Helgarpósturinn - 08.10.1987, Page 16
fyrirfram búinn að eyðileggja kvöld-
ið fyrir eiginkonunni. Konan er þess
vegna í brjáluðu skapi, hún er
ákveðin í að allt á þessum veitinga-
stað verði ómögulegt, maturinn
verði óætur og þjónninn ömurlegur.
Þá er fátt yndislegra en að sinna
þessari frú einstaklega vel — án
þess þó að maðurinn verði var við
það! — og þegar kvöldinu hefur ver-
ið bjargað og frúin þakkar fyrir gott
kvöld — þá er ég ánægð. Þetta eru
verðlaunapeningarnir mínir sem
enginn veit um!“
En er algengt að fólk hafi orð á því
ef það er ánægt með þjónustuna?
,,Já, það er orðið algengt nú orðið.
og hefur færst mjög í vöxt. Fólk veit
líka núna að það fær ekki mat eins
og það er vant heiman frá sér — eins
og tíðkaðist fyrir svona átta árum.
Þá átti fólk það til að kvarta yfir því
að það væri ekki sama bragðið af
rjúpunni og það átti að venjast hjá
mömmu sinni. Þessi breyting hefur
orðið með auknum ferðalögum til
útlanda, fólk er núna tilbúið að
prófa alls konar rétti, burtflogin
hænsni og óuppteknar kartöflur ef
því er að heilsa. Svo tel ég iíka að
það hljóti að vera aukin velmegun
hér á landi miðað viö það hversu oft
fólk fer út að borða. Það er liðinn
tími að fólk fari út að borða á þrí-
tugsafmælinu og svo aftur á því
þrjátíu og fimm ára. Við erum líka
rétt búin að læra það að setjast nið-
ur og njóta matarins. Það var alltof
algengt að við flýttum okkur að
borða vegna þess að við værum að
fara að vinna, horfa á sjónvarpið
eða eitthvað annað sem olli því að
tíminn við matarborðið varð eng-
inn.“
Það er nokkuð merkilegt við
starfsferil Þóru Stínu, að hún hefur
ekki í eitt einasta skipti sótt um starf
sem þjónn: ,,Mér hefur alltaf verið
boðið starf," segir hún. „Ég er ein af
þessum heppnu.“ I ágúst var henni
boðið starf á Holiday Inn, og núna,
aðeins einum og hálfum mánuði síð-
ar, er hún orðin veitingastjóri hót-
elsins. Það flokkar hún undir
heppni, þótt aðrir kalli það dugnað
og sönnun þess hversu vel hún
stendur sig í starfi. Spurningunni
hvort einhver munur sé á karlþjón-
um og kvenþjónum svarar hún án
umhugsunar: ,,Já, það er munur á
þeim. Karlþjónar líta til dæmis á
kvenþjóna á þann hátt að þær séu
eitthvað á milli aðstoðarmanneskju
og þjóns þótt ég hafi sjálf ekki orðið
vör við það. Ég nýt líka vissrar virð-
ingar vegna aldursins! Af hálfu
gesta er það alveg öruggt að þeir
taka meira mark á karlþjónum. Ef
einhver spyr mig hvort ég hafi borð
og ég svara neitandi — þá fer sá
hinn sami beint að næsta karlþjóni
og biður hann að útvega borð! Én —
það er ég sem sé um að láta borðin!1
segir hún og glottir. Hins vegar er
það alveg á hreinu að það fá allir
borð sem óska þess, bara ef það er
til. Það skiptir mig engu hvort fólk
er í hárri stöðu eða á nóg af pening-
um, hver gestur á sama rétt á góðri
þjónustu og það á enginn að fara
óánægður frá okkur. Annar mu.nur
sem ég hef orðið vör við er að ef
eitthvað þarf að gera og sá sem á að
framkvæma hlutinn er upptekinn,
þá geri ég það sjálf. Karlþjónar suða
hins vegar endalaust í þeim sem á
með réttu að framkvæma hlutinn.
Þeim dettur aldrei í hug aö gera
þetta bara sjálfir til að spara tíma.“
Þóra Stína er lágvaxin kona og
gerir óspart grín að því sjálf. Segist
ekki ganga á háum hælum í vinn-
unni nema á föstudags- og laugar-
dagskvöldum: „Mér finnst algjört
lágmark fyrir fólk sem fer út að
borða um helgar að þjónninn sjáist
upp fyrir borðbrúnina!" Hún verður
ekki hissa á spurningunni hvernig
hún nenni að þjóna fólki allan ársins
hring: „Þú ert ekki sú fyrsta sem
spyrð að þessu. Ég hef einfaldlega
mjög gaman af að vinna og mér
finnst ánægjulegt að láta fólki líða
vel. Þessi þjónustulund hefur alltaf
verið rík í mér. Ég hugsa að ég hafi
verið sleif í fyrra lífi. Mér finnst ég
mjög heppin að hafa tækifæri til að
vinna við það sem ég hef gaman af
vegna þess að alltof oft hitti ég fólk
sem kvartar yfir vinnunni sinni. Oh,
ég verð að fara að vinna og þannig
kvartanir glymja alltof oft í eyrum
manns. Ég vildi að allir gætu látið
óskir sínar rætast á sama hátt.“
Lágmark að
þjónninn
sjáist upp
fyrir
borðbrúnina!
