessu heldra manna lífi. Við héldum mikið af veislum sjálf og það fór gífurlegur tími í að láta sauma á mig fatnað og undirbúa veisluhöld jafnt sem að taka þátt í þeim. Meðal góðra vina okkar var Sanji Gandhi, sonur Indiru, sem á þeim tíma var afar virkur í stjórnmálalífinu á Indlandi. Hann fórst í flugslysi skömmu eftir að ég flutti frá Indlandi. Rajiv Gandi var á þessum tíma flugmaður og það bar mjög lítið á honum og satt að segja virtist hann hafa afar tak- markaðan áhuga á stjórnmálum. Einn ráðgjafa Indiru Gandhi, Kabur, var einnig góður vinur okkar en það var erfitt að hitta á hann því ráðgjaf- arstarfið var enginn dans á rósum. Konan hans var til dæmis orðin fremur þreytt á því að maðurinn hennar var við störf langt fram á nætur!" Elfa segist hafa átt erfitt með það í fyrstu að láta þjónana gegna sínum störfum: „Þarna var ég, íslensk stúlka, og átti að fara að skipa mönnum sem voru 30-40 árum eldri en ég fyrir verkum! Ég átti óskap- lega erfitt með það í fyrstu — en það kom! Ég verð að viðurkenna að mér þótti mjög þægilegt að hafa þessa elskulegu þjóna í kringum mig og ég gerði ekkert annað á heimilinu en þvo þvotta. Það kom til af því að það eyðilagðist svo margt hjá þeim í þvotti að ég vildi sjá um þá hlið mála sjálf heldur en að skamma þá. Ég gerði tilraun til að fá mér sjálf- virka þvottavél eins og ég hafði van- ist hér heima, en þær einhvern veg- inn virtust ekkert endast í hitunum svo það var gamla góða Hoover- vélin sem var aðalverkfærið. Þjón- arnir urðu auðvitað góðir vinir mín- ir og ég saknaði þeirra þegar ég flutti heim. Þegar maður býr í landi eins og Indlandi verður maður óhjá- kvæmilega var við að margir eiga um sárt að binda og það er víða mikil fátækt. Auðvitað getur maður ekki hjálpað öllum og þess vegna reyndum við að hjálpa þeim sem stóðu okkur næst, það er fólkinu sem vann fyrir okkur. Við borguð- um þeim gott kaup og hjálpuðum þeim að kaupa hús en hápunkturinn var þegar við komum úr ferðalög- um erlendis frá og færðum þeim úr og transistor-útyarpstæki að gjöf og þeir urðu glaðir við slíkar gjafir." Hún segist hafa kynnst Indlandi á allt annan hátt þegar hún fór að búa þar sjálf: „Ef ég ferðaðist þá ferðað- ist ég með flugvélum og bifreiðir biðu mín við landganginn á komu- stað. Ég þurfti ekki einu sinni að halda sjálf á veskinu mínu. Allan þennan tíma ferðaðist ég aðeins einu sinni með járnbrautarlest, og þá auðvitað á fyrsta farrými. Ég fann aldrei aftur þessa tilfinningu sem ég hafði fundið á ferðinni með foreldrum mínum og sá Indland ekki aftur í sama ljósi." ÞAÐ ER ALLT TIL Á INDLANDI Hún segist samt ekki vera sátt við þá umfjöllun sem Indland fær í blöð- um: „Mér finnst alltof mikið gert af því að draga fram fátæktina þar,“ segir hún. „Auðvitað er til fátækt í Indlandi. Indland er eins og heil heimsálfa þar sem allt er til, fátækt jafnt sem auðæfi. Það gleymist hins vegar að hinn venjulegi Indverji er eins og ég og þú, hvorki fátækur né ríkur. Eg heyri líka hneykslunartón þegar fólk vitnar í að enn sé verið að brenna fólk á báli í Indlandi. Slíkt gerist hjá sértrúarhópum á af- skekktum svæðum og er nokkuð sem er afar fátítt. Hitt er svo annað mál að það er til fólk sem getur alls ekki sætt sig við Indland. Eg kynnt- ist danskri konu sem átti dóttur bú- setta á Indlandi og þessi kona gat á engan hátt sætt sig við að vera í landinu í skamman tíma. Mér aftur á móti leið mjög vel þar þótt ég lærði aldrei málið þeirra og talaði bara ensku." Þótt einhverjum kunni að þykja það ótrúlegt var það samt ljúfa lífið sem varð til þess að Elfa ákvað að skilja við mann sinn og flytjast aftur heim til íslands: ,,Það má segja að aðgerðarleysið hafi yfirbugað mig,“ segir hún. „Ég gerði ekkert í mörg ár annað en hugsa um sjálfa mig og veraldleg gæði og skyndilega fékk ég nóg. Sænsk vinkona mín var gift manni þarna sem var að byggja hótel og þau fengu þá hugmynd að ég setti upp eigin fataverslun á hót- elinu vegna þess að ég