Helgarpósturinn - 08.10.1987, Síða 39
FRÉTTAPÓSTUR
Aukafjárveitingar Jóns Baldvins Hannibalssonar hafa
valdið miklu fjaðrafoki, en eins og kunnugt er sakaði Jón
Baldvin fyrirrennara sinn, Þorstein Pálsson, um bruðl í
fjárveitingunum. Nýi fjármálaráðherrann hefur úthlutað
tæpum sextiu milljónum króna á sex vikna tímabili. Hæstu
aukafjárveitinguna fékk skipulagsstjóri ríkisins, 81,1 millj-
ón. Listasafn íslands fékk þá næsthæstu, 10 milljónir. Þor-
steinn Pálsson forsætisráðherra segir hins vegar að auka-
fjárveitingar hafi aldrei verið minni en nú og sé af og frá að
þær séu stjórnarskrárbrot eins og í veðri hefur verið látið
vaka.
Fréttapunktar:
• Samningar í deilu röntgentækna við Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri náðust á síðustu stundu og var því boðuðu
verkfalli röntgentækna aflýst.
• Hvalavinirnir hafa afhent Rannsóknarlögreglu ríkisins
gögn varðandi kæru sem þeir hyggjast leggja fram á hendur
Hval hf. Þeir óska eftir rannsókn á því tilviki er starfsmaður
Hvals hf. skar á líflínu sem einn hvalavinanna hékk í. Einn-
ig mun verða krafist skaðabóta vegna skemmda á tækjum
hvalavina.
• Hitaveita Reykjavíkur ætlar í mál við austurrískt fyrir-
tæki sem seldi henni álklæðningu utan um hitaveitutank-
ana við Bústaðaveg. í ljós hefur komið að klæðningin er göll-
uð. Samningum við austurríska fyrirtækið hefur verið rift
og skaðabótamál fyrirhugað.
• Kröftug sprenging varð í járnblendiverksmiðjunni á
Grundartanga á laugardaginn. Talið er að „mannleg mis-
tök“ hafi valdið sprengingunni sem orsakaðist af því að heit-
ur málmur fór í vatn. Mesta mildi var að níu af ellefu starfs-
mönnum verksmiðjunnar voru nýfarnir í mat er sprenging-
in varð og sakaði því engan þeirra og tveir menn sem voru
við vinnu sína sluppu ómeiddir. Tjónið er talið nema einni
til tveimur milljónum króna.
• Mikil ölvun var í miðborg Reykjavíkur á föstudagskvöld-
ið. Unglingar og krakkar voru þar svo þúsundum skipti og
fengu tíu rúður í verslunum að finna fyrir því. Við rúðubrot-
in voru notaðar flöskur, steinar og önnur barefli.
• Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, fór í fimm daga
opinbera heimsókn til ítaliu á mánudagsmorgun. Utan-
ríkisráðherra Ítalíu tók á móti forsetanum við komuna til
Rómar en auk þess hitti Vigdis Finnbogadóttir Cossiga for-.
seta að máli. Heimsóknin virtist ekki vekja athygli ítalskra
fjölmiðla.
• Á borgarstjórnarfundi á fimmtudag i siðustu viku var
samþykkt að reisa ráðhús Reykjavíkurborgar á horni Von-
arstrætis og Tjarnargötu. Tillagan gerir ráð fyrir að húsið
verði 13.000 fermetrar að stærð ásamt bilgeymslu i kjallara
og áætlaður byggingarkostnaður er samtals um 750 millj-
ónir króna. Fulltrúar minnihlutaflokkanna gagnrýndu til-
löguna en hún var samþykkt með tíu atkvæðum Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks.
