Helgarpósturinn - 08.10.1987, Qupperneq 27
TONY, hljómplötuútgáfa, stendur
fyrir heljarmiklum tónleikum í
kvöld, fimmtudagskvöld, í Holly-
wood. Þar veröa á vegum útgáfunn-
ar þeir sem hún ætlar sér að gefa út
á hljómplötum nú fyrir komandi
jólavertíö í plötubransanum. Þeir
sem fram koma eru Rúnar'Þór Pét-
ursson, sem kynnir plötu sína Gísl,
Haukur Hauksson sem kynir sína
plötu, sem heitir Huílík nótt. Einnig
verður á ferðinni dúettinn Blá-
Skjár, sem samanstendur af
trommuleikaranum Steingrími Guö-
mundssyni og Ingólfi Steinssyni,
fyrrum Þokkabótarmanni. Þeir fé-
lagar kynna væntanlega plötu sem
inniheldur íslensk þjóölög í þeirra
eigin útsetningu. Magnús Þór Sig-
mundsson verður þarna líka og spil-
ar og syngur lög af væntanlegri
sólóplötu sinni. Síðast ber svo að
telja hljómsveitina Tíbet-Tabú, sem
þarna þreytir frumraun sína. Tóný-
útgáfan hefur hingað til verið kunn-
ust fyrir að gefa út plötur með Sverri
Stormskeri og eftir því sem fregnir
herma verður Sverrir einnig með
plötu fyrir jólin, tvöfalt albúm, enda
maðurinn afkastamikill lagahöfund-
ur með afbrigðum.
FINNUR EYDAL, sá kunni
blásari og hljómsveitarstjóri að
norðan, leggur land undir fót og
blæs í Heita Pottinum á sunnudags-
kvöldið. Finnur mun blása í barítón-
saxófón, en með honum leika þeir
Kjartan Valdimarsson á píanó,
Tómas R. Einarsson á bassa og
Birgir Baldursson á trommur.
Hljómleikarnir hefjast kl. 21.30 á
sunnudagskvöldið og verða eins og
fyrr segir í mekka íslensks djass um
þessar mundir, Heita pottinum í
Duus-húsi.
MÁL OG MENNING verður
með öfluga barna- og unglinga-
bókaútgáfu á þeim mánuðum sem
fara í hönd. Fyrst ber þar að telja
nýja bók eftir Andrés Indridason,
Stjörnustœlar heitir hún. Gudlaug
Richter sendir einnig frá sér frum-
samda bók fyrir börn og er sú all-
óvenjuleg að því leyti að hún gerist
á þjóðveldisöld og lýsir þar uppvexti
tveggja stráka. Þorvaldur Þorsteins-
son myndlistarmaður myndskreytir
bókina, sem heitir Sonur Sigurbar.
Guðlaug lætur sér þó ekki nægja að
skrifa eigin bók því hún þýðir einn-
ig bók sem kemur út nú fyrir jólin,
Eiríkur mannsbarn heitir sú og er
eftir Danann Lars Henrik Olsen.
Þessi bók gerist mestanpart með ás-
um og segir frá ungum dreng sem
sóttur er í mannheima lil að bjarga
ásunum háska frá. Þá má nefna
tvær bækur frá frændum okkar Sví-
um, eftir tvo af þeirra þekktustu
barnabókahöfundum, sjálfa Astrid
Lindgren, en Sigrún Árnadóttir hef-
ur þýtt bók hennar Rasmus á flakki,
og hún hefur sömuleiðis þýtt bók
eftir Gunillu Bergström um Einar
Áskel. Einar Áskell ott Milla.
FERÐATÖSKUR
EKTALEÐUR
1. Rúmgóð ferðataska, tvískipt, rennilás
allan hringinn. Stærð: ca 57x42x12 cm
2. Helgarferðataska með framhólfi m/
rennilás. Stærð: ca 47x28,5x12 cm
3. Axlartaska með hliðarhólfi. Stærð: ca
28x32x17 cm
4. Þarfaþing (snyrtitaska) fyrir persónu
lega hluti. Stærð: ca 24x16,5x10,5 cm
• Ekta leðursaumur
• Vel unnið
• Klassísk tískuvara
• Nuggat brúnar
• Glæsilegar og varan
legar
• Léttar, fyrirferðarlitl
ar en mjög rúmgóðar
Pöntunarsími 91-651414
Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00.
Póstverslunin Príma, box 63,222 Hafnarfirði.
© VISA © EUROCARD