var orðin svo vön að hanna föt þótt ég hafi aldrei lært það. Það var í eina skiptið í hjónabandinu sem ég rak mig á vegg. Maðurinn minn sagði að það kæmi ekki til greina að ég yrði at- vinnurekandi og þar við sat. Það urðu mér mikil vonbrigði því þarna hafði ég sé fram á að fylla líf mitt einhverju öðru en veislum og bridgepartíum. Við áttum ekki barn og þess vegna fannst mér lífið líka snauðara. Þá kynntist ég konu sem kom til Indlands að sækja börn sem átti að ættleiða af Svíum. Ég aðstoð- aði hana um tíma og tók heim ti! mín börn sem biðu þess að komast til Svíþjóðar. Þannig fékk ég elstu dóttur mína, Nadiru, sem nú er 16 ára. Hún stal úr mér hjartanu og hef- ur verið hjá mér síðan. Eftir að ég fékk hana fannst mér iífið meira virði og neitaði að taka þátt í sam- kvæmislífinu. Hélt mig mest heima við með barninu og naut hennar. Þegar hún var sjö mánaða gömul ákvað ég að snúa baki við lífi mínu í Indlandi, kvaddi eiginmanninn, þjónana mína og hundinn minn og hélt heim á leið.“ ÚR VELLYSTINGUM í LEIGUÍBÚÐ Á LAUGAVEGINUM Heimkoman varð Elfu ekki mjög auðveld. Hún hafði snúið baki við ríkidæminu og var orðin einstæð móðir á íslandi í leiguíbúð á Lauga- veginum. Innan skamms varð hún ófrísk að syninum Sigvalda sem nú er 14 ára: „Ég reyndi að lagfæra leiguíbúðina og gera hana heimilis- lega fyrir okkur," segir hún bros- andi. „Það einkennilega var, að þrátt fyrir það basl sem því fylgir að vera útivinnandi einstæð móðir með tvö börn þá sá ég ekki í eina mínútu eftir því að hafa flutt heim.“ Hún hafði sagt mér að alla skart- gripi sína og aðra dýrgripi hefði hún skilið eftir í Indlandi og það hvarflar óneitanlega að manni að betra hefði nú verið fyrir hana að taka það sem hún átti, selja og nota peningana í þarfa hluti hér heima: „Nei, veistu það, mér datt það aldrei í hug,“ segir hún brosandi. „Bæði var að margir af þessum hlutum voru erfðaskart- gripir sem mér hefði aldrei dottið i hug að taka með mér, en það sem efst var þó í huga mér var það að ég hafði fengið nóg af þessu ríkidæmi. Það getur vel verið að einhvern tíma hafi mann dreymt um það innst inni að verða svona ríkur, en þegar að því kemur sér maður að hamingjan felst ekki í auðæfum." ...OG ER NÚ HAMINGJUSÖM FIMM BARNA MÓÐIR Elfa bjó ein um tíma með börnun- um sínum og gerði þá helst grin að því að það eina sem hana vantaði nú væri námsmaður: „Og það rættist," segir hún og brosir. „Maðurinn minn heitir Jón Egill Unndórsson og starfar nú sem framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Suðurnesja í Keflavík, og þangað ekur hann á hverjum morgni. Þegar við kynnt- umst var hann við nám hér heima og fór síðan til Danmerkur í fram- haldsnám, þangað sem við fluttum með börnin tvö og eignuðumst saman þrjú í viðbót svo nú er ég orð- in fimm barna móðir. Yngri börnin eru Unndór 9 ára, Sara 7 ára og Hjálmar sem er 10 mánaða gamall: „Eg tel mig vera afskaplega lán- sama," segir Elfa. „Við eignuðumst þetta hús á auðveldan hátt og ég er svo lánsöm að hafa alltaf getað ver- ið heima hjá börnunum mínum. Maðurinn minn hafði alltaf sagt að þegar hann lyki sínu námi væri röð- in komin að mér að fara í nám og ég lét verða af þvi og fór í Fjölbrauta- skólann í Breiðholti. Þar var ég á fé- lagsfræðibraut þegar ég varð ófrísk að þeim yngsta og hætti þá, en ætla mér að taka upp þráðinn síðar þeg- ar börnin vaxa úr grasi. Það er víst nógur tíminn,“ sagði þessi hressa fimm barna móðir þegar hún kvaddi mig og spurningunni hvort hún saknaði einhvers úr fyrra lífi svaraði hún af einlægni: „Nei ég sakna einskis. Ég er mjög ánægð með líf mitt nákvæmlega eins og það er. Einstaka sinnum verður mér þó hugsað til gömlu þjónanna minna þegar ég fæ leið á húsverk- unurn!" stórirét smáir búitarkassar________ fyrir HUar yerslomr o$ sfórmarkatti rerit fm kr. 30.000.- HANS ÁRNASON UMBOÐ & ÞJÓNUSTA Laugavegi 178 - 105 Reyk javík S 3 13 12 HELGARPOSTURINN 33

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.