• Tvísýnt er hver hlýtur stöðu forseta sameinaðs þings, en
þrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa ákveðið að bjóða
sig fram. Auk Þorvalds Garðars Kristjánssonar, sem gegnt
hefur embætti þingforseta síðastliðin fjögur ár, hafa Ragn-
hildur Helgadóttir og Salóme Þorkelsdóttir ákveðið að bjóða
sig fram í embættið. Konur í Sjálfstæðisflokknum þrýsta á
að kona fái embættið þar sem hlutur kvenna hafi verið fyrir
borð borinn við val á ráðherrum flokksins.
• Fjöldi póstmanna í Reykjavík og á Akureyri hefur sagt
upp störfum frá og með 3. desember nk. Verði laun þeirra
ekki bætt er ljóst að neyðarástand mun rikja i jólavertið-
inni. Póstmenn telja að 15.-20.000 króna launahækkun
þurfi að koma til svo þeir dragi uppsagnir sínar til baka.
• Húsaleiga hækkaði um 5% á föstudaginn og í sárabætur
fyrir leigjendur geta þeir reiknað með að borga óbreytta
leigu til áramóta.
• .Söluverð á íbúðum í fjölbýlishúsum hækkaði um 5% um-
fram lánskjaravísitölu í sumar. Þessar íbúðir hafa ekki ver-
ið dýrari, miðað við fast verðlag, í nærri þrjú ár.
• Mikill hiti er nú í akureyrskum konum vegna ráðningar
kvensjúkdómafræðings við Fjórðungssjúkrahús Akureyr-
ar. Fyrir nokkru var fjórða kvensjúkdómafræðingnum bætt
við sjúkrahúsið og sóttu fjórir læknar um stöðuna, þrír
karlmenn og kona. Karlmaður fékk stöðuna en væntanlegir
sjúklingar, þ.e.a.s. konurnar, vilja fá kvenlækni. Jafnréttis-
nefnd Akureyrar hefur látið málið til sín taka og stóð fyrir
fjölmennum fundi í síðustu viku. Skorað var á heilbrigðis-
yfirvöld að ráða konu i starf sérfræðings i kvensjúkdómum
við heilsugæslustöðina á Akureyri.
• íslenska atvinnumiðlunin, sem annast milligöngu um
ráðningu erlends vinnuafls til íslands, segist gera ráð fyrir
að þörf sé á að fá 1.500 manns hingað árlega til vinnu. Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna hefur haft milligöngu um að út-
vega 120 Bretum vinnu við fiskvinnslu hér á landi, en þeir
segjast ekki munu halda því áfram sé það gegn vilja verka-
lýðsfélaganna. Stjórn ríkisspítalanna íhugar nú innflutn-
ing á erlendu vinnuafli og vantar nú í 50—60 stöður ófag-
lærðra þar. Á Borgarspítalann vantar 40 manns, enda ekki
fýsilegt að inna af hendi starf sem gefur aðeins 29.000 krón-
ur í aðra hönd mánaðarlega.
Afmæli:
Stefán íslandi varð áttræður þriðjudaginn 6. október. Af
því tilefni var efnt til heiðurssamkomu í Gamla bíói þar sem
fremstu söngvarar þjóðarinnar komu fram auk Karlakórs
Reykjavíkur og kórs íslensku óperunnar.
Tímarit hestamanna í 10 ár
í hverjum mánuði kemur Eiðfaxi út
stútfullur af fréttum og fræðslu af
öllum sviöum hestamennskunnar.
Fylgist meö — gerist áskrifendur
0$)
■hhirmé
Áskriftarsími
91-685316
Tökum hunda ígceslu
til lengri eða
skemmri dvalar
Hundagæsluheimili
Hundavinafélags íslands og
Hundaræktarfélags íslands
Arnarstöðum, Hraungerðishreppi
801 Selfoss — Símar: 99-1031 og 99-1030
BIIALEIGAN
OS
Langholtsvegi 109
(í Fóstbræöraheimilinu)
Sækjum
og sendum
Greiöslukorta
þjónusta
Sínti 688177
HELGARPÓSTURINN 39