Helgarpósturinn - 08.10.1987, Qupperneq 20
Háir vextír
Grunnvextir á Kjörbók
eru nú 24% á ári og leggjast þeir við
höfuðstól tvisvar á ári.
Ef innstæða, eða hluti hennar,
hefur legið óhreyfð í 16 mánuði
hækka vextir í 25,4%
og í 26% eftir 24 mánuði
Þrepahækkun þessi er afturvirk,
hámarks ársávöxtun er því allt að
27,7% án verðtryggingar
Verðtrygging
Á 3ja mánaða fresti er ávöxtun
Kjörbókarinnar borin saman við
ávöxtun 6 mánaða bundinna
verðtryggðra reikninga.
Reynist ávöxtun verðtryggðu
reikninganna hærri ergreidd uppbót
á Kjörbókina sem því nemur.
Örugg
og óbundin
Þrátt fyrir háa vexti og verðtryggingu
er innstæða Kjörbókar alltaf laus.
Vaxtaleiðrétting við úttekt er 0,8%,
en reiknastþó ekki af vöxtum tveggja
síðustu vaxtatímabila.
Kjörbókin er bæði einfalt og öruggt
sparnaðarform.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Á skemmtistödum þú?
,,Já, já, í mjólkurstöðinni gömlu.
Það var fínn staður þá, — já, já. Og
í lðnó með Óskari Cortez, sem var
hljómsveitarstjóri. Þetta var áður en
ég fékk leiklistarbakteríuna. Við
spiluðum djass og sving. „Stormy
Weather", það var aðallagið,
„Stormy Weather", þú kannast við
það. Ég sólaði það á lúðurinn! Það
held ég nú.“
Svo þú hefur verid poppari þess
tíma?
„Ja, poppari, jú, jú — djassari. En
ég var nú aldrei góður, ef ég á að
segja alveg eins og er. Enda sagði
Bjarni Bö það einhvern tima við
mig. Hann var búinn að sjá mig í
leikriti í Iðnó og var að þakka mér
fyrir. Þetta var gott hjá þér, sagði
Bjarni, þetta var gott hjá þér. Já, ég
held þú ættir bara að söðla um og
ekkert að vera að þessu gauli hjá
mér, farðu heldur í leiklistina. — Ég
var aldrei nógu góður á trompetinn,
spilaði þetta náttúrlega, en aldrei af
neinni innlifun."
Og hœttirðu þú að spila?
„Já, ég hef ekki snert þetta í 40 ár,
nema einhvern tíma á leikara-
skemmtun fyrir mörgum árum. Það
var stofnuð leikarahljómsveit í húll-
umhæi og vitleysu."
Þú vœrir karmski enn að blúsa
,,Stormy Weather" ef þú hefðir ekki
farið í leiklistina.
„Nei, ætli það. Ég var aldrei nógu
góður í þetta og ég fann það líka.
Maður þarf sérstaka hæfileika ef
maður á að verða góður."
AUÐVITAÐ ÞARF
HÆFILEIKA
Nú ú tímum virðist oft vera lítið
gefið fyrir hœfileikana, menn halda
því fram að það sé nóg að vinna og
vinna til að skapa list.
„Já, hm — hvernig er með þessa
poppara... ja hvað heitir hann
þessi sem lét laga á sér nefið?"
Mækel Jakkson, upplýsir blaðamað-
ur í skólastrákslega tóninum. „Jáh
— Mækel Jakkson," hlær Rúrik,
„hann er fjári góður. Annars fylgist
ég lítið með þessu. Mér finnst hann
nettur í hreyfingum og svona . . . jú
jú — hann er fjandi góður. En það
þarf enginn að segja mér neitt um
það, auðvitað þarf fólk hæfileika —
Madonna! Þetta er sko engin venju-
leg meðaljóna, laxi. Og fleiri og
fleiri. Presley t.d. Auðvitað er þetta
hæfileikafólk. Það verður enginn
stórskáld þó hann sitji við og æfi sig
og æfi sig að skrifa. Það verður eng-
inn neitt á listasviðinu ef neistann
vantar. Auðvitað þarf hæfileika, en
fólki er misvel gefið að vinna úr því
sem það þó hefur."
