Helgarpósturinn - 08.10.1987, Qupperneq 22
EINKAREIKNINGUR
Eínkareikningur
er nýr og betri tékkareikningur
fyrir einstaklinga.
16% vextír
Ársvextir eru nú 16%
jafnt á háa sem lága innstæðu.
Og það sem meira er; þeir eru
reiknaðir daglega af innstæðunni
en ekkiaflægstu innstæðu á 10 daga
tímabili eins og á venjulegum
tékkareikningum.
Þessi ástæða ein ernægileg tilþess
að skipta yfir í Einkareikning.
30.000 kr.
yfirdráttur
Einkareikningshafar geta sótt um
allt að 30 þúsund króna yfirdrátt
til þess að mæta tímabundinni þörf
fyrir aukið reiðufé.
150.000 kr. lán
Einkareikningshafar geta fengið lán
með einföldum hætti.
Lánið er í formi skuldabréfs til allt
að 24 mánaða að upphæð allt að
150 þúsund krónur. Slík lánveiting
erþó að sjálfsögðu háð öðrum
lánveitingum bankans til
viðkomandi.
Hraðbanki
Einkareikningnum fylgir
bankakort sem veitir ókeypis
aðgang að hraðbönkunum allan
sólarhringinn.
Q
5
Einkareikningurinn þinn
í Landsbankanum.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Að loknum vinnudegi smartmynd
DAGBÓKIN HENNAR DÚLLU
Kæra dagbók.
Eg fékk að flytja á Einimelinn til
ömmu. Frábært maður! Við höfum
það líka eins og blóm í eggi, á með-
an liðið heima borðar hveitiklíð,
baunaspírur og baunastöppur í alla
mata. Amma hefur örugglega gam-
an af að hafa mig, því nú er hún ekki
lengur að skrönglast ein í húsinu og
hefur þar að auki einhvern til að
elda fyrir. Hún hefur sko heitan mat,
með sósu og öllu, tvisvar á dag.
Þetta er lífið!
Um daginn bauð amma mér
meira að segja á veitingastað og þá
er ég ekki að meina hamborgara-
eða kjúklingastað þar sem maður
getur varla andað fyrir steikingar-
fýlu. Þetta var almennilegur staður,
meira að segja kínverskur, með
þjónum og víni og flottheitum. Ég
var bara pínulítið hrædd við að
borða þessa skrítnu rétti, vegna
þess að ég heyröi pabba segja einu
sinni að kínverjar notuðu stundum
kanínur og ketti í matinn. (Það var
reyndar þegar mamma og amma
vildu fara á einhvern matstað í kína-
hverfinu í London um daginn, en
hann langaði meira í pízzu. Þess
vegna tók ég heldur ekkert svaka-
lega mikið mark á honum.)
Islenski kínamaturinn var rosa
spes. Amma splæsti svona blönduð-
um rétti með alls konar litlum skál-
um af mat og við vissum varla hvað
var hvað. Ég er svo fegin að hafa
þorað að prufa þetta, því það hefur
engin stelpa í mínum bekk fengið
svona! Á eftir bauð amma mér líka
í bíó, en það var algjör bömmer. Við
fórum á mynd á Kvikmyndahátíð-
inni, af því að kellingin hélt að það
væri svo mikill klassi yfir þannig
snobbsýningum. En meira að segja
hún sjálf hélt ekki út á þessari dellu
og við löbbuðum okkur bara heim.
Seinna sá ég viðtal við einn af
köllunum, sem stjórnuðu bíóhátíð-
inni, og hann var ógeðslega glaður
af því að líklega yrði ekki tap á
þessu. Ég bara meina það! Af hverju
er eiginlega verið að halda svona
hátíðir, ef það er ekkert hægt að
græða á þeim? Annaðhvort eru
mennirnir bilaðir eða þá að þetta er
eitt af því sem pabbi borgar með
sköttunum sínum.
Það er annars ótrúlegt hvað hann
pabbi borgar mikia skatta. Hann er
alltaf að benda mér á hús og brýr og
svoleiðis, sem skattpeningarnir
hans hafa borgað. Meira að segja
bíla. En á meðan pabbi minn borgar
fyrir fleiri, fleiri ráðherrabíla þurfa
sumir ekki einu sinni að borga sína
eigin! T.d. pabbi hennar Bellu vin-
konu. Bílnúmerið hans var birt í ein-
hverju blaði og sagt að hann væri
bara með bílinn að láni, eða láns-
kaupum, eða eitthvað þannig. Það
er sko barasta banki úti í löndum,
sem á bílinn, takk fyrir. Ég veit ekki
hvert mamma og pabbi ætluðu að
komast, þegar þau sáu þetta í blað-
inu. Pabbi hennar Bellu er nefnilega
alltaf að þykjast vera æðislegur gæi,
þó hann sé bara kall, og keyrir um
á svaka sportbíl. Samt er hann líka
að kaupa hús fyrir sig og nýju kon-
una (sem er eiginlega bara stelpa)
og verður að sjá fyrir mömmu henn-
ar Bellu, af því að hún kann ekkert
að vinna. Mamma segir stundum,
þegar pabbi Bellu berst í tal, að þau
pabbi eigi að stofna lítið fyrirtæki og
hætta að borga skatta fyrir annað
fólk. Hvað sem það þýðir.
Verð að hætta, því maturinn er til.
Það er forréttur, eftirréttur og ég
veit ekki hvað! Bless, Dúlla.
Notaðu
endurskinsmerki
-og komdu heil/l heim.