Helgarpósturinn - 08.10.1987, Page 31
A
fl^TMhuga.sviö Sambandsins
er vítt, ef marka má þrálátan orö-
róm meðal fólks í ferðamannaiðn-
aði. Segir sagan, að menn frá SÍS
standi í samningaviðræðum við eig-
anda Holiday Inn i Reykjavík og
verði bráðlega gengið frá
kaupum þeirra á hlut í hótelinu. . .
A
undanförnu hefur meiri-
hluti í ónafngreindri ferðaskrifstofu
verið auglýstur til sölu. Þeir, sem til
þekkja, segja að þarna sé um að
ræða Ferðamiðstöðina í Aðal-
stræti og að seljandinn sé Guðjón
Styrkársson lögfræðingur. . .
| síðasta Helgarpósti var greint
frá mismunandi útreikningum
greiðslukortafyrirtækjanna á drátt-
arvöxtum. Þannig þarf sá sem greið-
ir Visa-ísland mánuði eftir gjald-
daga að standa straum af 3,5 pró-
senta dráttarvöxtum, en sá sem
lendir í sömu vanskilum við Kredit-
kort þarf að greiða 7 prósenta drátt-
arvexti. En þeir sem hafa lent í van-
skilum við Kreditkort hafa kvartað
yfir öðru. lnnheimtustjórinn hefur
einungis hálftímasímatíma á hverj-
um degi og því getur reynst erfitt
fyrir
þá sem búa úti á landi og lenda í
vanskilum að ná sambandi við hann
til að reyna að semja um greiðslu á
eftirstöðvunum. Það reynist hins
vegar auðvelt að ná sambandi og
semja við lögfræðingana sem sjá
um vanskii Kreditkorta um tveimur
mánuðum eftir gjalddaga. En þá er
innheimtukostnaður þeirra kominn
ofan á skuldina og því erfiðara en
ella að greiða hana upp. . .
o
pinberir starfsmenn hafa
löngum haft það orö á sér að vera
erfiðir viðureignar. I ljósi framkomu
starfsmanna Skattstofu Reykja-
víkur við samviskusaman góðborg-
ara virðist það ekki vera að ósekju.
Þessi maður hefur tamið sér það að
fá kvittun frá skattstofunni þegar
hann skilar af sér skattframtalinu.
Það gerði hann einnig stuttu eftir
síðustu áramót. Þegar hann hins
vegar fékk skattseðilinn sinn í ágúst
síðastliðnum kom í ljós að áætlaöar
höfðu verið á hann tekjur. Til skýr-
ingar var þess getið að skattstofunni
hefði ekki borist skattskýrsla frá
honum og því voru reiknaðar sér-
stakar refsiprósentur ofan á skattinn
af hinum áætluðu tekjum. Við það
var skattur mannsins orðinn um
sexfalt hærri en endurskoðandi
hans hafði reiknað með. Maðurinn
fór því með kvittunina góðu niður á
skattstofu og hugðist fá leiðréttingu
sinna mála. Þar fannst skattskýrsla
hans týnd í einhverjum skjölum.
Þrátt fyrir hin augljósu mistök skatt-
stofunnar var manninum tjáð að
hann yrði að kæra til ríkisskatt-
stjóra þar sem mál hans fengi af-
greiðslu eins og önnur kærumál.
Slík mál taka iðulega tvo þrjá mán-
uði og bað þvi maðurinn starfsmenn
skattstjóra að biðja Gjaldheimtuna
að slá lítilega af kröfum sínum um
mánaðarlegt tillag í ríkiskassann.
Það töldu starfsmenn af og frá. Þá
fór maðurinn þess á leit að sektar-
álagið fyrir að hafa ekki skilað af sér
skýrslunni væri tekið burtu. Það
fannst starfsmönnunum sömuleiðis
ómögulegt, þar sem bíða þyrfti úr-
skurðar ríkisskattstjóra áður en
hægt væri að krukka nokkuð í
álagðan skatt. Þá fór maðurinn þess
á leit að starfsmenn skattstofunnar
strikuðu yfir þá klausu á álagningar-
seðlinum er sagði að hann hefði
ekki skilað skýrslu sinni á réttum
tíma og greindi frá því neðanmáls
hvernig þessi klausa hefði lent á
álagningarseðli hans. Þetta taldi
hann nauðsynlegt svo ríkisskatt-
stjóri fengi réttar upplýsingar til að
úrskurða eftir. Starfsmenn skattstof-
unnar neituðu enn. Þessi ólukkans
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.....91-31815/686915
AKUREYRI:.......96-21715/23515
BORGARNES:.............93-7618
BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:.....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489
HÚSAVÍK:........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ..........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:.....97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ......97-8303
interRent
maöur hefur því þurft að greiða handvömm starfsmanna skattstof-
skatta í hverjum mánuði sem eru vel unnar. . .
rúmlega heildartekjur hans, fyrir _
líROÐFULL BÚÐI
AF GLÆSILEGUM VÖRUM
afsláttur þessa viku
I w /O í tilefni opnunar.
Tískuverslunin
KÍI%Uli
Þingholtsstræti 6 - Sími 19566
HELGARPÓSTURINN 31