Rómúlus keisari, sá síðasti af
mörgum í Róm, gengur beygður af
sviðinu. Honum hefur mistekist ætl-
unarverk sitt, að frelsa heiminn
undan heimsvaldasinnum og valda-
gráðugum ofbeldismönnum. Eftir
standa foringjar og hermenn innrás-
arliðs germana og horfa á eftir keis-
aranum sem þeir hafa sett á eftir-
laun. Ekki einu sinni tekið hann af
lífi, eins og hann þó óskaði eftir.
Tjaldið fellur og áhorfendurnir eru
eins og litlar vélar sem settar eru í
gagnið allar á sama tíma og klappa
og klappa. Tjaldið fer frá aftur og
leikararnir streyma fram á sviðið,
statistarnir, litlu hlutverkin og
smám saman stærri og stærri. Að
lokum er enginn eftir nema aðal-
leikarinn, en hann lætur ekki sjá sig.
Leikstjórinn og hans hjálparkokkar
koma fram og meðtaka lof og prís.
Tjaldið fer fyrir og svo frá. Rómúlus
stormar fram á sviðið. Klappið eykst
og hann gengur fremst á sviðið,
bukkar sig, keisarakuflinn sveiflast
mikilúðlega til. Á þessari stundu er
leikarinn keisari í tvennum skiln-
ingi. Hlutverk hans er keisari og
hann er líka keisari yfir áhorfend-
um, hann hefur haft þá á valdi sínu
í þrjá klukkutíma, látið þá gráta og
hlaeja á víxl. Haldið þeim föngnum.
Á eftir fer hann í bað og heim,
Rómúlus er horfinn — eftir stendur
Rúrik Haraldsson.
Þ
eir á Stöð 2 eru iðnir við að
halda því fram að auglýsing í sjón-
varpi nýtist betur en auglýsing í
prentmiðlunum. Tilkynning þess
efnis er vanalega á skjánum á eftir
öllum auglýsingatímum. Sighvatur
Blöndal, framkvæmdastjóri Stöðv-
arinnar, hélt fram sömu skoðun í
viðskiptaþætti sínum fyrir skömmu.
Það skýtur því nokkuð skökku við
þegar Morgunblaðinu er flett. Að
undanförnu hefur Stöð 2 verið þar
með hverja heilsiðuauglýsinguna á
fætur annarri. Stöð 2 auglýsir þar
meira en Útsýn, Óli Laufdal og
aðrir dugmiklir auglýsendur til sam-
ans. Þeir virðast því vera að ráð-
leggja öðrum það sem þeir treysta
sér ekki til þess að gera sjálfir. . .
S ,, „
verðari en önnur. Á sama tíma og
Reykjavíkurborg vantar 400 manns
í vinnu fréttum við að um hundrað
manns hafi sótt um störf við þýðing-
ar á Stöð 2. Það þarf mikið að ís-
lenska á þeim bæ, en samt skilst
okkur að ekki standi til að ráða
nema svona tíu úr þessum hópi...
Þ
að kom óneitanlega á óvart
að ríkissjónvarpið skyldi ekki
sýna myndir frá fyrsta degi heim-
sóknar forseta íslands á Italíu.
Frétt af heimsókninni var birt aftar-
lega í fréttatímanum með túrista-
myndum frá Róm og forseti hvergi
nærri. Á Stöð 2 gátu menn hins
vegar fylgst með forseta þar sem
hann heilsaði ítölskum ráðamönn-
um. Ríkissjónvarpið verður greini-
lega að taka sig á í samkeppninni...
ÍlSiins og kunnugt er heldur SÁÁ
upp á 10 ára afmæli sitt um þessar
mundir. Á hátíðarfundi í Háskóla-
bíói hét fjármálaráðherra samtök-
unum f.h. ríkisstjórnar 15 milljóna
kr. ríkisstyrk á fjárlögum næsta árs.
En SÁÁ fær frekari styrki. Bjarni P.
Magnússon borgarfulltrúi mun
hafa lagt til í borgarráði að Reykja-
víkurborg veitti samtökunum 5
milljóna kr. styrk á næsta fjárhags-
ári og var tillagan samþykkt og vís-
að til fjárhagsnefndar. Ætti hagur
SÁÁ að vænkast mjög á næstu miss-
erum ...
20 HELGARPÓSTURINN