Þegar nemar settusl á skólabekk í
Hótel- og veitingaskóla Islands áriö
1984 brá svo vid ad medal þeirra
var ein „mamma" Þórunn Kristín
Emilsdóttir, sem þá var 34 ára, eöa
nœstum helmingi eldri en flestir
nemendanna. Þóra Stína, eins og
hún er nefnd í daglegu tali, hafdi
starfad sem adstoðarstúlka á
skemmtistöðum í fjöldamörg ár, en
það var ekki fyrr en sjúkdómur
hafði haldið henni innandyra í fjög-
ur ár að hún ákvað að breyta til í líf-
inu.
„Það er óneitanlega skemmti-
legra að vera sérfræðingur í ein-
hverju öðru en bleium, hálsbólgu og
umgangspestum," sagði Þóra Stína
sem er fjögurra barna móðir. „Ég
hafði alltaf unnið fyrir mér, allt frá
því ég flutti að heiman fimmtán ára,
og kynnst ýmsum störfum. Ég vann
lengi í síld, fiski, á bóndabæjum og
fleira og ég hef ekki ennþá unnið
starf sem mér hefur ekki þótt gam-
an að."
Hún trúlofaði sig fimmtán ára og
fór að búa. Fyrst í stað leigði unga
parið en með mikilli vinnu tókst
þeim að kaupa eigin íbúð þegar
Þóra Stína var rétt orðin 17 ára: „Ég
manneskju að upplifa svona mikil
veikindi þá hafi hún „persónulega
haft gott af því“.
„Þegar fótunum er kippt svona
skyndilega undan manni gerir mað-
ur sér ljóst hvað maður hefur i raun-
inni haft það gott,“ segir hún. „Við
kvörtum og kveinum; ef við fáum
bólu á nefið er eins og himinn og
jörð séu að farast og smávegis háls-
bólga þýðir „meiriháttar veikindi"
hjá mörgum. A þessum tíma gerði
ég mér grein fyrir hvað við gerum
alltof oft úlfalda úr mýflugu. Ég
lærði að meta líkamann og heilsuna
á allt annan hátt sem og marga vini
mína. Fólk sýndi á sér hliðar sem
fram að þeim tíma höfðu verið fald-
ar."
Næstu fjögur árin dvaldi Þóra
Stína meira og minna í sjúkrahúsi,
fékk að koma heim annað slagið í
stuttan tíma og segist hafa verið
orðin alveg vonlaus um að sér
myndi nokkurn tíma batna. „Þang-
að til Örn Ólafsson fyrrum vinnu-
veitandi minn greip í mig!“ segir
hún brosandi. „Hann hringdi til min
um vorið ’84 þar sem ég sat innilok-
uð heima hjá mér og spurði hvort ég
gæti ekki hugsað mér að hjálpa sér
stundir á hverjum degi. Samkvæmt
þeim tíma sem ég eyddi í lestur
heima hefði ég átt að fá 12 í ein-
kunn! Fólk heldur oft að þjónar þurfi
ekkert að læra nema að rétta fólki
matseðla og bera fram matinn. Stað-
reyndin er hins vegar sú að við lær-
um mjög mikið. Meðal námsgrein-
anna eru enska, danska, franska og
íslenska, bókfærsla, næringarfræði,
reikningur, örverufræði og aðrar
algengar námsgreinar en að auki
þurfum við að kunna blómaskreyt-
ingar, hafa góða vínþekkingu,
þekkja uppbyggingu réttanna á
matseðlunum og ótalmargt fleira."
Björg dóttir Þóru Stínu segir mér
að um tíma hafi sér fundist mamma
sín vera í skólanum allan sóiarhring-
inn: „Hún fór í skólann á morgnana,
las allan daginn samviskusamlega
— og meira að segja svo samvisku-
samlega að ég hef aldrei séð annað
eins! — og svo kom fyrir að hún tal-
aði upp úr svefninum um stærð-
fræðina!”
„Já, við lærðum oft saman hér á
daginn, öll börnin og ég,“ segir Þóra
Stína. „Mér fannst tíka mikilvægt
atriði að börnin kynntust því að það
skiptir ekki málu hversu gamalt fólk
aö minnsta kosti
um helgar. . .
Örstutt rabb við
Þórunni Kristínu
Emilsdóttur,
veitingastjóra ó
Holiday Inn
vann í Hampiðjunni þá en þegar
Björg, elsta barnið, var eins árs
skildum við. Ég átti þá von á öðru
barninu, starfaði sem húsvörður í
ÍR-húsinu á daginn og í Glaumbæ á
kvöldin og nóttunni. Maður bara
varð," segir hún brosandi.
