Helgarpósturinn - 08.10.1987, Qupperneq 2
Verður þetta
dónalegur fundur?
Jón Karl Helgason
Nei, ég held ég geti lofað því að hann verði allavega inn-
an velsæmismarka, fyrirlesarar verða allir klæddir en þeir
ætla engu að síður að reyna að skilgreina hvað erótík er og
hvernig hún birtist í bókmenntum og þá líklega um leið
hvað er dónalegt og hvað ekki.
Er erótík ekki sama og dónaskapur?
Vísir menn vilja gera þarna ákveðinn greinarmun á en ég
held að það sé afskaplega mjó lína sem sker þarna á milli.
Kynlíf er náttúrulega hluti af okkar daglega lífi og það mikil-
vægur hluti. Ég er ekki á því máli að það eigi skylt við dóna-
skap.
Er nokkur erótík í íslenskum bókmenntum?
Upphaflega hugmyndin að þessum fundi var sú að
spyrja: Hvarererótíkin í íslenskum bókmenntum? Það hef-
ur heyrst hér og þar að íslenskir höfundar, sérstaklega karl-
kynshöfundar af yngri kynslóðinni, séu svo að segja nátt-
úrulausir í sínum verkum. Það heyrði til undantekninga ef
fólk snertist. En fundurinn sjálfur kemur ekki til með að ein-
skorðast við íslenskar bókmenntir. Helmingurinn af þess-
um fyrirlestrum verður, ég held ég geti fullyrt það, almennt
um erótík en þarna verður líka fjallaö sérstaklega um erótík
í íslenskum bókmenntum."
Hverjir halda fyrirlestra á fundinum?
Það verður Kristján Árnason sem mun hefja fundinn.
Hann flytur fyrirlestur sem hann kallar Eros forn og nýr.
Kristján er fjölmenntaður maður, heimspekingur, skáld og
þýðandi. Er m.a. vel að sér i bókmenntum Forn-Grikkja og
hann ætti að geta varpað á þetta sögulegu Ijósi. Næst tekur
Soffía Auður Birgisdóttir til máls, en hún mun fjalla sérstak-
lega um erótík í íslenskum bókmenntum. Hún nefnir sinn
fyrirlestur Fossafans og mér skilst að hann fjalli að ein-
hverju leyti um hvernig erótíkin hefur birst í einhverju dul-
máli rithöfunda; í stað þess að nefna hlutina réttum nöfn-
um, þá hafi þeir falið þetta í skrúðmælgi og táknum. Þá
verður gert hlé á fundinum en eftir hlé mun Guðbjörg
Þórisdóttir flytja erindi sem hún kallar Ný viðkvæmni. Þar
skoðar hún sérstaklega erótík í verkum Thors Vilhjálms-
sonar, sem er í hópi okkar erótískari rithöfunda. Svo mun
Guðbergur Bergsson koma sem síðasti fyrirlesari og hann
nefnir sinn fyrirlestur Ásthneigð i bókmenntum. Ég er
mjög spenntur að heyra í Guðbergi. Hann er þekktur fyrir
að segja sínar skoðanir umbúðalaust og gerir það vafalaust
á þessu máli sem öðrum. Að lokinni framsögu verða síðan
opnar umræður þar sem fyrirlesarar og fundargestir geta
rætt um þetta áleitna efni og ég reikna með að það geti
orðið safaríkar umræður.
Hvemig er það eiginlega með þessa ungu karlrithöf-
unda, eru þeir gjörsamlega kynlausir?
Ég hef nú að vísu tekið eftir því að ungir karlrithöfundar
eru barnmargir. Ég held að það sé áberandi, ég veit a.m.k.
um tvo af yngstu kynslóðinni sem eiga báðir fjögur börn
sem heyrir til tíðinda þegar fólk tímir varla að eiga eitt barn,
hvað þá meira. Kannski fá þeir bara útrás fyrir sína erótík
í einkalífinu og eru of kurteisir til að troða henni upp á
almenning."
Er nokkurt vit í félagi sem heldur svona fundi?
Ég held að aðsóknin á laugardaginn verði að skera úr um
það. Ef hún verður góð þá held ég að bæði þetta efni og
félagið hafi sýnt fram á að eiga rétt á sér.
Að lokum. Fara fundargestir erótískari heim en þeir
komu?
Nei, ég á nú ekki von á því. Hins vegar uppgötva þeir
kannski þessa erótík sem býr innra með þeim og þeir hljóta
að hafa ákveðna nautn af.
Jón Karl Helgason er einn stjórnarmanna í Félagi áhugamanna um
bókmenntir. Á síðastliðnum vetri stóð það fyrir einum sjö fundum
þar sem rædd voru hin aðskiljanlegustu mál, tengd bókmenntum.
