Helgarpósturinn - 08.10.1987, Síða 26
BÓKMENNTIR
eftir Helga Skúla Kjartansson
Stórvirki til lykta leitt
Lúðvík Kristjánsson: íslenzkir
sjávarhœttir V, Menningarsjóður
1986, 498 bls. m. fjölda mynda.
íslenskir sjávarhættir eru meðal
stórvirkjanna í íslenskri fræði-
mennsku og bókaútgáfu og eitt-
hvert allra mesta rannsóknarverk
hérlent sem einn maður hefur tek-
ist á hendur. Með fimmta bindinu,
sem kom út í fyrravetur, er þetta
ritverk leitt til lykta með þeim
myndarbrag afsláttarlausum sem
stofnað var til af höfundi og útgef-
anda, og skakkar litlu að birst hafi
bindi á ári síðan fyrsta bindið kom
út árið 1980.
Það er sagt um ritraðir og fjöl-
bindaverk, sem til er stofnað af
stórhug og metnaði, að þar verði
tíðum lítið úr því högginu sem hátt
er reitt. „Sjaldan verður ósinn eins
og uppsprettuna dreymir," kvað
Sigurður Nordal. En hér er undan-
tekning frá þeirri dapurlegu reglu.
Rannsóknarstarf Lúðvíks Krist-
jánssonar um sjávarhætti íslend-
inga á árabátaskeiðinu er sannar-
lega orðið langt frá upptökum til
ósa. I hartnær hálfa öld hefur
hann unnið markvisst að settu
marki; í aldarfjórðung hefur rann-
sóknin verið hans aðalstarf — og
raunar þeirra hjóna beggja, Lúð-
víks og Helgu Proppé. Og þeim
hefur auðnast einbeitni og starfs-
þrek til að leiða verkið til áform-
aðra lykta. Af þeirra hálfu liggja í
ritinu tugir ársverka, og þar við
bætist feikimikið starf annarra
manna að gerð og öflun mynda,
samningu skráa og öðru slíku sem
að útgáfunni snýr. Þar hefur svo
vel tekist til að öll útgerð bind-
anna fimm er verki Lúðvíks sam-
boðin, falleg, vönduð og í engu til
sparað.
í þessu lokabindi eru fjórir meg-
inþættir: HVALUR (66 bls.), ROST-
UNGUR (22 bls.; þáttur um sel var
kominn áður), SJÁVARFUGLA-
NYTJAR (204 bls.) og ÞJÓÐTRÚ
OG GETSPEKI (33 bls.). Eins og í
hinum bindunum eru hér rækileg-
ar skrár um efni bókarinnar:
Myndaskrá (375 myndir, bæði
teikningar og ljósmyndir, margar
þeirra í litum), heimildaskrá (mörg
hundruð heimildir, prentuð rit,
handrit og heimildarmenn sem
Lúðvík hefur haft tal af, og er vitn-
að til þeirra neðanmáls jafnharð-
an og þær eru notaðar) og atridis-
ordaskrá (34 þéttprentaðar blað-
síður, enda er rit Lúðvíks, auk ann-
ars fróðleiksgiidis, mikill fjársjóð-
ur þess orðaforða sem sjávarnytj-
um tengist). Einnig er efnisútdrátt-
ur á ensku, sem íslenskum
lesendum er bagalaus. Svo eru í
þessu bindi skrár og fleira sem á
við verkið í heild. Fer þar mest
fyrir nafnaskrá (90 bls., aðallega
mannanöfn og örnefni); einnig
eru nánari upplýsingar um vissar
heimildir og skrá um þau mörg
hundruð muna á Þjóðminjasafni
og þrettán öðrum söfnum sem
teikningar eða ljósmyndir eru birt-
ar af í verkinu; og loks eftirmáii
höfundar sem bregður mjög fróð-
legu ljósi á rannsóknarverk hans.
Það jaðrar við smámunasemi að
telja upp hnökra á verki sem í
flestum atriðum er svo vandað
sem þetta. Þó vottar fyrir penna-
glöpum: „Skálholtsbók" þar sem á
að standa Staðarhólsbók (36);
Óspakur óvart nefndur „Ófeigur"
(67); dúnhreinsunarvél fundin upp
„eins og áður getur" (312) þótt
þess sé ekki getið áður; nefndur
„e-strengur fiðluboga" (183) þótt
strengirnir séu fremur hafðir á
fiðlunni en boganum; ósamræmi
milli myndatexta og meginmáls á
bls. 192 um hvað sé stertur og
hvað sigasœti. Á stöku stað eru
myndirnar sjálfar ekki í fullkomnu
samræmi við lýsingar Lúðvíks:
tveir kengir sýndir á 446. mynd
þar sem á að vera einn (skv. bls.
