Helgarpósturinn - 08.10.1987, Qupperneq 37
l hinu harða tölvustríði geta ör-
lög tölvufyrirtækja ráðist af einni
ákvörðun eins stórs aðila og því
ekkert smámál þegar Heimilis-
taeki missa stærstu kúnnana sína,
Húsnæðisstofnun og svo
menntamálaráðuneytið. Þessir
aðilar hafa sem kunnugt er ákveðið
að kaupa IBM-tölvur í stað WANG-
tölva Heimilistækja. Að mörgu leyti
er um skiljanlega ákvörðun að ræða
vegna samtengingar við mikilvæga
aðila á borð við Skýrsluvélar rík-
isins og Reiknistofu bankanna.
enda var menntamálaráðuneytið
,,nokkurn veginn búið að ákveða að
kaupa IBM, en taldi rétt að leita álits
óháðrar þriggja manna nefndar", að
sögn Runólfs Leifssonar, deildar-
stjóra fjármálaskrifstofu ráðuneytis-
ins. Ekki vildi Runólfur upplýsa HI5
um hverjir hefðu mannað þessa
óháðu nefnd né heldur hinir sigr-
uðu, Heimilistæki. HP hefur hins
vegar öruggar heimildir fyrir því að
mennirnir hafi verið Björgvin B.
Schram, hagfræðingur hjá Kerfi
hf., Kjartan Ólafsson, tölvudeild-
arstjóri hjá Skeljungi, og Oddur
Benediktsson, prófessor við Há-
skóla íslands. Skemmst er frá því
að segja, að Kerfi hf. framleiðir hug-
búnað fyrir IBM-tölvur og er fyrir-
tækja líklegast til að fá það verkefni
að framleiða hugbúnað í hinar nýju
tölvur. Að Skeljungur er einhver
stærsti notandi IBM-tölva í landinu
og að Oddur, sem helst má telja
óháðan í nefndinni, framleiddi fyrir
nokkrum árum sérstakt kennslu-
myndband fyrir IBM-tölvur. Það
mun liafa verið Páll Kr. Pálsson
hjá Iðntæknistofnun sem benti
ráðuneytinu á þessa ráðgjafa, sem
svo áberandi eru á einn eða annan
hátt tengdir ÍBM, að minnsta kosti
tveir þeirra. Hitt er síðan annað
mál, hvort einhverjir ,,óháöir“
tölvusérfræðingar og hugbúnaðar-
framleiðendur fyrirfinnast hér á
landi. Ekki vantar samt tilstandið og
ljóst að tölvukaup eru orðin við-
kvæmara mál en t.d. kaup á togara
eða ríkisfyrirtæki...
ncw fitm bv Roti Rciner.
‘A highly enjoyahleej
BARRY NORMAN ÍBIV' -
NÖR.MAN <BUC T
RUTHLESS
PEOPLE
!*aw viiKn,i_oaisn s®< nwsi
i m ®»« nt a ws mr > *»•'*«•
■ttani
.„Katt^.iœarai m m m m
ERUM ÁVALLT FETI
FERRIS
BUELLER’S
DAYOFF®
FRAMAR
FERRIS
BUELLER’S
DAYOFF ®
mmmmmmmmmm a john hugmís hlm ■■■■■■■■■■■
<v
BÆJARINS BESTA URVAL AF BARNAEFNI
■K?
VIDEOHOLLIN
LÁGMÚLA 7 S. 685333 OPIÐ ALLA DAGA 10-23.30
SJÁUMST HRESS EKKERT STRESS BLESS
HELGARPÓSTURINN 37