Málþingið um Halldór Laxness var síðan skrautfjöðrin í hattinn á
síðasta starfsári. Á laugardaginn kl. 14.00 hefur félagið annað
starfsár sitt með fundi í Odda, hugvísindahúsi háskólans. Fundur-
inn ber yfirskriftina: Erótík í bókmenntum.
FYRST OG FREMST
HÁSKÓLI íslands býður
nýnema velkomna í skólann á
heljarmikilli nýnemahátíd sem
haldin verður í Háskólabíói
síðdegis á föstudag. Þar verða
kyrjaðir stúdentasöngvar, rektor
ávarpar ungviðið, námsráðgjafi
leggur lífsreglur og tilvonandi
stúdentar fá leiðsögn um myrkviði
námslánakerfisins. En það er
ýmislegt fleira sem gott er fyrir
nýgræðinga og busa að fræðast
um. Þannig ætlar Valdimar
Örnólfsson að hvetja þá til
íþróttaiðkunar, Jóhann Ág.
Sigurdsson að reifa heilsugæslu og
læknisþjónustu og Margrét
Þorvaldsdóttir, eiginkona rektors,
segir þeim til um matseld og hollt
mataræði. Og þá er komið að
rúsínunni í pylsuendanum:
Veitingum og bíósýningu! Ekki
vitum við hverjar verða
veitingarnar, en bíóið verður
hvorki Gauragangur í gaggó né
Húllumhæ í háskóla, heldur
„Radio Days", ný hreyfimynd eftir
Woody Allen. Það er líklega jafn
gott að nýnemar fjölmenni, því
líklega er þetta í fyrsta og síðasta
skipti sem þeir fá ókeypis á bíó-
sýningu í Háskólabíói, en sá siður
að háskólastúdentar fengju frítt
þangað inn aflagðist fyrir
nokkrum árum...
ANDRÉSÖND og félagar eru
hreint ekki orðnir gamaldags, ef
einhver skyldi hafa haldið það.
Sem dæmi má nefna orð, sem
kom fyrir í nýlegu tölublaði um
hinar óborganlegu endur. Jóakim
frœndi er að bölva lélegum
aðstoðarmönnum sínum í sand og
ösku og grípur þá til þess að kalla
þá ,,bindishnútauppa“. Eflaust hafa
einhverjir ungir lesendur átt í
erfiðleikum með að stauta sig
fram úr þessu.
ALLAR götur síðan tíma þræla-
halds og átthagafjötra lauk hefur
það þótt vænlegast til að fá fólk til
vinnu að bjóða því góð verklaun.
En nú, þegar alls staðar vantar
fólk, verða fyrirtæki greinilega að
reyna að freista vinnuafls með
öðrum hætti. Þannig berjast ríkis-
spítalarnir nú i bökkum og fá ekki
fólk til starfa — þeir geta ekki
borgað kaup. Því er skemmtilegt
að sjá í sjónvarpi mikla auglýsingu
þar sem væntanlegum starfs-
kröftum ríkisspítalanna er ekki
boðið upp á laun — nei, heldur
mikla, verðmæta og ómetanlega
reynslu...
IÞRÓTTAfréttaritarar fara
hamförum yfir því að lið á borð
við Liverpool skuli dirfast að
koma hingað norðureftir til að
etja kappi við landann í hand-
bolta. Iþróttafréttamaður Moggans
kemst að þeirri niðurstöðu að lið
eins og Liverpool og írska liðið
sem keppti við Stjörnuna eigi ekki
að taka þátt í alþjóðakeppni. Og
hann bætir um betur og gerir því
skóna að óþolandi sé í slíkum
keppnum að hafa ,,farþega“ innan-
borðs, ,,menn og konur sem hafa
þá hugsjón eina að vera með“.
Þessir íþróttamenn séu „heldur
betur á rangri hillu og ef þeir hafa
ekki vit á því að færa sig um set,
er annarra að stjaka við þeim“. En
nú er spurning hvort við íslend-
ingar þurfum ekki að líta í eigin
barm. Við erum að vísu góðir í
handbolta, en töpuðu ekki
íslensku fótboltaliðin þrjú sem
tóku þátt í Evrópukeppni í fyrra
leikjum sínum samanlagt 30—0...
R BT66ÐR5TEFNIVEXLIÐ.....
HELGARPUSTURINN UMMÆLI VIKUNNAR
Erlent vinnuafl Vöntun er sögð á verkamönnum, sá vandi er líkur smámunum; Flytjum hingað fólk í hrönnum í frystigámunum. Niðri „Bestu sumur sídustu áratugi standast góðu sumrunum ádur fyrr engan snúning. Þau verda blátt áfram brjóstumkennanleg í þeim samanburöi." SIGURÐUR ÞÓR GUÐJÓNSSON RITHÖFUNDUR í GREIN UM VEÐURFAR.
2 HELGARPÓSTURINN