161); röng hlutföll í bjargstokki á
130. mynd (sbr. bls. 153). Þá bregð-
ur fyrir vafasömum orðmyndum:
„þar sem því var við komið“ í stað
varð vid komið (116) og fleira í
þeim dúr. Prófarkalestur hefur
ekki verið nógu nærgöngull um
svona hluti, þótt af eiginlegum
prentvillum sé nauðalítið sýnilegt
(sú lakasta á bis. 173: „auga —
bolti" þar sem á víst að vera auga-
bolti).
Efnisskipan er óhjákvæmilega
vandamál í svo efnisríku verki
sem þessu. Til að halda reiðu á
öllu fróðleiksmagninu verður Lúð-
vík að beita mjög kerfisbundinni
niðurröðun. En hún getur svo aft-
ur haft í för með sér óþægindi á
borð við þau, að biskupsstafir
tveir, sem Páll Jónsson í Skálholti
lét gera úr rostungstönn, koma
hvor á sínum stað í rostungakafl-
anum, annar þar sem segir frá rit-
uðum heimildum um rostungs-
nytjar (bls. 100), en hinn, sá sem
fannst í kistu Páls, þar sem greinir
frá vitnisburði fornleifa (101—102)
og engin tenging milli frásagn-
anna. Annars eru vissar endur-
tekningar óhjákvæmilegar í því-
líku verki; Lúðvík gætir þar skyn-
samlegs hófs og vísar á milli þar
sem tilefni er til. Eini alvarlegi
misbresturinn á slíku í þessu bindi
er í lýsingum á skyggningu eggja.
Á skyggningu sjófuglaeggja er al-
menn lýsing á bls. 180, en rúmum
100 síðum seinna (296—297 og
345. mynd) rækileg umfjöllun um
að skyggna æðaregg sem er tölu-
vert öðru vísi og vantar alveg
millivísanir og skýringar á því sem
á milli ber.
Eitthvað fleira mætti nefna í að-
finnsluáttina, en miðað við hið
ótrúlega efnismagn eru hnökrarn-
ir fáir; það gildir bæði um þetta
bindi og verkið í heild.
Athugum bara einn kafla: Sjáv-
arfuglanytjar. Kaflinn er röskar
200 síður með nærri 300 myndum
(þ. á m. stórkostlegum litmyndum
af flestum fuglabjörgum landsins,
fuglum og hreiðrum). í venjulegu
broti væri þetta doðrantur upp á
svo sem 300 síður auk mynda ef
kaflinn væri prentaður einn sér
með þeim hluta af öllum skránum
sem honum tilheyrir. Textinn
þrunginn af fróðleik, reistur á víð-
tækri könnun alls konar heimilda,
prentaðra og óprentaðra, auk frá-
sagna fjölda fólks frá þessari öld;
rannsóknin teygð aftur í aldir eftir
föngum og nær á hinn bóginn
fram á síðustu áratugi. Frásögnin
að vísu bundin stranglega við svið
þjóðháttalýsingar (t.d. ekki farið út
í sagnfræðilegar ályktanir á borð
við það hve mikinn hluta af viður-
væri sínu þjóðin hafi sótt til sjó-
fugla, en það virðist mér að geti
hlaupið á fáeinum prósentum), en
þó stíluð af þeirri íþrótt að sumir
kaflar verða grípandi lesning —
ekki síst um æðarfuglinn. Ég er
hræddur um að margur fræðimað-
urinn væri meira en stoltur af
slíkri bók, jafnvel þótt hún væri
hans aðalverk um dagana. En
þetta semur Lúðvík rétt sisvona í
leiðinni í riti sem þó hefur sjósókn
og fiskveiðar að þungamiðju. Hér
er sannarlega ástæða til að líta
upp og taka eftir hvílíkt stórvirki
er svo giæsilega til lykta leitt.
LISTVIÐBURÐIR
Árbæjarsafnið
Opið eftir samkomulagi, sími 84412.
