Helgarpósturinn - 08.10.1987, Qupperneq 7
. *rrrm.'
if' | i iii iii II 11H 'IH
TBn 71
11 i-w X. :$i*
Frystihús Frosta á Súöavik.
Kaup Togs hf. á hlutabréfum i Frosta síöastliöið vor blandast nú í kærumál vegna meints misferlis sparisjóðsstjórans á staönum.
SPARISJÓÐUR
í BÍLABRASKI
í kjölfar rannsóknar bankaeftirlits Seðlabanka ís-
lands á viðskiptum Sparisjóðs Súðavíkur hefur málinu
verið vísað til ríkissaksóknara. Rannsóknin beinist
einkum að viðskiptum sparisjóðsins við eiganda
skemmtistaðarins Djúpsins á ísafirði, sem einnig átti
tískuverslunina Tískuhúsið á ísafirði. Þá eru einnig til
rannsóknar bílaviðskipti Sparisjóðsins á Súðavík.
„Okkur ber skylda til að fylgjast
með því að bankar og sparisjóðir
fylgi lögum og reglum og ef við
teljum að svo sé ekki vísum við
þeim málum rétta boðleið," sagði
Þórður Ölafsson, forstöðumaður
bankaeftirlitsins, þegar Helgar-
pósturinn ræddi við hann um mál-
ið.
ALLT EIGIÐ FÉ í HÆTTU
Stór hluti eiginfjár Sparisjóðs
Súðavikur er í húfi vegna við-
skipta sparisjóðsstjórans, Hálfánar
Kristjánssonar, við Þórólf Ingólfs-
son á Isafirði. Þórólfur rak á sínum
tíma skemmtistaðinn Djúpið á ísa-
firði auk tískuverslunarinnar
Tískuhússins, en þessum stöðum
hefur nú báðum verið lokað. Þór-
ólfur var í viðskiptum við Spari-
sjóð Súðavíkur frá 16. mars til 24.
apríl og fór á þeim tíma vel fram
yfir é tékkhefti á vormánuðum,
eða um 2 milljónir króna.
Tékkheftið var hins vegar í nafni
sambýliskonu Þórólfs og var það
lögfræðingur konunnar, Jónatan
Sveinsson, sem Iagði fram kæru á
hendur Þórólfi og fór jafnframt
fram á að hlutdeild sparisjóðsstjór-
ans, Hálfdánar Kristjánssonar, að
málinu yrði könnuð.
Samkvæmt heimildum Helgar-
póstsins hafði Hálfdán Kristjáns-
son sparisjóðsstjóri ekki heimild
sparisjóðsstjórnar til að veita um-
ræddum aðila yfirdrátt fyrir meira
en 200 þúsund krónur. Sparisjóður
Súðavíkur er ekki stór sjóður, með
skráð eigið fé um síðustu áramót
að upphæð 2,8 milljónir króna.
HÁLFDÁN TELUR FÉÐ
EKKI TAPAÐ
Hálfdán var í samtali við Helgar-
póstinn bjartsýnn á að sparisjóðn-
um tækist að endurheimta um-
rædda fjárhæð og vísaði í því sam-
bandi til skuldabréfs upp á 2,7
milljónir króna sem Þórólfur lét
sparisjóðnum í té sem tryggingu
fyrir skuidum sínum. Það skulda-
bréf fékk Þórólfur þegar hann
seldi Steinþóri Friðrikssyni Djúpið
um mánaðamótin maí—júní.
Heimildir Helgarpóstsins herma
hins vegar að veð fyrir skuldabréf-
inu séu alls ófullnægjandi, aðeins
húseign sem metin er á 1,3 millj-
ónir króna. Auk þess sé mjög tæpt
að sparisjóðurinn fái haldið
skuldabréfinu, þar sem þrotabú
,,Þad er engin spurning ad það
er Frostamáliö sem er kveikjan að
þessu," sagði Hálfdán Kristjáns-
son, sparisjóðsstjóri á Súðavík, í
samtali viö Helgarpóstinn.
,,Ég skrifaði grein í Bæjarins
besta fyrir nokkru þar sem ég
sagði það hreint og klárt að Jóna-
tan Sveinsson hæstaréttarlögmað-
ur hefði misnotað sér skjólstæðing
sinn, þ.e. sambýliskonu Þórólfs
Ingólfssonar, til að hefja þetta mál.
Þeir aðilar sem þessu máli tengjast
virðast telja að nái þeir að koma
höggi á mig sé mikið unnið. Þann-
ig eru hreinar línur að þegar
Jónatan Sveinsson fer af stað án
þess að afla sér nokkurra gagna
um þetta hlaupareikningsmál og
hleypur í fjölmiðla án þess að við-
hafa eðlileg vinnubrögð, þá leiðir
það til þess að ég verð fyrir veru-
legu áfalli sem persóna.
Jónatan Sveinsson er lögmaður
Togsmanna. Hann byrjar á þvi að
Þórólfs Ingólfssonar muni gera
kröfu til bréfsins og að öllum lík-
indum fá.
Þá kvað Hálfdán ljóst að spari-
sjóðurinn hefði kröfu á framseli-
endur þeirra ávísana sem Þórólfur
hefur gefið út og að þeir væru
ábyrgir fyrir ávísununum. Pen-
ingarnir fengjust því inn.
Heimildir Helgarpóstsins segja
hins vegar að sýslumannsembætt-
ið á ísafirði hafi átt stóra ávísun
útgefna af Þórólfi og það neiti að
greiða sparisjóðnum eftir að hafa
haft samband við bankaeftirlit
Seðlabankans og fengið túlkun
þess á lögunum. Því sé allsendis
óvíst og reyndar ólíklegt að spari-
sjóðurinn fái inn peninga eftir
þessari leið.