Eftir bruna Glaumbæjar hélt Þóra
Stína áfram að vinna á skemmti-
stöðum, fyrst í Klúbbnum og á Hótel
Sögu en lengst af í Sigtúni, þar sem
hún var í tíu ár. „Þar vann ég alltaf
hjá Erni Ólafssyni þjóni, sem átti síð-
ar eftir að reynast mér ómetanlega,"
segir hún. Það var svo árið 1980
sem breyting varð á högum Þóru
Stínu, „nákvæmlega daginn eftir að
Vigdís var kjörin forseti". Hún segist
muna daginn svona vel vegna þess
„að það síðasta sem ég gerði af viti
var að kjósa Vigdísi"!
„Breytingin" byrjaði með örlitlum
höfuðverk. Hann varð síðan stöðug-
ur og „það var ekki fyrr en ég áttaði
mig á að ég gerði lítið annað en taka
inn verkjatöflur að mig fór að gruna
að þetta væri ekki alveg eðlilegt",
segir Þóra Stína. En það var ekki
fyrr en hún missti alveg sjón og
heyrn sem ljóst varð hvað var að
gerast. Heilahimnubólga og það á
svo háu stigi að í fyrstu var talið að
um heilablæðingu væri að ræða.
Börnunum var komið fyrir hjá
skyldmennum og eiginmaðurinn,
Kristinn Eymundsson, vakti yfir
Þóru Stínu í sjúkrahúsinu. „Þá byrj-
aði fjögurra ára sjúkdómsganga,”
segir Þóra Stína og bætir við að þótt
hún óski auðvitað ekki nokkurri
niðri í Veitingahöll, það væri allt
betra en að safna spiki. Ég ákvað að
prófa — en fyrsta kvöldið var ég svo
máttfarin að mér datt ekki í hug að
ég myndi þrauka út kvöldið. Ég skalf
svo mikið að það var óþarfi fyrir
mig að nota hristara þegar ég bland-
aði kokkteilana! Örn lét eins og
hann tæki ekki eftir þessu og bað
mig að koma aftur nokkrum kvöld-
um síðar. Eftir sjö mánaða starf hjá
honum sagði hann mér að nú skyldi
ég drífa mig í skólann og læra til
þjóns, það væri ekkert vit í að sóa
lífinu svona. Ég setti á fjölskyldu-
fund og bar þetta undir eiginmann-
inn og börnin, því auðvitað tekur
maður sig ekki til upp á eigin spýtur
og fer í nám nema með samþykki
allra á heimilinu. En þau vildu öll óð
og uppvæg að ég gerði þetta og
sögðust skyldu taka heimilisverkin
að sér þegar þyrfti."
Hún segir að skólaárin hafi verið
„yndislegur tími. Þetta voru alveg
dýrlegir krakkar sem voru með mér
í náminu. Flest þeirra voru 18—20
ára, einn og einn eldri, en auðvitað
var ég langelst", segir hún hlæjandi.
„Enda var ég kölluð „ellismellur-
inn“ í skólanum. Kennararnir voru
iíka ómetanlegir og sýndu einstaka
þolinmæði við öllum þeim bjána-
legu spurningum sem ég lagði fyrir
þá. Þetta þýddi auðvitað að ég þurfti
að byrja að læra að læra aftur. Ég
hafði ekki verið í skóla í 22 ár og
mér fannst ég varla skrifandi! Mér
tókst þó ágætlega að komast í gegn-
um þetta, enda lærði ég í sjö klukku-
er, það er alltaf hægt að læra. Ég
held kannski að ég hafi haft svona
gífurlegan áhuga á þessu vegna
þess að mér var gefið annað tæki-
færi. Það fá ekki allir ný tækifæri í
lífinu, en ég fékk það. Mér fannst ég
verða að nýta það og þakka honum
þarna uppi um leið fyrir að gera
þetta fyrir mig.“
Sveinsprófinu lauk Þóra Stína í
vor og eftir að hafa lokið verklega
náminu í Veitingahöllinni ætlaði
hún sér í frí fram í september: „Ég
var ákveðin í að taka fyrsta sumar-
fríið mitt í lífinu," segir hún. „En ég
var varla byrjuð í því þegar farið var
að hringja í mig og biðja mig að
vinna." Það var aðallega leitað eftir
aðstoð Þóru Stínu fyrir einkasam-
kvæmi en auk þess var hún sérstak-
lega beðin að vera á Hótel Valhöll
þegar sænsku konungshjónin voru
hér í heimsókn: „Mjög elskulegt
fólk sem gott var að sinna,” segir
hún.
Hún segir eftirlætisviðskiptavin-
ina vera „fullorðna fólkið sem fer
sjaldan út að borða’: „Það er svo
gaman að gera eitthvað fyrir þannig
fólk,“ segir hún. Hvort hún fái aldrei
„leiðinlega” viðskiptavini sem hafi
allt á hornum sér svarar hún að
bragði: „Jú, jú auðvitað. En það er
líka með skemmtilegra fólki sem ég
fæ!“ Hvað meinarðu? „Sjáðu til, tök-
um sem dæmi ef hjón koma á veit-
ingastað til að fá sér að borða og
maðurinn er vel undir áhrifum en
konan ekki, og það leynir sér ekki í
kílómetra fjarlægð að maðurinn er
16 HELGARPÓSTURINN