Ásgrímssafn, Bergstaða-
stræti 74
Opið alla daga nema laugardaga frá
13.30—16.00. Yfir stendur sumar-
sýning á úrvali verka Ásgríms Jóns-
sonar.
Ásmundarsafn
Abstraktlist Ásmundar Sveinssonar,
opið daglega frá 10—16.
FÍM-salurinn v/Garöastræti:
Margrét Jónsdóttir opnar á föstudag
málverkasýningu sem stendur til 25.
okt.
Gallerí Borg
Bragi Hannesson opnar sýningu í
dag á vatnslitamyndum og olíumál-
verkum. Stendur til 13. okt. í salnum
v/Austurstræti er upphengi að hætti
hússins.
Gallerí Gangskör
Frjálst upphengi meðlima galleris-
ins. Opið frá 12—18 virka daga og
14—18 um helgar.
Gallerí Grjót
Samsýning aðstandenda. Málverk,
grafík, skúlptúr, silfur o.fl.
Gallerí Svart á hvítu
Sigurður Örlygsson sýnir málverk
fram í miðjan október.
Gallerí Langbrók — textíll
Vefnaður, tauþrykk, myndir, fatnað-
ur o.fl. á Bókhlöðustíg 2.
Gallerí Vesturgata 17
Hafsteinn Austmann sýnir vatnslita-
myndir til 24. okt.
Kjarvalsstaðir
Rúrí sýnir umhverfisskúlptúr, Jón
Axel, Björg Örvar og Valgarður
Gunnarsson sýna málverk og Katrín
Ágústsdóttir sýnir vatnslitamyndir.
Sýningarnar standa til 11. okt.
Listasaf n Einars Jónssonar
Opið 13.30—16.00 laugar- og sunnu-
daga. Höggmyndagarðurinn opinn
alla daga frá 11—17.
Nýlistasafnið við Vatnsstíg
Helgi Sigurðsson sýnir málverk og
blýantsteikningar til 18. okt.
Mokkakaffi
Gunnar Kristinsson sýnir myndir
unnar með blandaðri tækni frá 11.
sept. til 9. okt.
Þjóðleíkhúsið
Ég dansa við þig kl. 20.00 fimmtu-
dags- og laugardagskvöld. Síðustu
sýningar. Rómúlus mikli kl. 20.00
föstudagskvöld.
Leikfélag Reykjavíkur
Faðirinn kl. 20.30 fimmtudag og
laugardag. Dagur vonar föstudag og
sunnudag kl. 20.00, síðustu sýningar.
Ðjöflaeyjan kl. 20.00 föstu- og
laugardag.
Alþýðuleikhúsið
Eru tígrisdýr í Kongó? laugardag kl.
13.00. Sýnt í Kvosinni.
KVIKMYNDAHUSIN
★★★★
Bláa Betty (Betty Blue). Sýnd kl. 9 í
Bíóhöllinni.
Blátt flauel (Blue Velvet). Sýnt kl. 10
í Bíóhöllinni.
Herdeildin (Platoon). Sýnd kl. 9 og
11.15 í Regnboganum.
Komið og sjáið (Come and See)
Rússneska stórmyndin sýnd kl. 7 og
10 í Laugarásbíói.
★★★
Tveir á toppnum (Lethal Weapon).
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í Bíóborg.
Óvænt stefnumót (Blind Date).
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í Stjörnubíói.
Logandi hræddur (The Living Day-
lights). Sýnd kl. 5, og 9 Bíóhöllinni.
Angel Heart Sýnd kl. 5 og 7 í Bíó-
höllinni.
Seinheppnir sölumenn (Tin Men).
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 i Bíóborg.
Steingarðar (Gardens of Stone).
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í Stjörnubíói.
★★
Valhöll Sýnd kl. 5 í Laugarásbíói.
Vild'ðú værir hér (Wish You Were
Here). Sýnd kl. 9 í Regnboganum.
Geggjað sumar (One Crazy
Summer). Sýnd kl. 7.15 og 11.15 í
Bíóhöllinni.
Svarta ekkjan (Black Widow). Sýnd
kl. 5, 7, 9 og 11 í Bíóborg.
Hver er stulkan? (Who's That Girl?)
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í Bíóhöllinni.
Malcolm Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15
í Regnboganum.
Eureka Sýnd kl. 5, 7.30 og 10 í Laug-
arásbíói.