FAÐIR HÁLFDÁNAR
ER FORMAÐUR
STJÓRNAR
Þessi atriði munu hafa upplýst i
rannsókn bankaeftirlitsins í vor.
koma sem lögmaður hrepps-
nefndar og segja henni að þetta sé
allt í lagi og við munum aldrei
missa tökin í Frosta. Síðan hleypur
hann yfir og gerist lögmaður
Frosta hf. við að aðstoða þá við
sölu á hlutabréfunum. Síðan gerist
hann lögmaður Togs hf. og aðstoð-
ar þá við að kaupa meirihlutann í
Frosta hf. Þetta hef ég bent honum
á og hann varð sár við og ég efast
ekkert um að þarna séu tengsl á
milli, þegar hann lætur sambýlis-
konu kæra manninn sinn og óskar
jafnframt eftir hugsanlegri rann-
sókn á aðild sparisjóðsstjóra að
umboðssvikamáli," sagði Hálfdán.
Sagðist Hálfdán hafa lagt hug-
mynd sína að bílaviðskiptunum
fyrir stjórn sparisjóðsins og hún
verið henni samþykk. Umræddur
staðgreiðsluafsláttur hafi numið
um 300 þúsund krónum samtals.
„Það má kannski deila um hvort
þetta er eðlilegur viðskiptamáti.
Við frekari rannsókn mun síðan
hafa komið í ljós að sparisjóðs-
stjórinn hafði fleira í pokahorninu.
Hálfdán Kristjánsson hafði á veg-
um sparisjóðsins farið út i bilavið-
skipti á þann veg að bifreiðir voru
keyptar af sparisjóðnum gegn
staðgreiðslu og því með stað-
greiðsluafslætti. Síðan seldi spari-
sjóðsstjórinn viðkomandi bifreiðir
án þess að veita kaupendum stað-
greiðsluafsláttinn.
Það er nú til rannsóknar hjá RLR
hvort sparisjóðsstjórinn lét hagn-
aðinn af þessum viðskiptum renna
í eigin vasa eða í tóma sjóði spari-
sjóðsins. Auk þess munu viðskipti
af þessu tagi með fjármagn spari-
sjóðsins ekki samræmast reglum
um sparisjóði.
Sparisjóðsstjórnin hlýtur einnig
að bera ábyrgð í þessu máli, þó svo
framkvæmdin hafi verið á hönd-
um sparisjóðsstjóra, því henni ber
að fylgjast með fjárhagsstöðunni á
hverjum tíma. Það kann hins veg-
ar að hafa gert sparisjóðsstjórn-
inni erfiðara um vik að beita sér i
málinu að formaður sparisjóðs-
stjórnarinnar, Kristján Svein-
björnsson, er faðir sparisjóðsstjór-
ans, Hálfdánar Kristjánssonar.
Hlýtur það að teljast til miður
góðrar viðskiptasiðfræði að for-
maður stjórnar fyrirtækis sé faðir
framkvæmdastjóra sama fyrir-
tækis. Aðrir í stjórn Sparisjóðs
Súðavíkur eru þeir Friðbert Hall-
dórsson, Kristján Jónatansson,
Frosti Gunnarsson og Halldór
Jónsson. Þeir tveir síðastnefndu
hafa nýlega tekið sæti í stjórn
sparisjóðsins.
Maður bjóst ekki við að þetta yrði
skoðað með neinni smásjá, en það
er alveg ljóst að þeir atburðir sem
hafa gerst hérna í þorpinu hafa
verið notaðir sem hægt er. Hitt er
svo annað mál að ég er ekkert að
segja að þetta sé alveg hundrað
prósent rétt, bókhaldslega séð.
Það er sjálfsagt alveg rétt að þetta
var rangt með farið.
Það kom tillaga frá einum með-
lima sparisjóðsstjórnar um að
stjórnin og ég, sem tókum ákvörð-
un um þessi bílaviðskipti, mynd-
um víkja meðan þetta mál væri í
rannsókn. En þessi aðili er jafn-
framt skrifstofumaður hjá Frosta
hf. Starfsmaður hinna, ef má segja
svo. Því það má tala um að hér í
þorpinu ríki hernaðarástand og
menn skiptast í tvær fylkingar.
Það snýst ekkert um annað en
þetta, hver drepur hvern,“ sagði
Hálfdán Kristjánsson sparisjóðs-
stióri.
phh
Frostamálið er kveikjan
VEXTIR
ÞJÓTA UPP
VERÐBÓLGA
Á þessu riti má sjá þróun láns-
kjaravísitölu á þessu ári. Súlurn-
ar standa fyrir hækkun lánskjara-
vísitölu i hverjum mánuði fyrir
sig, umreiknað í árshækkun. Lína
númer 1 stendur fyrir hækkun á
lánskjaravísitölu miðað við síð-
ustu þrjá mánuði á hverjum tíma.
Lína 2 stendur síðan fyrir hækk-
un á lánskjaravísitölu síðustu
tólf mánuöi á hverjum tíma.
VEXTIR
Á þessum tveimur línuritum
má sjá þróun vaxta á þessu ári. Á
því efra sést þróun meðaltals-
vaxta á óverðtryggðum skulda-
bréfum, útreiknað af Seðlabanka
Islands. Á því neðra má sjá þróun
meðaltalsvaxta á verðtryggðum
skuldabréfum, útreiknað af
Seðlabanka.
HELGARPÓSTURINN 7