Beverly Hills Cop 2 Sýnd kl. 5,7,9og
11 í Háskólabiói.
Hefnd busanna (Nerds in Paradise).
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í Bíóhöllinni.
Fjörá framabraut (The Secret of my
Success). Sýnd kl. 5, 7, 9.05 og 11.10
i Laugarásbiói.
Omega-gengið (Omega Synd-
rome). Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
★
Superman. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11 í
Regnboganum.
O
Lögregluskólinn 4. Sýnd kl. 5, 7 og
11.15. í Bíóhöllinni.
Herklæði guðs (The Armour of
God). Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15 í
Regnboganum.
NÝJAR
Lazaro. Sýnd i Bíóhúsinu kl. 5,7,9 og
11.
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ mjög góð
★ ★ miðlungs
★ þolanleg
O mjög vond
KVIKMYNDIR
Af gagnmerkum stílbrögðum Barrys Levinson
Bíóborgin: Tin Men (Seinheppnir
sölumenn),-kýc-k
Bandarísk. Árgerð 1987.
Framleiöandi: Mark Johnson.
Leikstjórn/handrit: Barry
Levinson.
Kvikmyndun: Peter Sova.
Tónlist: David Steele, Andy Cox,
Fine Young Cannibals.
Aðalhlutverk: Richard Dreyfuss,
Danny DeVito, Barbara Hershey,
John Mahoney, Jackie Gayle o.fl.
Barry Levinson (f. 1932) er til-
tölulega ungur í hettunni sem leik-
stjóri, en hefur þeim mun gagn-
merkari reynslu sém handritshöf-
undur, eins og prýðisgott hand-
verk hans í þeirri mynd sem hér er
til umræðu ber reyndar glöggt
vitni um. Helstu landvinningar
hans á því sviði eru And Justice for
All sem Norman Jewison leik-
stýrði 1979, Inside Moves frá árinu
1980 undir leikstjórn Richards
Donner og svo að sjálfsögðu hin
stórgóða Diner frá 1982, sem jafn-
framt var fyrsta leikstjórnarverk-
efni hans sjálfs.
Það sem einna helst einkennir
þessi verk Levinsons er fyrst og
fremst einkar sterk og vendilega
undirbyggð persónusköpun, jafnt
höfuðpersóna verka hans sem og
ekki síður þeirra aukapersóna er
hann stillir upp í nánasta umhverfi
þeirra og ætlar það hlutverk að
varpa ljósi á þá þætti persónu-
gerðar söguhetjunnar er mestu
máli skipta fyrir framvindu sjálfs
plottsins. Þessi ótrúlega natni og
áhersla er hann leggur á fínpússn-
ingu persónugerðar allt niður í
smæstu statistahlutverk verða
síðan til þess, að þar framundan
oss á hvíta tjaldinu sprettur fram
ljóslifandi öllu trúverðugri skil-
greining tíðaranda þess tímabils
og umhverfis er hann fjallar um
hverju sinni en við eigum núorðið
almennt að venjast úr afurðum al-
mennra draumaframleiðenda þar
vestra.
í Tin Men rekur Levinson þann-
ig ekki einvörðungu fyrir okkur
bráðskemmtilega og umfram allt
meinfyndna sögu tveggja harð-
svíraðra farandsölumanna, sem af
ótrúlegustu list draga viðskipta-
vinina á asnaeyrunum út og suður
þar framundan oss á tjaldinu,
heldur er myndin jafnframt ein af
skemmtilegri persónulegum skil-
greiningum á tíðaranda sjötta og
sjöunda áratugarins er sést hefur á
hvíta tjaldinu í háa herrans tíð...
Hversu ótímabært stílbrot sumum
hverjum annars kann að þykja
nærvera meðiima hljómsveitar-
innar Fine Young Cannibals á
sviði næturklúbbsins er þeir
Dreyfuss og DeVito stunda að stað-
aldri.
Tin Men er í alla staði býsna
hönduglega úr garði gerð. Hand-
ritið pottþétt, leikstjórnin mark-
viss og samleikur þeirra Dreyfuss
og DeVito með eindæmum fág-
aður. Sem sagt í flestu tilliti ágætis-
ærslaleikur sem vel er verðugur
kvöldstundar í lífi allra sannra
unnenda þessarar annars ágætu
tegundar kvikmynda.
26 HELGARPÓSTURINN